Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000 www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Tenerife Frá kr.119.900 m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 119.900 á Playa Real Resort m.v. 2 fullorðnir í mini svítu. 6. janúar í 8 nætur Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Við eigum bara eftir að kaupa jóla- gjöfina fyrir konurnar. Það er gott að geta geymt þær þar til undir lokin. Maður vinnur best undir pressu. Málið er bara að finna eitthvað nógu dýrt og á síðustu stundu,“ sagði Kar- vel Pálmason í gamansömum tón þegar blaðamaður náði tali af honum og Helga Má Hannessyni skömmu eftir að þeir höfðu hist á förnum vegi í Kringlunni. „Ég er búinn að ákveða hvað það verður en konan finnur allt heimavið og því bíð ég með þetta þar til rétt fyrir jól,“ segir Helgi Már og hlær við. Ekki varð vart við títtnefnt jólastress hjá þeim félögunum og á bak við hlógu konurnar að þeim en þverneituðu blaðamanni um viðtal. Allt stressið farið Lesa mátti mismiklar áhyggjur úr andliti fólks. Gjarnan virtust þeir sem voru einir á ferð flýta sér meira en þeir sem ferðuðust í hóp. Sumir þeirra óðu um klyfjaðir pokum og úr jakkavasanum mátti vel ímynda sér reykinn stíga upp vegna núnings af kortanotkun. Önnur hegðun ein- kenndi hjarðir á sléttum versl- unarmiðstöðvarinanar. Þær fóru gjarnan um með hægð og engu líkara en að bið eftir aðfangadegi væri það eina sem sem væri framundan. Und- ir það tók myndarlegur mæðgnahóp- ur þriggja ættliða sem rölti um Kringluna, fimm konur saman. „Við erum löngu búnar að öllu. Kláruðum þetta í nóvember og núna er allt stress farið,“ sagði Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir. Kristín Skúladóttir, móðir Guðrúnar og Daðeyjar Ástu Hálfdánsdóttur, sem einnig var með í för, segir að hún hafi nær alltaf haft allt tilbúið snemma í desember. Að- spurðar hvað felist í þessu „öllu“ sem þær eru búnar að klára segja þær það vera smákökubakstur, skreyt- ingar, þrif og jólagjafakaup. Blaðamaður var farinn að halda að jólastressið væri mýta ein, búin til af markaðsmönnum sjálfshjálparbóka þegar hann rakst á fjölskylduföð- urinn Inga Boga Hrafnsson sem var á ferð um Kringluna ásamt Helgu Dögg Kristjönudóttur og vinkon- unum Brynju Mjöll Gautadóttur og Júlíu Sól Ingadóttur. Stressið á mínu heimili „Þetta er ekki mýta. Ég var að koma frá Köben þar sem við náðum að kaupa mest allt. En ég stend í byggingaframkvæmdum þannig að það er jólastress á mínu heimili. Ég er þó byrjaður að skreyta,“ segir Ingi í gamansömum tón og hlær við. Hann stefnir að því að redda síðustu gjöfinni á Þorláksmessu, þeirri sem hann kallar „aðalgjöfina“. Helga Dögg segist búin að klára allt og var í Kringlunni að binda endahnútinn á jólagjafainnkaup. Þær Júlía Sól og Brynja Mjöll könn- uðust ekki við neitt jólastress en sögðust búnar að kaupa jólagjöf fyrir hvor aðra. „Ég keypti hana í Lond- on,“ segir Brynja. Jólastressið er engin mýta  Vart varð þverfótað fyrir fólki sem gekk frá jólagjafainnkaupum Bíður með gjöf konunnar svo hún finni hana ekki  Mæðgurnar eru búnar að gera „allt“ Með allt á hreinu Mæðgurnar Kristín Skúladótt- ir, Guðrún Þóra, og Daðey Ásta Hálfdánsdóttir. Fyrir framan þær stendur Kristín María Guðna- dóttir. Kristín og Guðrún Þóra segja stressið far- ið enda löngu búnar að gera klárt fyrir jólin Góðar vinkonur Þær Brynja Mjöll Gautadóttir og Júlía Sól eru góðar vinkonur og gefa hvor annarri jólagjöf. Við hlið þeirra standa Helga Dögg Kristjönudóttir, móðir Brynju Mjallar og Ingi Bogi Hrafnsson, faðir Júlíu Sólar. Konurnar eftir Þeir Karvel Pálmason og Helgi Már Hannesson áttu eftir að kaupa gjöf fyrir kon- urnar og bjuggust við að gera það á