Morgunblaðið - 10.12.2014, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 2014
Kvikmyndin Pride var sigursæl
þegar bresku BIFA-verðlaunin,
verðlaun sjálfstæðra kvikmynda-
framleiðenda þar í landi, voru af-
hent. Hreppti hún ekki aðeins flest-
ar tilnefningar heldur líka flest
verðlaun, meðal annars sem besta
kvikmyndin og verðlaun fyrir bestu
leikara í auka-kvenhlutverki,
Imelda Staunton, og auka-
karlhlutverki en þau hreppti And-
rew Scott sem tilkynnt var í vikunni
að léki í næstu James Bond-kvik-
mynd. Pride fjallar um stuðning
samkynhneigðra baráttumanna við
verkfall velskra námumanna á ní-
unda áratugnum.
Benedict Cumberbatch fékk sér-
stök verðlaun fyrir fjölbreytileg-
ustu hlutverkin á árinu, besti leik-
arinn var valinn Brendan Gleeson í
Calvary og besta leikkonan Gugu
Mbatha-Raw fyrir Belle. Yann
Demange var valinn besti leikstjór-
inn fyrir kvikmyndina ’71.
Pride hreppti flest BIFA-verðlaun
AFP
Leikarinn Benedict Cumberbatch ásamt unn- ustu sinni, Sophie Hunter.
Textarnir okkar eru þess eðl-is að þeir koma frá ein-hverjum stað sem er ekki íhöfðinu á okkur. Þeir flæða
frá hjartanu eða jafnvel móðurlífinu
og því er tengingin við textana mjög
djúp,“ sagði Sigríður Eir Zophonías-
ardótir sem skipar Hljómsveitina
Evu með Völu Höskuldsdóttur, í
samtali við Morgunblaðið á dög-
unum um plötu þeirra Völu, Nóg til
frammi. Titillinn gefur til kynna
hver rauði þráðurinn er í textagerð-
inni, reynslu-
heimur kvenna
og þar er kom-
ið víða við í al-
vöru, gríni og
kaldhæðni.
Hljómsveitin
skilgreinir sig
sem femínískt hinsegin band og í
einu laga plötunnar, „Hver er kall-
inn?“, er sungið hárbeitt um for-
dóma, eða öllu heldur skilningsleysi
fólks í garð samkynhneigðra, í þessu
tilfelli lesbía, og fornaldarlegar hug-
myndir sem margir hafa um hlut-
verk kynjanna. „Svo þau spurja hver
er kallinn?/ Er það kannski þú, því
ég er of falleg/svo þau spyrja hver er
kallinn? er það kannski ég, því ég er
með stórt leg?“ segir m.a. í texta.
Beitt ádeila og ískrandi skemmti-
legur húmor.
Lögin eru nær öll róleg á plötunni,
notaleg og mörg hver falleg, söngur
þeirra Sigríðar og Völu fagur og
raddir þeirra falla vel hvor að ann-
arri. Útsetningar eru eins einfaldar
og hugsast getur, kassagítarleikur
og söngur og lagasmíðar eru ágæt-
ar, margar grípandi en smellur plöt-
unnar er án efa lokalagið sem ómað
hefur í útvarpi vikum saman, „Sjálf-
stæðar konur eru sjarmerandi“. Þar
fer mikill eyrnaormur, frábær texti
og grípandi lag með skemmtilegri
útsetningu þar sem ekki heyrist að-
eins söngur og kassagítar heldur
líka bassi, tamborína, hljóðgervill og
slagverk. Greina má fingraför Svav-
ars „Prinspóló“ Péturs á því og ósk-
andi væri að fleiri slík lög væru á
plötunni því hinar ofureinföldu út-
setningar gera hana helst til eintóna.
Aðall plötunnar er fyrst og fremst
textagerðin sem er oftar en ekki
hugvekjandi og undirtónninn alvar-
legur þó slegið sé á létta strengi.
Sem dæmi má nefna texta lagsins
„Ég er kona“ þar sem sungið er um
konu sem allir hljóta að kannast við,
konu sem hugsar um alla aðra en
sjálfa sig, biðst fyrirgefningar á því
að maturinn sé vondur og ítrekar að
það sé nóg til frammi. „Situr einhver
hér? Er ég fyrir þér?“ spyr hin fórn-
fúsa kona.
Að lokum skal minnst á lag sem er
eitt það fallegasta á plötunni og laust
við grín. Það er óður til ónefndrar
ömmu og að því er virðist á dán-
arbeði. „Og þú mátt liggja dreymin/
og þú mátt svífa um geiminn/og
mála allan heiminn/allan heiminn
amma mín“ er sungið. Fallegur
ömmuóður það, þó að einhverjum
þyki hann eflaust heldur væminn.
Ömmum hefur ekki verið sinnt nógu
vel í íslenskri tónlist og gott að
Hljómsveitin Eva bæti úr því.
Morgunblaðið/Þórður
Eva Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir.
Beint frá hjarta
og móðurlífi
Þjóðlagapopp
Hljómsveitin Eva - Nóg til frammi
bbbmn
Breiðskífa Hljómsveitarinnar Evu sem
Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Vala
Höskuldsdóttir skipa og eru höfundar
laga og texta. Svavar Pétur Eysteinsson
sá um hljóðritun og Axel Árnason um
hljóðblöndun og tónjöfnun.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
Lestrarfélagið
Krummi hefur
kynnt hinar ár-
legu tilnefningar
til Rauðu hrafns-
fjaðrarinnar,
sem veitt er fyrir
forvitnilegustu
kynlífslýsingu
ársins 2014 í ís-
lenskum bók-
menntum. Til-
nefndar lýsingar er að finna í
Segulskekkju eftir Soffíu Bjarna-
dóttur, í Hverafuglum eftir Einar
Georg, Elíasarmálum eftir Elías
Mar, Rogastanz eftir Ingibjörgu
Reynisdóttur, Gæðakonum eftir
Steinunni Sigurðardóttur, Engla-
ryki eftir Guðrúnu Evu Mínervu-
dóttur, Hrímlandi eftir Alexander
Dan Vilhjálmsson og Ástarmeist-
aranum eftir Oddnýju Eiri Ævars-
dóttur.
Í tilkynningu
segir að óvenju-
mikið sé um kyn-
lífslýsingar í
skáldverkum árs-
ins „og má ef-
laust þakka
Rauðu hrafns-
fjöðrinni þá
ánægjulegu þró-
un, enda hefur
kynlífslýsingum
fjölgað jafnt og þétt frá því verð-
launin voru fyrst veitt fyrir átta ár-
um“.
Rithöfundurinn Sjón hlaut Rauðu
hrafnsfjöðrina 2013. Fjöðrin hefur
verið veitt átta sinnum og eru aðrir
verðlaunahafar Eiríkur Örn Norð-
dahl, Elísabet Jökulsdóttir, Her-
mann Stefánsson, Steinar Bragi,
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir og
Megas, Sigríður Jónsdóttir og Auð-
ur Ava Ólafsdóttir.
Kynlífslýsingar í nýjum skáldverkum til-
nefndar til Rauðu hrafnsfjaðrarinnar
Steinunn
Sigurðardóttir
Einar
Georg
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
7
12
POWERSÝNING
KL. 10
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
L
MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 5 - 7 - 10 (p)
MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 5
DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:20
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar