Morgunblaðið - 05.12.2014, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Leiðir Heiðars Helgusonar …
2. Ólöf Nordal nýr …
3. Ólöf: Ákvörðunin lá fyrir í gær
4. Einar afþakkaði ráðherrastólinn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvikmyndavefurinn Variety greinir
frá því að Baltasar Kormákur eigi nú í
viðræðum um að leikstýra kvikmynd-
inni Cascade sem fyrirtækin Fox,
Scott Free og Film Rites framleiða. Á
vefnum Movieweb segir að ástralska
leikkonan Cate Blanchett muni
mögulega fara með aðalhlutverk
myndarinnar, hlutverk skipstjóra á
olíuskipi sem lendir í hremmingum á
Persaflóa.
AFP
Leikstýrir Baltasar
Cate Blanchett?
Umfangsmikil
sýning um feril
Bjarkar Guð-
mundsdóttur
verður opnuð í ný-
listasafninu
MoMA í New York
7. mars nk. Í
tengslum við
hana verður gefin
út vegleg bók, Björk: Archives, af for-
laginu Thames & Hudson, 30. mars.
Bók um Björk frá
Thames & Hudson
Tímarit verslunarinnar Geysis er
nýkomið út og fór myndataka fyrir
það fram á Flateyri á Ísafirði.
Myndatakan fór öðruvísi en áætlað
var því fyrirsæturnar komust ekki
vestur sökum slæms veðurs. Aðrir
sem að myndatökunni komu urðu að
hlaupa í skarðið, m.a. stílistinn
Hulda Halldóra Tryggvadóttir sem
prýðir forsíðu
tímaritsins. Þrír
íbúar Ísafjarðar
brugðu sér í hlut-
verk fyrirsætna og
þ.á m. 85 ára bók-
sali.
Stílistinn varð
forsíðufyrirsæta
Á laugardag Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, en úrkomulítið
á N- og A-landi. Norðlægari seint um kvöldið og fer að snjóa norð-
antil. Hiti um og undir frostmarki.
Á sunnudag Norðan 5-13 m/s og él, en bjartviðri á S- og V-landi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 m/s og él vestast seint í
kvöld og kólnar aftur, en fer að snjóa fyrir norðan og austan.
VEÐUR
Valsmenn eru áfram á toppi
Olís-deildar karla í hand-
knattleik eftir nauman sigur
á Stjörnunni. Þeim gekk illa
að ráða við Egil Magnússon,
átján ára stórskyttu
Garðbæinga, sem skoraði 17
mörk. Afturelding vann FH í
spennuþrungnum leik í
Kaplakrika og ÍR
var ekki í vand-
ræðum með
Hauka á Ásvöll-
um. »2-4
Valsmenn áfram á
toppi deildarinnar
Ef KR-ingar spila af fullri getu í 40
mínútur á enginn andstæðinga þeirra
í Dominos-deild karla í körfuknattleik
nokkra möguleika gegn þeim.
Stjarnan átti algjöran draumaleik-
hluta í Vesturbænum í gær en and-
stæðingar KR þurfa helst 3 slíka, eða
heilan draumaleik, til að leggja
meistarana. KR er áfram með fullt
hús stiga eftir níundu umferðina. »2
Andstæðingar KR þurfa
draumaleik til að vinna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Sigurður Þ. Ragnarsson, betur
þekktur sem Siggi Stormur, og kona
hans Hólmfríður Þórisdóttir, eru
fólkið á bak við þættina Stormað um
sem vakið hefur athygli á ÍNN. Þátt-
urinn er á mánudagskvöldum en Sig-
urður er nýbúinn að ljúka sýningum
á fjögurra þátta seríu um Hrútavina-
félagið Örvar þar sem hann ferðaðist
um landið með þeim Guðna Ágústs-
syni og Jóhannesi Kristjánssyni eft-
irhermu. „Þeir þorðu ekki annað en
að hafa veðurfræðing með sér því
þeir voru svo hræddir við veðrið á
Holtavörðuheiðinni,“ segir Sigurður
sem festi á filmu meðal annars
hinstu för forustuhrútsins Gorbat-
sjovs og hrútadaga á Raufarhöfn.
