Morgunblaðið - 10.12.2014, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Eftir það var hann stunda- og for-
fallakennari við Kleppjárnsreykja-
skóla til 2008.
Sveinn sat í hreppsnefndum
Hálsasveitarhrepps og Kaldrana-
neshrepps og sinnti ýmsum nefnd-
arstörfum í Hálsasveitarhreppi,
setu í skólanefnd Kleppjárnsreykja-
skóla og byggingarnefnd. Þá var
hann prófdómari við Kleppjárn-
reykjaskóla í nokkur ár.
„Ég hef haft áhuga á flestum list-
greinum, ekki síst myndlist og rit-
list. Móðurmálið hefur mér alltaf
verið hugleikið, sem og virkjun
hugkvæmni, sköpunargáfu og rök-
hugsunar. Þess vegna hef ég haft
áhuga á sálfræði og heimspeki. En
svo má ekki gleyma hesta-
mennskunni.“
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Guðrún Elsa
Þorsteinsdóttir, f. 19.9. 1933,
grunnskólakennari. Foreldrar
hennar voru Þorsteinn Jónsson, f.
5.4. 1896, d. 18.7. 1991, bóndi og rit-
höfundur að Úlfsstöðum í Borg-
arfirði, og Áslaug Aðalheiður
Steinsdóttir, f. 5.9. 1907, d. 11.7.
1998, húsfreyja.
Börn Sveins og Guðrúnar Elsu
eru Þorsteinn Víkingur Sveinsson,
f. 29.6. 1958, húsasmiður í Kópavogi
en kona hans er Olga Markelova,
doktor í norænum bókmenntafræð-
um og er sonur Þorsteins Hallur, f.
1991; Þórarinn Víkingur Sveinsson,
f. 28.9. 1959, byggingameistari í
Reykjavík og eru dætur hans Arn-
rún , f. 1988, og Heiðrún, f. 1995, en
fósturdóttir Guðrún Árnadóttir;
Árni Víkingur Sveinsson, f. 30.5.
1967, doktor í skólasálfræði en
kona hans er Diana Wilson, kennari
og námsráðgjafi og eru börn þeirra
Brynja Alexandra, f. 1996, Stefán,
f. 2002, og Finnur, f. 2006.
Bræður Sveins: Grímur Víkingur
Þórarinsson, f. 28.5. 1923, d. 9.12.
1981, verkamaður og sjómaður;
Eggert Jochum Víkingur, f. 9.9.
1924, d. 21.8. 1990. leigubílstjóri og
sjómaður; Árni Þór Þórarinsson
Víkingur, f. 19.4. 1925, d. í ágúst
2006, prentari.
Foreldrar Sveins voru Þórarinn
Grímsson Víkingur, f. 6.2. 1880, d.
24.2. 1961, bóndi, skrifstofumaður
og rithöfundur í Seattle í Bell-
ingham í Bandaríkjunum, í Vatt-
arnesi við Reyðarfjörð, á Búðum
við Fáskrúðsfjörð og í Reykjavík
lengst af, og Ástríður Guðrún Egg-
ertsdóttir, 24 11. 1894, d. 29.7. 1981,
húsfreyja.
Úr frændgarði Sveins Víkings Þórarinssonar
Sveinn Víkingur
Þórarinsson
Sólveig
Jónsdóttir
húsfr. í Ytra-
Garðshorni
Kristján Jónsson
b. í Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal
Guðrún Kristjánsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Eggert
Jochumsson
kennari og
sýsluskrifari á
Ísafirði
Ástríður Guðrún Eggertsdóttir
húsfr. í Seattle, í Vattarnesi, á
Búðum og í Rvík
Jochum
Magnússon
b. í Skógum í
Þorskafirði
Sveinn Víkingur
pr. á Dvergasteini og á
Seyðisfirði og rith.
Óli Jón Kristjánsson
b. á Víkingavatni
Árni Óli
rith. og ritstj. Lesbókar Morgunblaðsins
Guðmundur Kristjánsson
b. í Lóni í Kelduhverfi
Kristjana Anna
Eggertsdóttir
húsfr. í Laugarási
Matthías
Eggertsson
pr. í Grímsey
Guðmundur Eggert
Mattthíasson
organisti í
Kópavogskirkju
Guðný
Guðmundsdóttir
konsertmeistari
Björn Guðmundsson
hreppstj. í Lóni
Árni Björnsson
tónskáld
Gunnar Sveinsson
skjalavörður við
Þjóðskjalasafnið
Sigurveig Guðmundsdóttir
húsfr. í Ærlækjarseli
Kristján Árnason
hreppstj. í Ærlækjarseli í Öxarfirði
Kristjana Guðbjörg Kristjánsdóttir
húsfr. í Garði
Grímur Þórarinsson
b. í Garði í Kelduhverfi
Þórarinn Grímsson Víkingur
b., skrifstofum. og rith. í Seattle, í
Vattarnesi, á Búðum og í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. á Víkingavatni
Þórarinn Grímsson
b. á Víkingavatni
Sigurður Sigurmundsson
b. og fræðim. í Hvítárholti
Eggert B. Sigurmundsson
skipstj.
Jón Laxdal Arnalds
borgardómari og
ráðuneytisstj.
Eyþór
Arnalds
fram-
kvæmdastj.
Ragnar Arnalds rith.
og fyrrv. ráðherra Elín Laxdal
tónlistar-
kennari í
Rvík
Matthías
Jochumsson
þjóðskáld
Steingrímur
Matthíasson
héraðslæknir
á Akureyri
Þorvaldur
Steingrímsson
fiðluleikari
Sigríður
Þorvaldsdóttir
leikkona
Guðrún
Laxdal
kaupkona
í Rvík
Theodóra Thoroddsen
skáldkona
Ásthildur Jóhanna
Guðmundsdóttir Thorsteinsson
húsfreyja
Muggur
listamaður
Guðmundur Einarsson
prófastur og alþm.
á Kvennabrekku
Þóra
Einarsdóttir
húsfr. í Skógum
Sturlaugur fæddist á Skipumvið Stokkseyri 10.12. 1895.Foreldrar hans voru Jón
Sturlaugsson, hafnsögumaður og
traustur og farsæll formaður á
Stokkseyri, og k.h., Vilborg Hann-
esdóttir frá Skipum.
Sturlaugur kvæntist 1929 Guð-
borgu Þórðardóttur frá Laugabóli
við Ísafjarðardjúp og eignuðust þau
tvo syni, Jón og Þórð, sem báðir
störfuðu með föður sínum við fyrir-
tæki hans og varð Þórður þar síðan
helsti arftaki föður síns.
Sturlaugur ólst upp á Stokkseyri,
fór 12 ára til sjós á opnum bátum og
mótorbátum frá Stokkseyri og Vest-
mannaeyjum, var formaður í þrjár
vertíðir og auk þess vélamaður og
var sjómaður á fiskiskútum og tog-
urum frá Reykjavík frá 14 ára aldri
og þar til hann var 27 ára.
Sturlaugur sótti um inngöngu í
Stýrimannaskólann árið 1920, var
synjað um skólavist vegna litblindu,
gaf þá sjómennskuna upp á bátinn,
hóf nám við Verzlunarskóla Íslands,
flutti til Reykjavíkur 1923, lauk próf-
um frá Verslunarskólanum 1924,
sinnti verslunarstörfum til 1926,
stofnaði þá fyrirtækið Sturlaugur
Jónsson & Co, umboðs- og heild-
verslun, og starfrækti það síðan,
fyrst með Guðmundi Guðmundssyni,
síðan með Jóni Helgasyni 1930-45 en
rak síðan fyrirtækið einn eftir það.
Fyrirtækið, sem enn er í rekstri,
varð snemma leiðandi í innflutningi
á þýskum gæðavörum, einkum vél-
um í báta og bifreiðir. Það flutti m.a.
inn fyrstu tvígengisbátadíselvél-
arnar (Delta) árið 1926 og síðan fjór-
gengisbátadíselvélar 1934. Þá fluttu
þeir inn Mercedes Benz-bifreiðir,
fyrsta bergmálsfiskileitartækið í
togara og fyrstu fisksjárnar 1950.
Hann var áhugamaður um tónlist og
flutti einnig inn þýsk gæðahljóðfæri.
