Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Jólablótshald ásatrúarmanna hófst í gær með
helgistund við minnisvarða Sveinbjörns Bein-
teinssonar, fyrsta allsherjargoða Ásatrúarfélags-
ins, á lóð félagsins. Að sögn Hilmars Arnar Hilm-
arssonar allsherjargoða hefjast framkvæmdir við
hof Ásatrúarfélagsins fljótlega og vonast hann til
að það verði í febrúar eða mars. Hann segir ríka
hefð meðal ásatrúarmanna fyrir því að halda
langar og miklar veislur á jólunum. ash@mbl.is
Helgistund á jólablóti Ásatrúarfélagsins
Morgunblaðið/Golli
Fjöldi fólks kom saman við minnisvarða Sveinbjörns Beinteinssonar á jólablóti ásatrúarmanna
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Ísland er langt frá því að nálgast þol-
mörk sín hvað fjölda erlendra ferða-
manna varðar,
samkvæmt þeim
upplýsingum sem
fram komu í er-
indi Halldórs
Benjamíns Þor-
bergssonar,
framkvæmda-
stjóra við-
skiptaþróunar
Icelandair Group.
Erindið flutti
Halldór á fjár-
festafundi félagsins og leitaðist þar
við að svara því hvort fjölgun er-
lendra ferðamanna til Íslands væri
raunverulegt áhyggjuefni.
Heildarfjöldinn skiptir minna
máli en dreifing yfir árið
„Menn þurfa að horfa á þetta frá
réttu sjónarhorni og þetta er tilraun
til að gera það. Heildarfjöldinn yfir
árið skiptir minna máli,“ segir Hall-
dór. Fjöldi ferðamanna hefur þre-
faldast yfir háannatímann frá árinu
2003, þegar erlendir ferðamenn voru
15 þúsund talsins á dag, en árið 2014
er fjöldinn 45 þúsund á dag yfir há-
annatímann en 10 þúsund ferða-
menn að meðaltali á dag utan há-
annatíma. Hefur ferðamönnum sem
eru á Íslandi að meðaltali á hverjum
sumardegi því fjölgað um 30 þúsund
á tíu árum. Á sama tíma eru um 20
þúsund Íslendingar erlendis yfir há-
sumarið, þ.e.a.s. að hreinu áhrifin
eru tiltölulega lítil.
„Ef skoðuð er fjölgun Íslendinga
sl. tíu árin þá sést að náttúruleg
fjölgun Íslendinga er meiri en fjölg-
un ferðamanna sem eru á Íslandi á
hverjum degi,“ segir Halldór en Ís-
lendingum hefur fjölgað um 36 þús-
und á tímabilinu.
Þegar talið berst að vinsælum
ferðamannastöðum segir Halldór
þar vera orðið þétt en það sé fyrst og
fremst skipulagsmál. Að þessi mikli
fjöldi ferðamanna, sem vinsælir
ferðamannastaðir ná ekki að anna,
sé einungis áskorun yfir háannatím-
ann. „Meira að segja á þessum þrem-
ur mánuðum er þetta vandamál ekki
alla dagana og á engum degi er þetta
vandamál allan sólarhringinn, held-
ur einungis takmarkaðan tíma úr
hverjum degi,“ segir Halldór og bæt-
ir við að þetta snúist fyrst og fremst
um innra skipulag greinarinnar og
það þurfi einfaldlega að stýra um-
ferð betur. Aðalatriðið sé að skoða
hlutina frá réttu sjónarhorni.
Ísland langt frá þolmörkum
Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Icelandair Group segir að það þurfi að
horfa á fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands frá réttu sjónarhorni
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Morgunblaðið/Ómar
Fjöldi 45 þúsund ferðamenn eru á
Íslandi hvern dag yfir háannatíma.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Nýir kjarasamningar grunnskóla-
kennara hafa sett strik í reikning
reksturs margra smærri sveitarfé-
laga. Kolfinna Jóhannesdóttir sveit-
arstjóri Borgarbyggðar vakti athygli
á málinu en sveitarfélagið stóð
frammi fyrir 290 milljóna króna gati
við gerð fjárhagsáætlunar, þar af
voru 180-190 milljónir tilkomnar
vegna kjarasamninganna.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir sveitarstjórnarmenn úr minni
sveitarfélögum hafa komið að máli
við sambandið
vegna þessa.
„Bæði höfum
við heyrt af þessu
frá mörgum
sveitarfélögum
og þetta var líka
rætt í tengslum
við samningana.
Það var lögð mikil
áhersla, í
tengslum við
þessa samninga, á það að á móti tölu-
verðri launahækkun kæmu hagræð-
ingarmöguleikar með breyttum
vinnutíma kennara,“ segir Halldór
og bætir við að alla jafna sé auðveld-
ara að ná hagræðingu í stærri sveit-
arfélögum en dæmi séu um minni
sveitarfélög þar sem breytt fyrir-
komulag gangi upp. Það sé misjafnt
eftir samsetningu grunnskólanna
innan sveitarfélagsins hve mikil hag-
ræðing náist.
Aðspurður hvort það sé grundvöll-
ur fyrir því að samið sé fyrir hönd
allra sveitarfélaga þegar rekstur
þeirra er jafnfjölbreyttur og raun
ber vitni segir Halldór að umrædd
sveitarfélög væru í sömu stöðu ef
hvert sveitarfélag semdi fyrir sig
sjálft. „Sveitarfélag sem væri að
bjóða lægri laun myndi bara missa
frá sér kennara.“
Kjarasamningar kennara
þyngja róður sveitarfélaga
Auðveldara að ná fram hagræðingu í stærri sveitarfélögum
Halldór
Halldórsson
Tólf hestar fund-
ust drukknaðir í
Bessastaðatjörn í
gærmorgun.
Hestarnir voru
þar á haustbeit,
sjö þeirra voru í
eigu Íshesta en
fimm í eigu félaga
í Hestamanna-
félaginu Sóta.
„Þau hafa greinilega ráfað þarna
út á ísinn og hann gefið sig undan
þeim. Þetta er bara hræðilegt slys,“
segir Einar Þór Jóhannsson, um-
sjónarmaður hesthúsa Íshesta.
Einar telur líklegt að slysið hafi
átt sér stað í óveðrinu á þriðjudag-
inn. Hestunum var smalað í fyrra-
dag, þá kom í ljós að það vantaði í
hópinn og hófst leit.
Í gærmorgun flaug þyrla Land-
helgisgæslunnar yfir svæðið er hún
var á leiðinni í reglubundið eftirlits-
og gæsluflug og sá áhöfnin þá hest-
ana í vatninu. Leitarmenn fundu þá
á svipuðum tíma. „Það er frosið yfir
en það sést aðeins í þá,“ segir Einar
sem telur tilfinningalegt tjón eig-
enda og þeirra sem umgengust dýrin
vera mun meira en fjárhagslegt tjón.
„Maður hefur kannski misst einn og
einn hest, en ekki svona. Þetta er
náttúrlega algjört einsdæmi.“
Reynt verður að sækja hrossin í
dag og segir Einar að brjóta þurfi
upp ísinn til að komast að þeim, en
þau eru frosin undir ísnum og sést
aðeins í efsta hluta þeirra.
Fundu
hrossin
drukknuð
Bessastaðir 12
hross féllu í tjörn.
Reyna að ná hest-
unum upp í dag
Í dag verður norðaustanátt með
éljagangi eða snjókomu á Norður-
og Austurlandi en bjart með köflum
suðvestanlands, samkvæmt spá Veð-
urstofu Íslands. Víða verður 0 – 5
stiga frost og hvassast verður norð-
vestan til. Það bætir ekki í snjókomu
á höfuðborgarsvæðinu næstu daga
og áfram verður frost. Búist er við
hvítum jólum, en síðan leiðindaveðri
á öðrum og þriðja í jólum um nær
allt land með austan og norðaustan
stormi eða roki, snjókomu og ófærð.
Mesta snjókoman verður vestan- og
austanlands. Draga mun úr henni
28. desember, en áfram verður
hvasst og éljagangur austanlands.
Von á hvít-
um jólum