Morgunblaðið - 10.12.2014, Page 23
liðin hvar sem hún vann.
Ragnheiður fékk krabbamein í
annað sinn vorið 2013, en sem
betur fer átti hún lengst af góða
daga þar til yfir lauk. Hún varð
sjötug 6. nóvember sl. og hlakk-
aði mikið til afmælisins og skipu-
lagði það vel og vandlega. Um leið
og við systur hennar þökkum
Ragnheiði samfylgdina, erum við
vissar um að mamma og Gurrý
frænka, sem hún fær að hvíla hjá
í Fossvogskirkjugarði, taka vel á
móti henni. Kæmi okkur ekki á
óvart þótt þær tækju lagið sam-
an. Dálítið fjörugt frá Ellu og
nokkra tregablandaða frá Billie
og gott ef ekki nokkur Jitterbug-
spor um leið.
Hvíl í friði, kæra systir.
Margrét Valgerðardóttir
og Guðrún Kr. Óladóttir.
Fyrrverandi mágkona mín,
Ragnheiður Helga Óladóttir, er
fallin frá. Um hugann fer kær
þökk fyrir góð tengsl og vinsam-
leg samskipti um leið og ég færi
Elíasi, Valgerði, Bjarna og Katr-
ínu og systkinum Ragnheiðar og
þeirra fjölskyldum innilegar sam-
úðarkveðjur okkar systkinanna
og fjölskyldna okkar.
Gísli Ólafur Pétursson.
Eftir að ég kynntist Bjarna
manninum mínum var eitt af því
fyrsta sem ég gerði að rekja ættir
okkar. Fljótlega áttaði ég mig á
því að í gegnum móður sína átti
hann ættir að rekja til Bakka við
Húsavík, þar sem móðir hans
dvaldi mikið hjá föðurforeldrum
sínum í æsku. Á þessum tíma var
ég iðnaðarráðherra og umræðan
um iðnaðaruppbyggingu á Bakka
mikil. Það átti því fyrir mér að
liggja að giftast inn í Bakkafjöl-
skylduna á meðan ég var iðnaðar-
ráðherra sem var svolítið skondið
í ljósi aðstæðna en hefur líka
reynst mér mikil gæfa.
Ragnheiður reyndist okkur af-
ar vel eftir að tvíburasynir okkar
Bjarna fæddust fyrir tæplega
þremur árum. Hún var mikil
barnagæla og strákarnir okkar
urðu mjög fljótt hændir að henni.
Annar þeirra var framan af ekki
mikið fyrir að gefa sig að fólki og
þurftu ættingjar og vinir að
leggja mikið á sig til að sanna sig
áður en hann var til í spjall.
Ragnheiður náði þó strax til hans
og var hann örfárra mánaða far-
inn að kætast óskaplega við komu
ömmu sinnar. Hún gaf sig alla í
samskiptin við þá og var fljótt
farin að lifa sig inn í leikinn með
þeim án þess að gefa umhverfinu
mikinn gaum, þeir urðu miðja
veraldar.
Ragnheiður var mikil sögu-
manneskja. Hún hallmælti aldrei
nokkrum manni en sagði gjarnan
skoðun sína í gegnum sögur. Eft-
ir að hún veiktist breyttust sög-
urnar meira yfir í frásagnir úr
lífshlaupi hennar. Stundum
greindi ég trega en oftast gleði og
þá ekki síst þegar hún kímin
sagði mér skondnar sögur um
uppátæki sín og Margrétar syst-
ur sinnar á þeirra yngri árum. Ég
flissa enn yfir þeim þegar ég rifja
þær upp. Svo miklu lífi gæddi hún
þær. Strákarnir spyrja mikið um
ömmu sína og skilja ekkert í því
af hverju hún er hætt að koma í
heimsókn. Nú er það okkar að
segja sögurnar og nú verða þær
af henni svo minningin megi lifa
áfram með börnunum okkar sem
sakna hennar svo mjög.
Nú þegar leiðir okkar skilur í
þessu jarðlífi er ég fyrst og
fremst þakklát. Ég er þakklát
fyrir sögurnar sem hún sagði
mér, dýrmæta aðstoð á heimilinu
og með börnin þegar mikið álag
var á okkur hjónum og síðast en
ekki síst fyrir einlæga ást hennar
á börnunum mínum sem mun
verða þeim dýrmætt veganesti út
í lífið.
Katrín Júlíusdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Smáauglýsingar 569 1100
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Ódýr blekhylki og tónerar
Verslun í Hagkaup, Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
Blekhylki.is, sími 517 0150
Kristalshreinsiúði
Hreinsiúði fyrir kristalsljósakrónur og
kristal.
Slóvak kristall
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4331.