Sturlaugur þótti traustur í við-
skiptum, heilsteyptur, samvisku-
samur og stefnufastur. Hann var
fjölskyldurækinn, tók þátt í félags-
málum stéttar sinnar, var alla tíð
áhugasamur um átthaga sína, var
einn stofnenda Stokkseyringafélags-
ins og fyrsti formaður þess.
Sturlaugur lést 13.6. 1968.
Merkir Íslendingar
Sturlaugur
Jónsson
100 ára
Sigríður Pétursdóttir
90 ára
Svava Gísladóttir
85 ára
Arnór Haraldsson
80 ára
Ásta Kristín Hjaltalín
Bogi Arnar Finnbogason
Dagbjartur Sigursteinsson
Kristín Valgerður
Ellertsdóttir
75 ára
Fríða Ásbjörnsdóttir
Guðrún Rannveig
Pétursdóttir
Selma Jónsdóttir
Svavar Gunnarsson
70 ára
Aiguo Tang
Arnar Guðmundsson
Ásdís Gunnarsdóttir
Guðni Þ. Skúlason
Helga Helgadóttir
Hjördís Edda Karlsdóttir
Sigurður
Bergsteinsson
60 ára
Halldór Hauksson
Jón Þorvaldur Waltersson
Lína Dagbjört Friðriksdóttir
Sveinfríður G.
Þorvarðsdóttir
50 ára
Bjarnfríður Vala
Eysteinsdóttir
Elísabet Valgerður
Magnúsdóttir
Guðmundur Börkur
Thorarensen
Jóhanna Bech
Ásgeirsdóttir
Oddný Friðriksdóttir
Ólöf Björg Óladóttir
Sverrir Daníel
Halldórsson
Zsuzsanna Budai
40 ára
Auður Svanhildur
Ásgeirsdóttir
Daniel Tomasz Olszewski
Jóhannes Már
Marteinsson
Jóhann Már Jónsson
Jón Stefán Scheving
Kristín María Stefánsdóttir
Magnús Þór Eggertsson
Miroslav Stojanovic
Sóley Björk Sturludóttir
Vytautas Rubezius
Þorgerður Helga
Árnadóttir
30 ára
Birkir Viðar Reynisson
Hafsteinn Jónsson
Hafsteinn Júlíusson
Hrannar Smári
Hilmarsson
Íris Gefnardóttir
Kjartan Örn Óskarsson
Lísa María Markúsdóttir
Michael Gluszuk
Vignir Ófeigsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sveinbjörn ólst
upp í Keflavík, en er nú
búsettur á Iðu II í Bisk-
upstungum og sér um
laxeldi á Laugum við
Eystri-Rangá.
Systkini: Birta Ósk
Gunnarsdóttir, f. 1979, og
Helga Kristín Skúladóttir.
Foreldrar: Hlíf Matthías-
dóttir, f. 1958, matráðs-
og veitingakona, og Skúli
Sigurðsson, f. 1955,
stöðvarstjóri Laxeldisins á
Laugum.
Sveinbjörn
Skúlason
30 ára Matthildur ólst
upp á Akureyri, býr í
Reykjavík, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík
og er nú í fæðingarorlofi.
Maki: Herbert Canrom, f.
1978, starfsmaður hjá
Olís.
Börn: Hayley, f. 2008;
Mason, f. 2012; óskírð, f.
2014.
Foreldrar: Stefán Sig-
urðsson, f. 1944, og Ing-
unn Árnadóttir, f. 1948.
Þau búa í Reykjavík.
Matthildur
Stefánsdóttir
30 ára Ólafur ólst upp í
Hafnarfirði, er þar búsett-
ur og er járnsmiður hjá
Járnsmíði í Hafnarfirði.
Maki: Tinna Sif Bergþórs-
dóttir, f. 1985, í fæðingar-
orlofi.
Börn: Bryndís Ösp , f.
2005; Gunnar Breki, f.
2007; Viktor Orri, f. 2012,
og óskírður, f. 2014.
Foreldrar: Ómar Ósk-
arsson, f. 1963, og Erla
María Kristinsdóttir, f.
1963.
Ólafur Ingi
Ómarsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is