Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 24
Blaðamaður á bak við rimla ranghugmynda Kristján Jónsson blaðamaður Morg- unblaðsins skrifar grein um aðstæður Gazabúa 30. nóv. sl. Blaðamaðurinn rekur vandræði Gazabúa til Hamas og skrifar að „nú eru þeir í einangr- unarbúðum … vegna stefnu Hamas“ og fyr- irsögn greinarinnar „Bak við rimla vígamanna“ vísar skýrt á þá sýn Kristjáns að söku- dólgurinn heitir Hamas. Hamas var stofnað 1987 en her- nám og þjóðernishreinsanir síonista gegn Palestínumönnum hafa staðið frá árinu 1947. Augljóst er að það er ekki vegna stefnu Hamas sem Pal- estínumenn missa daglega bæði landsvæði og fólk. Það er stefna ísr- aelsku síonistanna sem er orsökin – þeir ræna landi og þeir gera Palest- ínumenn útlæga með ofbeldi og morðum. Ástandið á Gaza í dag er hluti af heildarmynd og beint framhald af atburðum sem hófust 1947 eftir að allsherjarþing SÞ samþykkti að taka ríflega hálfa Palestínu frá inn- fæddum og afhenda „vissum flokki útlendinga úr öllum heimi“ og nota „handa öðrum eftir þörfum“ eins og dr. Björn Þórðarson fyrrv. forsætis- ráðherra lýsti því árið 1950. Ætlun Kristjáns er auðvitað ekki sú að skrifa grein sem lýsir átök- unum í Palestínu í hinu stóra sam- hengi, hann er ekki að skrifa sögu- legt yfirlit málsins. Hann ætlar bara að fræða lesendur Morgunblaðsins örlítið, útskýra stöðuna og benda á orsakir. En hann, viljandi eða óvart, þræð- ir götu blekkinga og rangfærslna sem aðeins geta þjónað málstað þeirra sem eiga sökina, þeirra sem græða á „upplýsingum“ Kristjáns Jónssonar. Stefna Hamas, sem Kristján kynnir með tilvitnun í leiðtoga sam- takanna, „Palestína er okkar land … Við munum aldrei láta af hendi fer- þumlung af landi“ segir ekkert um raunveruleikan, hún er draumsýn. Ephraim Levy, fyrrverandi yf- irmaður Mossad (leyniþjónustu Ísr- aels) sagði í desember 2008 um Ha- mas: „þeir viðurkenna að hugmyndafræðileg markmið þeirra eru óframkvæmanleg … og þeir eru reiðubúnir að fallast á stofnun Pal- estínuríkis innan landamæranna frá 1967.“ Khalid Mishal, sá sem Krist- ján vitnar í, er formaður miðstjórnar Hamas. Hann sagði í mars 2008 að „flestir baráttuhópar Palest- ínumanna, og þar á meðal Hamas, samþykkja stofnun rík- is innan landamæranna frá 1967“. Likud, flokkur Net- anyahus forsætisráð- herra Ísraels, hefur á stefnuskrá sinni að ríki Palestínumanna skuli aldrei rísa „vestan ár- innar Jórdan“. Sem þýðir að ríki Palest- ínumanna muni aldrei rísa. Ísraelsstjórn og her hennar ræður allri Palestínu og því engir þverþuml- ungar eftir fyrir Hamas til að láta „ekki af hendi“. Þetta er raunveru- leikinn. Tilgangur Kristjáns með þessari tilvitnun í leiðtoga Hamas er því ekki að upplýsa lesendur um ástand- ið eins og það er, heldur vill hann fá þá til að trúa þeirri lýsingu sem hann setur fram um Hamas og stöðu Gazabúa „bak við rimla“ Hamas. Gazabúar eru ekki innilokaðir vegna stefnu Hamas, það er Ísr- aelsher sem skammtar lífsgæðin á Gaza. Þær þúsundir Gazabúa, kon- ur, börn, gamalmenni og and- spyrnumenn, sem hafa látið lífið í árásum Ísraelshers í þremur stór- árásum 2009, 2012 og 2014, hafa fall- ið fyrir vopnum síonista. Og það er vert að hafa í huga að samkvæmt skýrslum mannréttinda- og friðarsamtaka sem hafa fylgst með málum Palestínu er það und- antekningarlaust her Ísraels sem hefur átt upptökin að átökunum. Kristján segir hinsvegar um upptök átakanna 2014 „að Hamas-menn byrjuðu að láta vígahópa sína skjóta flugskeytum á Ísrael vel vitandi að þeir myndu svara með loftárásum“. Hið rétta er að Netanyahu hóf her- ferðina í kjölfar morða á þremur ísr- aelskum unglingum með handtöku um 700 Hamasliða og að drepa um tug þeirra á Vesturbakkanum. Síðar kom í ljós að Hamas átti engan þátt í morðum þremenninganna (NYT 25.7. 