síðustu stundu. Líney er í fangi Karvels, pabba síns og Hlynur Már er í fangi Helga, pabba síns. Morgunblaðið/Golli Jólaös Vart varð þverfótað fyrir fólki í Kringlunni um miðjan dag í gær enda eru margir að leggja lokahönd á síð- ustu jólagjafainnkaupin þessa dagana. Mismikill asi var þó á fólki þar sem það gekk á milli skreytinganna. Þær Lóa Björk Björnsdóttir og Anna Guðrún Guðmundsdóttir voru að hefja jólagjafakaupin þegar blaðamaður stöðvaði þær á Lauga- veginum í gær. Báðar voru þær í leit að gjöf fyrir kærastann og virt- ust í eilitlum vandræðum með hvað þær ættu að kaupa. „Þeir segja ekkert hvað þá langar í. Við erum með sömu hugmynd að gjöf. Þeir þekkjast ekki, þannig að það er allt í lagi,“ segir Anna Guðrún. Auk þessa hyggja þær báðar á kaup á gjöfum handa fjölskyldumeðlimum. Guðrún var að klára próf í há- skólanum og var því fegin að geta um frjálst höfuð strokið eftir prófa- törn. Lóa starfar hins vegar sem blaðamaður í lausamennsku. Þær eru báðar 21 árs og segjast lítið vera að stressa sig fyrir jólin. „Ég þarf bara að mæta til foreldra minna,“ segir Lóa og Anna Guðrún tekur í svipaðan streng. Erfiðir kær- astar eftir Á Laugavegi Anna Guðrún Guðmunds- dóttir og Lóa Björk Björnsdóttir. Viðskiptin blómstra í Litlu Jóla- búðinni á Laugavegi og að sögn Anne Helen Lindsey, eig- anda versl- unarinnar, finnur hún fyrir þeirri miklu aukn- ingu sem fylgir fleiri ferðamönn- um og er hún ekki frá því að þeir séu fleiri á þessum árstíma en nokkru sinni áður. „Þeir vilja kaupa íslenskt handgert jóla- skraut sem minnir þá á veru sína á Íslandi yfir jólin 2014,“ segir Anne. „Íslendingarnir koma hins vegar inn og kaupa innflutta jóla- skrautið sem ég er með, “ segir Anne. Jólaskrautið rennur út Jólabúðin Anne H. Lindsay, eigandi. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Á Laugaveginum var annars konar stemming en í Kringlunni. Það helg- aðist af suðupotti ólíkra tungumála í bland við okkar ástkæra ylhýra. Veðrið var fallegt, kalt en stillt. Engu líkara er en að fyrsta stopp hjá erlendum ferðamönnum sé í einni af hlífðarfataverslunum landsins. Ein- kenni Frónbúa var hins vegar inn- kaupapokar í bland við léttari tísku- klæðnað. Í það minnsta í samanburði við erlendu ferðamenn- ina sem virtust margir hverjir búnir undir að skella sér á Hvannadals- hnjúk. Meðal léttklæddari ferða- manna voru Lundúnabúarnir Ant- hony Green og Nicole Cattanes. Aðspurð hvers vegna þau væru stödd hér á landi yfir hátíðirnar sagði Anthony að heimsókn hingað hefði verið á lista yfir það sem þau langaði að gera í lífinu, sem gjarnan er kallaður „Bucket list“. „Við vild- um sjá snjó. Við komum hingað í gær [í fyrradag] og við elskum allt sem við höfum upplifað hingað til,“ segir Anthony. Þau eru búin að leigja sér sumarbústað á Suðurlandi og ætla að verja hátíðadögunum í honum. Fara á hundasleða „Þar er heitur pottur,“ segir Ni- cole sem virtist ljóma af spenningi við tilhugsunina við ylsetuna. Þau ætla sér m.a. að fara í ferð á hunda- sleða sem þau töldu blaðamann hljóta að kannast við að hafa upp- lifað. Svo er þó ekki. Þau segjast heilluð af Reykjavík og sakna einsk- is af heimahögum. „Reykjavík minn- ir mann á jólaþorp. Hér er svo mikið af skreytingum og allt svo fallegt og jólalegt. Fólk er með ljós á húsunum sínum og kerti í gluggunum. Þetta er ekki eins sýnilegt í London. Svo eru allir svo vinalegir og tala ensku,“ segir Anthony og hlær innilega. Heitur pottur heillar og Reykjavík eins og jólaþorp  Anthony og Nicole dvelja á Íslandi yfir hátíðarnar Morgunblaðið/Golli Í jólaþorpinu Þau Nicole og Ant- hony eru ánægð með dvöl sína í Reykjavík sem minnir á jólaþorp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.