Morgunblaðið - 10.12.2014, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Guðbjörg Sveinfríður Pálmarsdóttir er kennari í Heiðarskóla íReykjanesbæ og kennir 2. bekk. Hún útskrifaðist árið 2003frá Kennaraháskólanum og er búin að kenna í Heiðarskóla
síðan þá. „Nú er fullt að gera við að undirbúa jólin og föndra með
krökkunum. Svo er ég svo lánsöm að ég fæ að kenna unglingum í 8.-
10. bekk bakstur, en það er valáfangi í skólanum. Það er gaman að
geta unnið bæði með litlu krökkunum og unglingunum.“
Fríða, eins og hún er oftast kölluð, er Hafnfirðingur en hefur búið
í Njarðvík og Keflavík í 30 ár. Maðurinn hennar er úr Garðinum og
heitir Frímann Þór Þórhallsson og er verslunarstjóri hjá Bílanaust í
Reykjanesbæ. Börn þeirra eru þrjú: Daníel Ómar, f. 1981, doktor í
efnafræði og vinnur við Stanford-háskóla; Bjarki Þór, f. 1988, nemi í
Tækniskólanum og vinnur hjá Vodafone, og Andrea Ósk, f. 1990,
lögfræðinemi við Háskólann í Reykjavík og vinnur í Landsbank-
anum. Fríða á líka barnabarn úti í Ameríku, Lennon Loka Daníels-
son, sem fæddist á árinu. „Við heimsóttum fjölskylduna úti í sumar
og vorum hjá þeim í þrjár vikur. Þau koma svo til okkar eftir ára-
mót og þá ætla ég að slá til afmælisveislu.“
Fríða var ein af stofnendum Kiwanis-hreyfingarinnar Vörðu í
Reykjanesbæ, en hefur dregið sig í hlé frá félagsmálunum að sinni.
„Fjölskyldan er aðaláhugamálið og svo auðvitað vinirnir. Hef verið
með sömu vinkonunum í saumaklúbb í 25 ár og við héldum upp á 20
ára saumaklúbbsafmæli með því að skella okkur á U2-tónleika í
Dublin árið 2009. Á næsta ári er stefnan að skella sér í aðra ferð
saman.“
Guðbjörg S. Pálmarsdóttir er 50 ára í dag
Fjölskyldan á Golden Gate-brúnni Frá vinstri: Daníel Ómar,
Lauren, Frímann Þór, Andrea Ósk, Guðbjörg og Bjarki Þór.
Fær barnabarnið í
heimsókn eftir áramót
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Benedikt Áki Árnason Cosser fæddist 17. júlí 2014 kl. 9.34. Hann vó
3.002 g og var 47 cm langur. Foreldrar hans eru Helga Valdís Cosser og Árni Páll
Benediktsson.
Nýir borgarar
S
veinn Víkingur fæddist að
Búðum við Fáskrúðs-
fjörð 10.12. 1934, en for-
eldrar hans bjuggu á
Vattarnesi við mynni
Reyðarfjarðar: „Þetta var ævin-
týrastaður í faðmi náttúrunnar fyr-
ir okkur börnin og ekki dró úr
gleðinni að fá að skreppa með eldri
bræðrum sínum á Tríó, árabáti föð-
ur okkar, og veiða í soðið.
Minnisstæðastur er mér þó góð-
viðrisdagur, þann 10. maí 1940, er
mikil breyting varð á staðnum.
Gríðarstórt skip lá fyrir landi og á
land voru gengnir fleiri menn en ég
hafði nokkurn tímann áður séð
saman komna. Það vakti svo enn
meiri furðu að allir voru þeir í eins
fötum og bulluðu látlaust einhverja
vitleysu. Mér varð nóg boðið og
hraðaði mér heim. En þá tók ekki
betra við því að móðir mín stóð úti
á tröppunum og bullaði af mikilli
ákefð við einn þessara manna sem
var að vísu í miklu flottari fötum en
hinir. Þetta kórónaði leiðindin og
ið um kring og flutti um það erindi
í útvarpið. Það varð til þess, að ég
var ráðinn kaupamaður, hesta-
sveinn og kúasmali að Sörlastöðum
í Fnjóskadal. Þar var mér tekið
opnum örmum og viljinn tekinn
fyrir verkið hjá 11 ára dreng sem
vildi standa sig vel í því sem honum
var trúað fyrir. Þarna var ég í sex
lærdómsrrík sumur sem urðu mér
ómetanleg hvatnig og styrkur síðar
á lífsleiðinni.“
Sveinn lauk grunnskólanámi frá
Miðbæjarbarnaskólanum, lands-
prófi frá Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar, lauk prófi úr 3. bekk MR
1953 og útskrifaðist frá Kennara-
skóla Íslands vorið 1956.
Sveinn kenndi við Melaskólann í
einn vetur, var skólastjóri við
Barna- og unglingaskólann á
Drangsnesi við Steingrímsfjörð í
sex ár, kenndi einn vetur við
Kleppjárnsreykjaskóla, annan vetur
við Héraðsskólann í Reykholti og
var þar síðan fastráðinn kennari til
1994, þá kominn á eftirlaunaaldur.
Sveinn Víkingur Þórarinsson kennari 80 ára
Við Barnafossa Sveinn Víkingur og Guðrún Elsa með börnum Árna Víkings, Stefáni, Finni og Brynju Alexöndru.
Grunnskólakennari á
landsbyggðinni í 50 ár
Vinátta Sveinn með folanum Glæsi
sem hann hefur verið að temja.
lítill drengur barðist við grátinn.“
Nokkrum árum síðar flutti fjöl-
skyldan til Búða. Þar hófst skóla-
ganga Sveins. sem stóð þar í einn
vetur því síðan var förinni heitið til
Reykjavíkur.
„Móður minni fannst ekki heppi-
legt að börn lékju sér á mölinni ár-
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isSíðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_4
5.
11
.1
4
Veit á vandaða lausn
20%
AFSLÁTTURÍ NÓVEMBER
Potturinn og pannan
í jólasteikinni
Hágæða stálpottar og pönnur fyrir þá sem eru metnaðar-
fullir í eldhúsinu. Má nota á allar gerðir af hellum, þ.m.t.
spanhellur. Mikið úrval af öllum stærðum og gerðum.
Þess má geta að pottarnir frá Swan eru mikið notaðir af
atvinnukokkum á helstu veitingastöðum landsins.