14). Ég tel að blaðamenn eigi að vera upplýstir og málefnalegir í skrifum sínum, að öðrum kosti misfara þeir með það traust sem margir blaðales- endur bera til þeirra. Kristján Jóns- son virðist hvorki upplýstur né mál- efnalegur í umræddri grein. Eftir Hjálmtý V. Heiðdal » Augljóst er að það er ekki vegna stefnu Hamas sem Palest- ínumenn missa daglega bæði landsvæði og fólk. Höfundur er kvikmyndagerð- armaður. Hjálmtýr V. Heiðdal 24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Ég hlustaði á Rás tvö sunnudags- kvöldið 14. desember sl. á útvarps- þáttinn Langspil í umsjá Heiðu Ei- ríks. Þátturinn var góður og kom Heiða víða við og var þátturinn henni til sóma. Það sem vakti mesta athygli mína var viðtalið við Einar Þorgrímsson sem hefur komið fram á sviðið með tvær stór- góðar barnaplötur, sem eru á ein- hvern hátt öðruvísi en ég og flestir aðrir eigum að venjast. Fyrir það fyrsta er ævintýrið einfalt en býð- ur upp á mikla möguleika. Eins og segir á baksíðu hulstursins, finnst í gömlu musteri djúpt í frumskógi Afríku stórmerkilegt tæki sem breytir röddum dýranna í manna- mál og eins og í góðum ævintýrum kemur í ljós að dýrin syngja eins og við mennirnir. Kannski ekki mjög frumlegt en virkar gagnvart ungum hlustendum. Með þessu er ég ekki að segja að tónlistin og textarnir séu eingöngu fyrir börn, miklu frekar vil ég segja að platan sé fyrir hlustendur á öllum aldri. Einar Þorgrímsson nefnir til sög- unnar sögumann sem fylgir börn- unum milli dýranna, segir eilítið frá hverju dýri fyrir sig og saman hlusta hann og börnin á söng dýr- anna. Ég held að sögumaður á milli laga sé nýjung á barnaplötum. Eldri borgarar hafa sagt mér að þessar tvær plötur séu á við góða barnapíu þegar barnabörnin koma í heimsókn. Eru í huganum á ferðalagi með sögumanninum um frumskóga og fjöll, hlustandi á tón- listina og taka undir með dýrunum. Ég óska Einari Þorgrímssyni til hamingju með plötuna og er ekki í vafa um, að hún muni fá góðar við- tökur. Ingvar Árnason. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Upplestur Málvitund og orðaforði barna eykst ef lesið er fyrir þau. Athyglisvert viðtal í Langspili Skýjaglópana í borgarstjórninni dreymir sífellt um að koma hér upp léttlestakerfi í Reykjavík. Því spyr ég: Getur einhver heilvita maður séð fyrir sér léttlestir fara um borgina í þessari hálku og snjó, sem nú er á götunum, ekki síst þegar götur eru svona lítið mokaðar eins og raun ber vitni? Hvar eru þeir eiginlega stadd- ir í heiminum þessir strákar í borg- arstjórninni, þegar þeim dettur sú firra í hug, að hægt sé að láta létt- lestir fara um í þessari færð, sem er hér yfirleitt, þegar vetrar fyrir al- vöru með snjó og hálku? Þeir verða sjálfum sér til skammar og athlægis með þessum draumórum sínum, sem þeir leggja fyrir borgarbúa. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Ófærð Í Reykjavík. Léttlestakerfi í Reykjavík Er á Facebook Jurtir í jólagjöf Slakandi olían er góð fyrir húðina og himnesk í baðið! – Lena Lenharðsdóttir www.annarosa.is Slakandi olían hefur róandi áhrif og er frábær nudd- og húðolía. Eftir að ég fór að nota 24 stunda kremið hurfu þurrkblettir í andliti alveg og ég er ekki eins viðkvæm fyrir kulda og áður. Það gengur mjög vel inn í húðina og mér finnst það frábært í alla staði. – Sigþrúður Jónasdóttir 24 stunda kremið er einstak- lega rakagefandi og nærandi fyrir þurra og þroskaða húð. Fótakremið er silkimjúkt, fer fljótt inn í húðina og mér finnst það alveg æðislegt. – Magna Huld Sigurbjörnsdóttir Fótakremið er kælandi og kláðastillandi, mýkir þurra húð, græðir sprungur og ver gegn sveppasýkingum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum (Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum. Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! frábært spil Fyrir ALLA fjölskylduna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.