Morgunblaðið - 10.12.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Andríki bendir á að þeir semkrefjist þess að „hlustað sé á
okkur“
séu
sjaldnast
að krefj-
ast þess að hlustað sé á þá, heldur
þess að fá að ráða:
Þeir viti hins vegar að sú krafahljómi ekki eins vel.
Í Fréttablaðinu var fjallað um
þá ákvörðun fyrrverandi dóms-
málaráðherra að lögreglan á Höfn
í Hornafirði myndi heyra undir
lögregluna á Austurlandi en ekki
Suðurlandi.
Blaðið talaði við mjög reiðanbæjarstjóra á Höfn, sem vildi
að lögreglan heyrði undir Suður-
land og hefur eftir honum: „Við
vorum fullvissuð um að hlustað
yrði á afstöðu okkar.“
En hver segir að ekki hafi veriðhlustað á sjónarmið bæj-
arstjórnarinnar í Hornafirði?
Getur ekki verið að ráð-herrann, sem samkvæmt lög-
um á að taka ákvörðunina, hafi
hlustað á þau sjónarmið en engu
að síður ákveðið að hafa annan
hátt á?
Ókosnir aðilar reyna í sífellu aðfá að taka ákvarðanir sem
ekki eiga að vera í þeirra höndum.
Þeir lýsa skoðun, veita umsagn-ir, gera tillögur, og krefjast
þess svo að á þá „sé hlustað“.
En þá eiga þeir ekki við að þeirvilji að menn hlusti. Þeir
vilja fá að ráða.
Þeir halda að óskir eða tillögurþeirra séu í raun fyrirmæli.“
Hlustið og hlýðið
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 9.12., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Bolungarvík -2 snjókoma
Akureyri -2 léttskýjað
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -6 skýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Helsinki 2 léttskýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skúrir
London 7 léttskýjað
París 5 heiðskírt
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 2 alskýjað
Berlín 2 heiðskírt
Vín 3 léttskýjað
Moskva -1 þoka
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -15 skýjað
Montreal -2 snjókoma
New York 5 skúrir
Chicago 3 súld
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:08 15:34
ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:02
SIGLUFJÖRÐUR 11:35 14:43
DJÚPIVOGUR 10:46 14:55
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Í ljósi þess að við höfum verið með
góðan rekstur og greitt niður skuldir,
þá hefur meirihlutinn fengið svigrúm
til að bæta þjónustuna sem og lækka
skatta og gjöld á íbúana í bænum,“
segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri Kópavogsbæjar, en fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir árið 2015 var
samþykkt í bæjarstjórn í gærkvöldi.
Að sögn Ármanns er mikil áhersla
lögð á börn og fjölskyldur í fjárhags-
áætluninni en í henni er meðal annars
gert ráð fyrir 200 milljónum í kaup og
innleiðingu á spjaldtölvum í grunn-
skóla.
„Meirihluti Bjartrar framtíðar og
Sjálfstæðisflokks leggur áherslu á að
okkar skólar séu í fremstu röð og það
er ljóst að upplýsingatæknin er búin
að festa rætur. Ef við berum okkur
saman við mörg önnur lönd, þá virð-
umst við vera komin talsvert aftur úr
í því að nýta okkur þessa tækni. Það
er af þeim ástæðum sem við tókum
þennan pólinn í hæðina,“ segir Ár-
mann.
Frítt í sund fyrir eldri borgara
Þess má einnig geta að samkvæmt
áætluninni verður frístundastyrkur
barna í Kópavogi hækkaður í 30.000,
hafist verður handa við byggingu
íþróttahúss við Vatnsendaskóla auk
þess sem eldri borgarar og börn
yngri en tíu ára fá frítt í sund frá og
með áramótum.
Í fréttatilkynningu segir einnig að
heildartekjur Kópavogsbæjar séu
áætlaðar 24,2 milljarðar og eru skatt-
tekjur þar af um 19,5 milljarðar.
Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti
útgjaldaliður fjárhagsáætlunar
Kópavogsbæjar en af heildarskatt-
tekjum bæjarins á næsta ári fara
tæplega 60 prósent til málaflokksins.
Spjaldtölvur fyrir 200 milljónir
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 var samþykkt í gærkvöldi
Kristín ráðin aðstoðarmaður Ólafar
Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur ráðið Kristínu
Haraldsdóttur, sérfræðing við lagadeild Háskólans í
Reykjavík, sem lögfræðilegan aðstoðarmann sinn.
Kristín lauk lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Ís-
lands og meistaragráðu í Evrópurétti frá Háskólanum
í Lundi. Hún var m.a. lögfræðingur í sjávarútvegs-
ráðuneytinu og lögfræðilegur aðstoðarmaður dómara
við EFTA-dómstólinn. Frá 2009 hefur Kristín verið
sérfræðingur við lagadeild HR og forstöðumaður Auð-
lindaréttarstofnunar lagadeildar HR. Hún hefur þegar
hafið störf.
Kristín
Haraldsdóttir
Hverfisgata 4
101 Reykjavík
s: 537 4007
info@hverfisgalleri.is
www.hverfisgalleri.is
opið 11-17 þri-fös & 13-16 lau
SIGURÐUR ÁRNI SIGURÐSSON
Án titils, 2012 | olía á striga | 200 x 220 cm
JÓLATILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Kveiking í öllum rofum
• Auka steikarplata fylgir
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Efri grind
• Bakki fyrir fitu
• Hitamælir
• Fáanlegt í fleiri litum
Er frá Þýskalandi
Niðurfellanleg
hliðarborð
FULLT VERÐ
99.900
84.900
Opið kl. 11 - 18 virka daga
Opið kl. 11 - 16 laugardaga
Opið kl. 12 - 15 sunnudaga
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is