„Fyrir mig var þetta ferðalag há-
skóli og ég skil landsbyggðina miklu
betur. Ég víkkaði sjóndeildar-
hringinn og þetta segir manni að
maður á ekki að þykjast hafa vit á
einhverju sem maður hefur ekkert
vit á. Ég er vitrari maður – það er
betra,“ segir hann og hermir eftir
Guðna Ágústssyni. Það er ekki leið-
inlegt að tala við Sigurð.
„Ég hafði migið í saltan sjó en
ekki í flórinn,“ segir hann og hlær.
Stormurinn á Spáni
Næstu skref þeirra hjóna verða
þáttaröð um Íslendinga sem staddir
eru á Spáni en Sigurður hefur lengi
haft annan fótinn þar í landi. „Ég
skildi hinn fótinn meira að segja eftir
síðast. Ég er eins mikið á Spáni og
ég get og þættirnir voru klipptir á
spænskri ströndu.
Ég fer um Íslendingabyggðir á
austurströndinni og þarna ætla ég
að reyna að varpa fram myndum af
fólki sem hefur verið að fjárfesta á
Spáni. Þó að það hafi áður verið
fjallað um Spánverja hefur ekki ver-
ið fjallað um Íslendinga á Spáni.“
Hólmfríður er framleiðandi þátt-
anna og segir Sigurður að hann hlýði
í einu og öllu. „Við erum búin að vera
með kvikmyndabúnað í svolítinn
tíma og mitt hlutverk í þessum þátt-
um er að finna sniðugt mannlíf. Mér
finnst voðalega gaman að gera það
sem er gaman – og þetta er gaman.
Þessi hrútaferð til dæmis fannst mér
alveg æðisleg.
Ég var 18 ár á stóru stöðvunum,
RÚV og Stöð2 og þar lærði maður
smá undirstöðutökin enda vann ég
með miklum meisturum. Þegar öllu
var á botninn hvolft þá kunni ég
merkilega mikið. ÍNN er búið að kló-
festa mig ef svo má segja og ég er
með fjölda verkefna þar. Það er mik-
il gróska á ÍNN og mér finnst þessi
hugmyndavinna og annað í kring
skemmtilegt umhverfi – í miðjum
storminum.“
Stormurinn í þáttagerð
Sigurður Þ.
Ragnarsson í miðju
stormsins á ÍNN
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stuð Sigurður er skemmtilegur maður og nær að skila þeim skemmtilegheitum heim í stofu fólks. Hann hefur dreg-
ið fjölskylduna með sér í þáttagerð á ÍNN. Frúin er framleiðandi og sonurinn klippir þættina.
Sigurður og Hólmfríður hafa verið
gift í 24 ár og segir Sigurður að
það sé ekkert minna en stórkost-
legt að vinna með konunni sinni.
„Ég er búinn að fá mjög jákvæð
viðbrögð frá þjóðinni um þættina.
Á meðan svo er fær maður góða
næringu. Það er fátt skemmtilegra
en að sitja með afurð sem maður
er sáttur við.
Hólmfríður passar að allt sé í
lagi og er gríðarlega góður verk-
stjóri. Lykillinn að góðu hjóna-
bandi að mínu mati er að gera eitt-
hvað þar sem maður finnur
vináttuna í makanum. Reyna að
sameinast í áhugamálunum. Ég
hef orðið vitni að því á Spáni, þeg-
ar pör fara saman í frí að fólk kann
ekkert að vera saman – kannski
eftir vikudvöl.
Ef pör gera eitthvað saman þá
halda þau sambandinu í lagi. Ekki
spurning,“ segir Sigurður.
Sameinast í áhugamáli
SIGURÐUR OG HÓLMFRÍÐUR
Guðjón Valur Sigurðsson er besti
rétthenti hornamaður í heiminum í
dag, samkvæmt kosningu lesenda og
mati sérfræðinga handboltavefjarins
Handball Planet. „Niðurstaðan er að
sjálfsögðu ofsalega ánægjuleg fyrir
mig og ég er þakklátur fyrir hana,“
segir Guðjón Valur en
tveir aðrir liðsfélagar
hans hjá Barcelona eru
í hópi þeirra sem
valdir voru bestir í
sinni stöðu á vell-
inum. »1
Besti rétthenti horna-
maður í heiminum