Morgunblaðið - 05.12.2014, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2014
„Eins og nafnið gefur til kynna fjallar verkið um MP5-
hríðskotabyssu, samskonar og þær sem bíða í tollinum,“
segir Hilmir Jensson um leikritið MP5 sem leikhópurinn
Sómi þjóðar frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. Hilmir
skrifaði verkið, leikur í því og leikstýrir í samvinnu við
Tryggva Gunnarsson, en þeir eru báðir meðal stofnfélaga
leikhópsins og hafa unnið tvær aðrar sýningar saman, þ.e.
Ég er vindurinn og Gálma. „Okkur langaði til að segja eitt-
hvað um þetta mál og setja upp sýningu áður en umræðan
fjarar út og fólk hættir að hugsa um þessar byssur,“ segir
Hilmir, en sem kunnugt er taldi Landhelgisgæslan sig
hafa fengið 250 MP5-hríðskotabyssur að gjöf frá norska
hernum og hugðist leyfa lögreglunni að nýta þær einnig,
en ákvað síðar að skila byssunum.
„Verkið okkar gerist í nálægri framtíð í geimstöðinni
Pandóru þar sem aðeins dvelja vel menntaðir, víðsýnir,
friðsamir og umbyrðarlyndir einstaklingar. Fyrir slysni
lokast Ísak og Vilhjálmur inni í vistarverum sínum og
opna þá neyðarkassa rýmisins. Í þessum neyðarkassa er
allskyns búnaður sem er nauðsynlegur til að halda lífi við
erfiðar aðstæður um borð í geimskipi sem og MP5-
hríðskotabyssa. Í framhaldinu fara þeir að ræða hvers
vegna byssan sé í neyðarkassanum, hvaða hlutverki hún
geti mögulega gegnt og hvað skuli gera við hana, þ.e.
farga henni, hunsa hana eða nýta með einhverjum hætti
og þá hvernig. Við búum til lítinn míkrókosmos sem von-
andi speglar það sem er í gangi í samtímanum,“ segir
Hilmir og tekur fram að verkið sé hugsað sem háðsádeila.
Fyrsta verkið í þríleik
Að sögn Hilmis er leikritið hugsað sem fyrsta verkið í
þríleik um þá Ísak og Vilhjálm og raunir þeirra í geimn-
um. „MP5, og þríleikurinn allur, er ákveðið tilraunaverk-
efni til að sjá hversu hratt leikhúsformið getur brugðist
við samfélagsumræðu líðandi stundar, en leikhúsið hefur
oft verið gagnrýnt fyrir að vera svifaseint og þungt í vöf-
um,“ segir Hilmir og tekur fram að þeir Tryggvi séu ekki
byrjaðir að leggja drög að næstu verkum. „Við viljum ekki
ákveða neitt fyrirfram heldur geta stokkið til með stuttum
fyrirvara til að bregðast við hlutum á líðandi stundu. Ef
við hefðum ekki verið að vinna MP5 akkúrat núna þá hefð-
um við kannski getað stokkið til og gert verk þar sem
fjallað er um átta nýja virkjunarkosti. Það er af nógu að
taka,“ segir Hilmir.
Nánari upplýsingar um verkið má finna á somithjod-
ar.is og tjarnarbio.is. Vegna anna aðstandenda eru aðeins
fyrirhugaðar þrjár sýningar, þ.e. í kvöld, föstudaginn 12.
desember og mánudaginn 15. desember kl. 20 öll kvöld.
Sýningin tekur 50 mínútur. silja@mbl.is
„Af nógu að taka“
Sómi þjóðar frumsýnir MP5 í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20
Verkið er háðsádeila um málefni líðandi stundar
Ógn Hilmir Jensson í hlutverki sínu sem Vilhjálmur.
Sally Magnusson er frétta-maður, dóttir hjónannaMary Baird (iðulega kölluðMamie) og Magnúsar
Magnusson. Hinn íslenski Magnús
var bæði þekktur fyrir skrif sín og
þáttastjórn á BBC og Mamie þótti
ekki síður slyng-
ur penni en hún
var afar vinsæll
blaðamaður.
