Morgunblaðið - 10.12.2014, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
✝ RagnheiðurHelga Óladótt-
ir fæddist í Reykja-
vík 6. nóvember
1944. Hún lést á
Landspítalanum í
Kópavogi aðfara-
nótt sunnudagsins
30. nóvember
síðastliðins.
Foreldrar Ragn-
heiðar voru þau
Valgerður Árna-
dóttir, húsmóðir og verkakona,
f. á Vopnafirði 8. desember
1918, d. 4. febrúar 1999, og Óli
Hermannsson, lögfræðingur og
þýðandi, f. á Kaldbak í Tjörnes-
hreppi 18. september 1914, d. 7.
júní 1997. Þau skildu eftir tíu
ára sambúð. Ragnheiður ólst
upp í stórum systkinahópi, fyrst
á Bergstaðastræti og síðar í Ás-
garði við Fossvoginn. Alsystkin
hennar eru Árni, f. 10. mars
1942, Margrét, f. 11. maí 1943,
1972. Börn þeirra eru Bjarni
Bjarnason rithöfundur, f. 9. nóv-
ember 1965 og Valgerður
Bjarnadóttir líffræðingur, f. 19.
febrúar 1967. Eiginkona Bjarna
er Katrín Júlíusdóttir, alþing-
iskona og fv. ráðherra, f. 23.
nóvember 1974. Synir Bjarna og
Katrínar eru tvíburarnir Krist-
ófer Áki og Pétur Logi, f. 23.
febrúar 2012. Sonur Bjarna frá
fyrri sambúð er Snorri Vikanes,
f. 1. ágúst 2000, búsettur í Berg-
en í Noregi. Stjúpsonur Bjarna,
sonur Katrínar, er Júlíus Flosa-
son, f. 1. mars 1999. Sambýlis-
maður Ragnheiðar til tuttugu
ára var Elías Rúnar Sveinsson,
tugþrautarmaður og trésmiður,
fæddur 1952. Ragnheiður starf-
aði lengst af við fiskvinnslu, í
mötuneytum og við af-
greiðslustörf. Síðast starfaði
hún í mötuneyti félagsmiðstöðv-
arinnar Aflagranda. Eftir
starfslok var hún sjálfboðaliði í
verslun Rauða krossins á Land-
spítalanum og gætti barnabarna
sinna á meðan heilsan leyfði.
Útför Ragnheiðar Helgu
verður haldin í Fossvogskirkju í
dag, miðvikudaginn 10. desem-
ber, kl. 15.00.
Hermann, f. 30. jan-
úar 1946, Brjánn
Árni, f. 13. júní
1947, d. 31. desem-
ber 2010, Guðrún
Kristjana, f. 28.
október 1950, og
Hrólfur, f. 25. nóv-
ember 1952. Bræð-
ur Ragnheiðar
samfeðra eru Odd-
ur, f. 1953 og
Guðni, f. 1961.
Ragnheiður dvaldi mikið hjá afa
sínum Hermanni og ömmu sinni
Friðnýju á Bakka við Húsavík
sem barn. Ragnheiður lauk
grunnskóla í Reykjavík og fór
ung að vinna og vann ýmis störf
þar til 1964 að hún giftist Bjarna
Birgi Péturssyni, f. 3. mars
1942, sjómanni og bifvélavirkja.
Foreldrar hans voru Guðrún
Gísladóttir bókasafnsfræðingur
og Pétur Sumarliðason kennari.
Ragnheiður og Bjarni skildu
Ragnheiður Helga Óladóttir
var fædd í Reykjavík þann 6. nóv-
ember 1944. Foreldrar hennar
voru Óli Hermannsson lögfræð-
ingur og Valgerður Árnadóttir
verkakona. Faðir Valgerðar var
Árni frá Múla, alþingismaður og
ritstjóri. Þriggja ára var Ragn-
heiður send í sveit að Bakka á
Tjörnesi, til ömmu og afa. Að
vera á Bakka þar sem öll lífsins
gæði varð að sækja í náttúruna
var á við bestu skólagöngu. Ekki
voru allir dagar sólardagar í lífi
Ragnheiðar. Hún fór ung að
heiman að vinna fyrir sér eins og
þá var algengt. Vann hún meðal
annars við fiskvinnslu og í mötu-
neytum.
Þótt hún léti ekki mikið fyrir
sér fara þá vissi hún sínu viti.
Hún var sú manngerð sem á ekki
alltaf gott með að verjast ágangi
heimsins. Í fari hennar var ekk-
ert nema góðmennsku að finna.
Var hún hænd að móður sinni og
er gott til þess að vita að hún mun
liggja hjá henni í Fossvogskirkju-
garði, eins og hún óskaði sér.
Ísland er einni fyrsta flokks
konu fátækari. Vil ég þakka líkn-
ardeild Landspítalans fyrir alúð-
leg og vel unnin störf, er óhætt að
segja að þar starfi fólk á heims-
mælikvarða á sínu sviði.
Elías Rúnar Sveinsson.
Ragnheiður Helga var þriðja
af sjö börnum foreldra okkar,
þeirra Valgerðar Árnadóttur og
Óla Hermannssonar. Einhver
ruglingur varð á genunum þegar
Ragnheiður kom í heiminn. Í stað
þess að vera ljóshærð eins og við
hin sex, með grá, blá eða græn
augu, voru augu hennar móbrún
og hárið mikið og fallega ljós-
gyllt. Þriggja ára var hún send til
afa okkar og ömmu, þeirra Frið-
nýjar Óladóttur og Hermanns
Stefánssonar, er bjuggu á Bakka
við Húsavík. Það dvaldi hún fyrst
í eitt og hálft ár og síðan á hverju
sumri uns Hermann missti heils-
una, en hann lést 1957.
Minntist hún áranna á Bakka
ætíð með mikilli hlýju.
Þótt stundum hafi verið þröngt
í búi á æskuheimili okkar hjá ein-
stæðri móður sjö barna, ríkti
gleði í stóra systkinahópnum,
enda mamma sérstaklega
skemmtileg og svo stóðu allar dyr
opnar fyrir vinum okkar krakk-
anna. Mamma las fyrir okkur á
kvöldin, hlustað var á útvarp, sér-
staklega á sögur og jazz. Fékk því
Ragnheiður áhuga á lestri og tón-
list með móðurmjólkinni. Ragn-
heiður var falleg og glæsileg kona
og góð manneskja. Hún hafði
yndi af því að „hafa sig til“ og
„hitt kynið“ renndi einatt til
hennar hýru auga og það strax á
unglingsaldri. Þurfti þá eldri
systirin stundum að stugga þeim
ágengustu frá.
Margrét og Ragnheiður fóru
ungar að vinna fyrir sér. Þær
réðu sig sem kaupakonur hvor á
sinn bæinn, Stakkahlíð í Loð-
mundarfirði og Húsavík í Borg-
arfirði eystra. Nokkuð stutt
sýndist á milli bæjanna séð af
landakorti, og álitu þær sem svo
að þær gætu hist oft, en gleymdu
að skoða kortið nægilega vel, því
þegar á hólminn var komið
reyndist heilt fjall vera á milli,
þannig að þær hittust bara einu
sinni allt sumarið. Nokkrum ár-
um seinna lögðu þær aftur af stað
út í óvissuna, nú á skipi til Súg-
andafjarðar þar sem þær höfðu
ráðið sig í fiskvinnslu og áttu að
búa á verbúð. Verbúðirnar á Suð-
ureyri voru kallaðar eftir hinu
stríðsþjáða Afríkulandi „Kongó“
sem þá stóð í sjálfstæðisbaráttu.
Þar bjuggu þær með þeim
góðu konum Ingu Þórðardóttur
og Sigríði Kristinsdóttur, sem
urðu vinkonur þeirra upp frá því.
Þegar þær snéru aftur heim
fengum við hin ótal skemmtilegar
sögur af ævintýrum þeirra í „Afr-
íku“ á Súganda. Ragnheiður var
hlédrægari en við hinar systurn-
ar, en hún hafði yndislegan og oft
beittan húmor. Laumaði inn í um-
ræður setningum eða orði sem
fékk mann til að kafna næstum úr
hlátri. Hún var vandvirk og vel
Ragnheiður
Helga Óladóttir
✝ Björn JónatanEmilsson fædd-
ist á Eskifirði 28.
maí 1934. Hann lést
á Landspítalanum
13. nóvember 2014.
Foreldrar Björns
voru hjónin Niels
Peter Emil Weywadt
Björnsson, f. 28.
ágúst 1892, d. 7. júlí
1972 og Laufey Sig-
ríður Jónatans-
dóttir, f. 27. júlí 1905, d. 17. júlí
1964.
Systkini Björns eru Ingvar, f.
1926, búsettur í Mexíkó, Bryndís,
f. 1928, d. 2002 og Hulda, f. 1930,
búsett í Kaliforníu. Björn kvænt-
ist Þórunni Jónsdóttur, f. 13.
október 1934, dáin 1990. Björn og
Þórunn skildu 1974. Þau eign-
uðust fimm börn, sem eru: Emil, f.
1957, Birgir Örn, f. 1959, Katrín,
f. 1961, Björn Þór, f. 1965, látinn
2009 og Einar, f. 1966. Fyrir
hjónaband eignaðist Björn dótt-
ur, Andreu Dögg, f. 1956. Björn á
ellefu barnabörn og eitt barna-
barnabarn.
Björn ólst upp á Eskifirði til
ársins 1940, en þá flutti fjöl-
þeir félagar Breiðholt hf. og áttu
þeir lægsta tilboð í fjölbýlishús
sem byggð voru í Neðra-
Breiðholti. Það krafðist tækni og
fluttu þeir inn þýsk stálmót og
rafmagnskrana sem fóru eftir
teinum meðfram byggingunum.
Einnig keyptu þeir steypuverk-
smiðju, því dýrt var að aka með
vatnsblandaða steypu frá neðri
svæðum borgarinnar. Vegna
lágs byggingarkostnaðar var
Menningarmiðstöðin í Gerðu-
bergi gefin Reykjavíkurborg af
Framkvæmdanefndinni. Kran-
arnir og stálmótin voru síðast
notuð í Mosfellsbæ fyrir hrunið
2008. Björn hætti hjá Breiðholti
hf. árið 1973 og hóf ásamt öðrum
sem höfðu umboð fyrir Butler-
stálgrindargús að byggja Coca-
Cola-verksmiðjur í Nígeríu
ásamt íbúðarhúsnæði. Björn var
viðloðandi störf í Nígeríu þar til
um 1980. Eftir það hóf hann aft-
ur störf á Teiknistofunni á
Laugavegi 96 og eftir það var
hann sjálfstætt starfandi.
Björn hafði yndi af söng og
söng með Karlakórnum Fóst-
bræðrum frá 1954, með hléum er
hann dvaldi erlendis vegna náms
og starfa. Með kórnum söng
hann til ársins 2011 og með Eldri
Fóstbræðrum þar til hann lést.
Útför Björns verður gerð frá
Langholtskirkju í dag, miðviku-
daginn 10. desember, og hefst
athöfnin kl. 11.00.
skyldan til Reykja-
víkur. Björn lauk
hefðbundnu
skyldunámi og fór
síðan í Versl-
unarskóla Íslands,
þar sem hann lauk
stúdentsprófi árið
1954. Sama ár réð
hann sig til ÍAV,
sem byggði upp
radarstöð á Heið-
arfjalli á Langa-
nesi. Þar starfaði hann til ársins
1956, en í árslok það sama ár
hélt hann til náms í Darmstadt í
Þýskalandi, þar sem hann lagði
stund á arkitektúr og bygginga-
tæknifræði. Að námi loknu, árið
1962, flutti Björn ásamt fjöl-
skyldu sinni til Íslands. Björn
stofnaði teiknistofu að Lauga-
vegi 96, ásamt félögum sínum.
Árið 1965 stofnaði hann ásamt
félögum sínum Byggingatækni
sf. og byggðu þeir átta hæða fjöl-
býlishús ofarlega við Kleppsveg,
þar sem byggt var með gömlu
trémótauppsláttaraðferðinni.
Þegar Framkvæmdanefnd bygg-
ingaáætlunar áformaði að
byggja upp í Breiðholti, stofnuðu
Ég hafði ekki í langan tíma
séð nafna minn, sveitunga og
skólabróður, Björn Jónatan.
Svo var það í síðdegiskaffinu á
Vitatorginu að ég frétti að
Björn hefði dáið á miðvikudeg-
inum 12. nóvember og brá mér
sannarlega við. Þótt við værum
báðir frá Eskifirði kynntist ég
ekki Birni fyrr en í Verzlunar-
skólanum, en þar vorum við
sambekkingar.
Að vísu var kunningsskapur-
inn ekki mikill þá, en ég átti eft-
ir að hitta hann oftar á lífsleið-
inni, einkum á síðari árum eftir
að ég fór að sækja starfsemina á
Vitatorgi.
Við ræddum oft saman yfir
kaffibolla eða matardiski. Þar
ræddum við um heimahaga
eystra og sitthvað fleira. Nafni
minn átti sér mikla drauma og
áætlanir sem hann sagði mér
frá og ýmsar framkvæmdir sem
hann hafði í huga.
En það er nú einu sinni svo
að mennirnir bollaleggja en Guð
ræður. Sá sem vaknar að
morgni er ekki öruggur um að
geta gengið til hvílu að kveldi.
Hann hafði fengist við ýmislegt
um dagana, m.a. búskap og eins
teiknaði hann hús, enda list-
fengur vel.
Björn Jónatan var skemmti-
legur maður, sem gaman var að
tala við, en nú er hann allur og
það er eftirsjá í huga mér. Ég
tjái öllu hans fólki einlæga sam-
úð mína vegna fráfalls hans.
Blessuð sé minning Björns
Jónatans.
Björn G. Eiríksson.
Kveðja frá Karlakórnum
Fóstbræðrum
Á baksíðu Morgunblaðsins
þann 1. sept. 1954 er sagt frá
því að Karlakórinn Fóstbræður
hafi daginn áður lagt upp í
söngför til Evrópu, þar sem
sungið skyldi bæði í þýska út-
varpinu og franska sjónvarpinu
sem þá þótti mikið nýnæmi,
enda ekkert sjónvarp á Íslandi.
Annað nýnæmi við þessa mán-
aðarlöngu utanför kórsins var
Björn Jónatan
Emilsson
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Viðarrima 4,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 15. desember kl. 15.00.
.
Jakob Jónsson,
Guðjón Árni Eggertsson, Helena Karlson,
Anna Sóley Eggertsdóttir, Gísli Gíslason,
Eggert Smári Eggertsson, Katharina Snorradóttir,
Kristín Björg Eggertsdóttir, Jens Ólafsson,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, elskulegur afi og langafi,
EINAR ÓLAFSSON,
fyrrv. skipstjóri og útgerðarmaður,
Smáragötu 9, Vestmannaeyjum,
andaðist sunnudaginn 30. nóvember.
Hann verður jarðsunginn frá Landakirkju
laugardaginn 13. desember kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast Einars
er bent á líknarfélög.
.
Viktoría Ágústa Ágústsdóttir,
Ólafur Ágúst Einarsson, Halla Svavarsdóttir,
Agnes Einarsdóttir, Kári Þorleifsson,
Viðar Einarsson, Dóra Björk Gunnarsdóttir,
Hjalti Einarsson, Dagmar Skúladóttir,
afa- og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÖSKULDUR JÓNSSON
símaverkstjóri,
Kolbeinsgötu 52,
Vopnafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði
mánudaginn 1. desember.
Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 12.
desember kl. 13.00.
.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar kæri frændi og vinur,
SIGTRYGGUR SIGURÐSSON
málarameistari,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
2. desember.
Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn
15. desember kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Systkinin úr Hólmgarði
og vinir.
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN S. EINARSSON
húsasmíðameistari,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju
föstudaginn 12. desember og hefst athöfnin
kl. 13.00.
Kristín Björg Jónsdóttir, Jón Hlífar Aðalsteinsson,
Margrét Jónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KJARTAN ÓLAFSSON
fv. deildarstjóri
í búvörudeild Sambandsins,
Ársölum 3,
áður Hlíðarhvammi 10,
Kópavogi,
lést mánudaginn 1. desember á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. desember
kl. 15.00.
Jóhanna Bjarnadóttir,
Margrét I. Kjartansdóttir, Sigmundur Einarsson,
Ólafur Kjartansson, Nanna Bergþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
SÆVAR BJÖRN KOLBEINSSON,
Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
lést miðvikudaginn 3. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 11. desember kl. 11.00.
Sverrir Kolbeinsson,
Ævar Halldór Kolbeinsson,
Guðjón Steinar Sverrisson, Patricia Velasco Sverrisson,
Kristín Ósk Guðjónsdóttir,
Adda Björg Guðjónsdóttir,
Viktor Ingi Guðjónsson,
Magnús Bjarni Guðjónsson.