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Jólaóróar
frá PLUTO
Margar gerðir
Verð kr. 1.795
Teg. 2975 Einstaklega vandaðir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 16.800
Teg. 2921 Einstaklega vandaðir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 15.670
Teg. 2921 Einstaklega vandaðir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 15.670
Teg. 2881 Einstaklega vandaðir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 15.800
Teg. 2942 Einstaklega vandaðir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 15.800
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
GJÖF SEM GLEÐUR
Teg Selena - létt fylltur í D,E,F,G
skálum á kr. 6.850,- buxur við á kr.
2.680,-
Teg. SELENA - push up fyrir þær
stærri í stærðum 75-95 B,C,D,E,F,G á
kr. 6.850 - Verð kr. 2.680
Teg Belinda - glæsilegur kjóll í
S,M,L á kr. 7.950,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
!!"#$
!!
Enn á lífi
Í minningargrein Gylfa Guðjónssonar um séra Baldur
Vilhelmsson sem birtist 4. nóvember síðastliðinn varð honum
það á að segja Rebekku Ágústsdóttur frá Múla látna. Hið rétta
er að hún er enn á lífi og vill Gylfi koma á framfæri innilegri
afsökunarbeiðni til allra hlutaðeigenda.
LEIÐRÉTT
að nú skyldi flogið en ekki siglt.
Það var glaðbeittur hópur sem
steig um borð í Gullfaxa eftir að
hafa sungist á við Karlakór
Reykjavíkur, sem mætti á flug-
völlinn til að kveðja bræðrakór
sinn og hvetja fyrir þessa æv-
intýraför.
Einn þessara söngmanna,
sem þá stóð á tvítugu, var Björn
Jónatan Emilsson, mætur félagi
sem Fóstbræður sjá nú á bak.
Björn var félagi, sem um rösk-
lega sextíu ára skeið kom við
sögu félagsins og málefni þess
með margvíslegum og eftir-
minnilegum hætti.
Þetta var árið sem Björn gekk
í kórinn, beint inn í þessa miklu
ævintýraferð, fullur tilhlökkunar
til þeirra stóru stunda sem vænt-
anlegar voru. En Björn átti eftir
að upplifa margar aðrar stórar
stundir með Fóstbræðrum á
löngum ferli: Söngsigur Fóst-
bræðra í kórakeppnum í Wales
árið 1972, í Llanghollen árið
1987, í Prag árið 2001, sem og
margvíslegar aðrar eftirminni-
legar stundir á ferðalögum kórs-
ins bæði hér heima og erlendis.
Þá var Björn einn Fjórtán Fóst-
bræðra sem áttu gríðarlegum
vinsældum að fagna á Íslandi um
langt árabil. Björn bjó yfir fal-
legri barítónrödd og söng alla tíð
fyrsta bassa í kórnum og þau
voru ófá skiptin sem hann tókst
á við einsöngshlutverk, sem
hann skilaði með mikilli prýði.
Björn gegndi um árabil trún-
aðarstörfum fyrir kórinn og
lagði sitt af mörkum í þeirri
vinnu og setti gjarnan hag Fóst-
bræðra ofar einkahag.
Björn var enginn venjulegur
maður og átti sér margar hliðar,
bjó yfir margvíslegum kostum
og kunnáttu þó ekki tækist alltaf
að samhæfa. Samhljómurinn
sem hann átti svo auðvelt með í
söng sýndist manni oft ekki eins
auðveldur utan söngsins. Stund-
um fannst manni að Björn væri
einfari en þegar kom að Fóst-
bræðrum var hann hópsál. Trú-
mennska hans við félag sitt var
einlæg og traust.
Við sem sungið höfum með
Fóstbræðrum þekkjum að góður
samhljómur kórs er ekki aðeins
tilkominn af hljómnum sjálfum,
heldur því bræðraþeli sem ríkir
milli manna og að menn upplifi
það máttuga Fóstbræðralag,
sem okkur öllum er svo kært og
við viljum að fylgi okkur til
hinsta dags.
Það er líklega einsdæmi í
menningu að sjálfbærar menn-
ingarstofnanir sem bornar eru
uppi af óeigingjörnu starfi kór-
félaga, kynslóð fram af kynslóð,
nái í nálægt hundrað ár að
halda uppi svo metnaðarfullu og
þróttmiklu starfi sem Fóst-
bræður hafa gert. Menn koma
og fara, sumir staldra stutt við
en aðrir lengur. Björn Emilsson
var einn þeirra.
Fóstbræður kveðja nú góðan
félaga, sem alla tíð stóð í
fremstu röð í þjónustu við þá
list, sem viðleitni okkar er helg-
uð. Að leiðarlokum þökkum við
fyrir þann ríka vinarhug sem
Björn Emilsson sýndi okkur og
félagi sínu alla tíð.
F.h. Fóstbræðra,
Eyþór Eðvarðsson.