Upphaflegi til-
gangurinn með
ritun þessarar
bókar var að
varðveita ótal
minningar sem
Sally átti um
móður sína sem veiktist af Alzheim-
er-sjúkdómi. Úr varð annað og meira
verk sem lýsir hinni einstöku og
gáskafullu konu, Mamie, samhliða
því að lýsa þeim erfiða sjúkdómi sem
Alzheimer er, þeim áhrifum sem
hann hefur á nánustu aðstandendur,
félagslegum þáttum og í heildina litið
hvernig sjúkdómurinn breytir í raun
og veru öllu, ekki bara þeim sem
greinist með sjúkdóminn sjálfan,
eins og höfundur orðar það í bókinni:
„Í rauninni er ég farin að velta því
fyrir mér hvort þetta geti verið sjúk-
dómur sem breytir öllum nema dýr-
lingum í eins konar skrímsli að lok-
um.“
Bókin segir sögu tveggja kyn-
slóða, sögu af uppbyggingu, stað-
festu, starfsframa, missi, mannvirð-
ingu, sorg, sæmd og hamingju. Ljóst
er að höfundurinn hefur komið á blað
öllum sínum fegurstu minningum
samhliða þeim sársaukafyllstu.
Þó svo að bók þessi sé afar per-
sónuleg fjallar Sally um sjúkdóminn
sjálfan á afar faglegan hátt og í
gegnum leit hennar að skýringum og
svörum við illskýranlegum birting-
armyndum heilabilunarinnar má
glögglega greina hinn fróðleiksfúsa
blaðamann sem gefst ekki upp í leit
sinni að skýringum. Fyrir vikið er
bókin sérlega fræðandi og getur án
efa hjálpað aðstandendum heilabil-
aðra að skilja betur eðli sjúkdómsins
og jafnvel eigin viðbrögð við hinni
hrakandi heilsu þess sem með hann
greinist. Eftir lesturinn var ég Sally
afar þakklát fyrir að veita lesendum
innsýn inn í sögu fjölskyldunnar sem
hún hefur skrifað af óþrjótandi ást
og góðu skopskyni. Sagan er nefni-
lega mjög spaugileg og þar spilar
Mamie stærsta hlutverkið með
hnyttni sinni, orðavali og lífsgleði
sem má segja að sé rauði þráðurinn í
gegnum bókina.
Bókin á erindi við mun fleiri en að-
standendur heilabilaðra því öll get-
um við lært eitthvað af lestrinum,
hvort sem við erum heilbrigðisstarfs-
fólk, blaðamenn, afgreiðslufólk eða
hvað sem er því mannvirðing er eitt-
hvað sem við þurfum að geta sýnt í
orðum og gjörðum í þjóðfélaginu,
sama hver á í hlut. Sally spyr á ein-
um stað hverju þurfi að breyta til að
komið sé vel fram við heilabilaða.
Svarið er einfalt og jafnvel nær
manni en það lítur út fyrir að vera:
Sjálfum þér.
Morgunblaðið/Ómar
Höfundurinn „Bókin á erindi við mun fleiri en aðstandendur heilabilaðra
því öll getum við lært eitthvað af lestrinum,“ segir um bók Sally Magnusson.
Áhrifaríkur ást-
aróður til móður
Endurminningar
Handan minninga - hvers vegna heila-
bilun breytir öllu bbbmn
Eftir Sally Magnusson.
Salka, 2014. 412 bls.
MALÍN BRAND
BÆKUR
Begin Again
Gretta er gítarleikari, söngkona og
lagahöfundur og býr alein í New
York eftir að unnusti hennar land-
aði plötusamningi og sleit í kjölfar-
ið sambandi þeirra sem olli henni
mikilli ástarsorg. Kvöld eitt þegar
Gretta er að spila á knæpu hittir
hún upptökustjórann Dan sem
hrífst mjög af söng hennar og laga-
smíðum og býður henni plötusamn-
ing. Fer þá að lyftast brúnin á
Grettu og við taka nýir og betri
tímar. Þó er sá galli á gjöf Njarðar
að upptökustjórinn er heldur lítill
spámaður þegar kemur að tónlist-
armönnum og hefur oftar en ekki
veðjað á rangan hest.
Leikstjóri er John Carney og með
aðalhlutverk fara Keira Knightley,
Mark Ruffalo, Adam Levine, James
Corden, Hailee Steinfeld og Cat-
herine Keener.
Metacritic: 62/100
Einmana í New York
Á byrjunarreit Keira Knightley og
Mark Ruffalo í Begin Again.
Bíófrumsýning
7
12
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWERSÝNING
KL. 10
Forsýning
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
L
EXODUS Sýnd kl. 10 (power)
MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 7 - 10:20
MÖRGÆSIRNAR Sýnd kl. 4 - 6
DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 5 - 8
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar