Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g lærði að prjóna
þegar ég var lítill
strákur í Hólabrekku-
skóla, í handavinnu-
tímum. Ég fann strax
að þetta átti vel við mig, mér fannst
sérlega róandi og afslappandi að
setjast niður og prjóna. Þegar ég
skipti um skóla og fór í Fellaskóla þá
lærði ég líka útsaum og ég rammaði
inn tvær slíkar myndir sem ég hef
geymt allar götur síðan, önnur er af
hesti, hin af Effelturninum. Ég hef
líka saumað heilmikið í saumavél, til
dæmis saumaði ég á mig peysu. Ég
sauma líka sjálfur rennilása á mínar
lopapeysur. Maður finnur bara út úr
þessu, þetta er ekkert mál,“ segir
Kristinn Ómarsson starfsmaður á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund, en hann nýtir hverja lausa
stund til að prjóna. Kiddi rifjar upp
grunnskólaárin og seg-
ist oft hafa klárað
skólaverkefni í prjóna-
skap fyrir yngri bróð-
ur sinn. „Hann nennti
ekki að klára og þeg-
ar hann kom heim
með prjónadótið þá
prjónaði ég fyrir
hann og lauk hans
verkefnum. En
þegar hann skilaði
því í handavinnu-
tímana þá þekktu
kennararnir
handbragðið
mitt og áttuðu
sig á að hann
hafði ekki gert
þetta sjálfur. Hann gat ekk-
ert að því gert að
hann hafði þetta
aldrei í sér.“
Eini karlinn með
10 konum
Kiddi segist hafa
lagt prjónaskapinn á hill-
una eftir að hann lauk
grunnskólanum og hann
prjónaði ekki í mörg ár.
„En ég hafði engu gleymt,
það kom í ljós þegar ég
slóst í hópinn á prjónakvöldunum
fyrir starfsfólk Grundar sem fóru af
stað fyrir þremur árum. Hún Guð-
rún Gísladóttir forstöðukona stjórn-
ar þeim kvöldum
og ég er eini
karlmaðurinn í
hópi tíu kvenna.
Guðrún trúði ekki
að ég gæti prjónað
og hún ætlaði að
láta mig prjóna ein-
hvern einfaldan lepp,
en ég vildi það auðvit-
að ekki og byrjaði
bara á lopapeysu strax
fyrsta kvöldið. Þær
urðu svolítið hissa þeg-
ar þær sáu að þetta var
ekkert mál fyrir mig, ég
fer bara eftir upp-
skriftinni,“ segir Kiddi
sem fær hvarvetna
mikið hrós fyrir
prjónaskapinn. „Öll-
um finnst þetta frá-
bært og það hvetur
mig til dáða. „Gulla,
Guðlaug Péturs-
dóttir, konan mín
hafði lengi talað
um að hana lang-
aði í sjal svo ég
prjónaði eitt slíkt
um daginn handa henni og var
fljótur að því. Það var mitt síðasta
verk í prjónaskapnum fyrir jól, nú
tek ég mér frí frá honum fram í jan-
úar, þá byrja ég aftur.“
Nóg að gera í félagslífinu
Kiddi segir misjafnt hvað hann
er lengi að prjóna eina flík. „Ég
prjóna mest á kvöldin, kannski sjö,
átta umferðir, en ég er upptekinn
mörg kvöld á kóræfingum af því ég
er í þremur kórum, Grund-
arkórnum, Karlakórnum Mosfells-
bræðrum og Kirkjukór Óháða safn-
aðarins,“ segir Kiddi sem syngur
fyrsta bassa. Hann er líka í spilahóp
sem kemur saman tvisvar í mánuði
og spilar félagsvist. „Gulla konan
mín er í tveimur kórum, hún er í
kvennakór og líka í kirkjukór Óháða
safnaðarins eins og ég. Það er nóg að
gera hjá okkur í félagsslífinu.“
Kiddi hefur selt eina lopapeysu,
en oftast gefur hann afrakstur
prjónaskapsins. „Ég geri þetta
ánægjunnar vegna, mér finnst gam-
an að gefa. Ég gaf mágkonu mini
eina peysu. En næst ætla ég að snúa
mér að lopasokkum og vettlingum,
ég er aðeins byrjaður og búinn með
eitt par af sokkum. Nú þegar er fólk
farið að panta sokka og vettlinga hjá
mér, eins gott ég fari á fullt í því eft-
ir áramótin.“
Alltaf brosandi og bóngóður
Kiddi hefur unnið á Grund í
tuttugu ár, frá því hann var 17 ára
og vill hvergi annarsstaðar vera.
Finnst sérlega
róandi að prjóna
Hann hefur unnið á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund frá því hann var 17 ára
og er þar allt í öllu. Þar kynntist hann líka ástinni í lífi sínu. Hann syngur bassa og
er í þremur kórum en gefur sér þó tíma til að prjóna lopapeysur, sjöl og sokka.
Morgunblaðið/Ómar
Ást Gulla eiginkona Kidda skartar hér sjalinu sem hann prjónaði á hana.
Í leiknum Kringlujól hjálpast allir að
sem spila við að safna raunveruleg-
um gjöfum fyrir þá sem minna mega
sín. Hver leikmaður safnar stigum í
sameiginlegan pott. Eftir því sem
stigafjöldi eykst bætast við pakkar í
pakkasöfnunina sem fyrirtæki í
Kringlunni gefa og verða lagðir undir
jólatré verslunarmiðstöðvarinnar.
Mæðrastyrksnefnd og Fjölskyldu-
hjálp Íslands sjá um að útdeila pökk-
unum sem munu gleðja á aðfanga-
dagskvöld, en margt fólk á Íslandi
hefur ekki efni á að kaupa jólagjafir.
Um 1.400 fjölskyldur og einstakl-
ingar hafa leitað eftir aðstoð hjá Fjöl-
skylduhjálp fyrir jólin og einnig marg-
ir hjá Mæðrastyrksnefnd.
Leikmaðurinn sjálfur getur unnið
glæsilega vinninga í leiknum. Hægt
er að ná í Kringlujól í App Store eða á
Google Play og leggja sitt af mörkum
við pakkasöfnun Kringlunnar.
Endilega …
…gefið þeim sem skortir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góðverk Börn gefa gjafir undir tréð.
Það er margt í okkar daglegalífi sem getur valdið streitu.Misjafnt er hvernig streita
hefur áhrif á okkur og hvernig við
vinnum úr henni. En hvernig hefur
streita áhrif á samband okkar við
maka? Það er margt sem getur ýtt
undir streitueinkenni í sambandi,
t.d. fjármál, uppeldi barna, vinna,
ólík markmið maka, ekki nægur
stuðningur frá maka, lítið hrós o.fl.
Þegar við finnum fyrir mikilli streitu
sem varir í langan tíma getur það
haft slæm áhrif á heilsu okkar og
einnig á samband okkar við maka.
Nauðsynlegt er að pör geri sér
grein fyrir því hvernig streita getur
haft áhrif á samband þeirra. Þar
sem ekki er hægt að koma í veg fyrir
streitu þurfum við að vita hvernig
hægt er að takast á við hana á
áhrifaríkan hátt. Mikilvægt er að
finna leiðir sem henta báðum aðilum
til þess að takast á við streitu. Ein
áhrifarík leið er að vera hreinskilin
hvort við annað. Ræðið saman um
það sem veldur ykkur streitu og
hvernig streita hefur áhrif á ykkur.
Maki getur aðstoðað og veitt skiln-
ing sem á þarf að halda. Það þarf
ekki alltaf að finna lausn á vand-
anum heldur getur það eitt að vera
til staðar veitt fólki mikinn styrk.
Önnur áhrifarík leið er að viðhalda
nánd í sambandinu. Pör eiga það til
að forðast nánd þegar þau ganga í
gegnum mikið streitutímabil vegna
þess að þau eru of þreytt eða orðin
tilfinningalega úrvinda. Lítil nánd
getur haft mjög slæm áhrif á sam-
bandið. Með því að sýna hvort öðru
nánd hjálpum við til að losa um
streitu og kvíða sem hefur síðan já-
kvæð áhrif á líðan okkar. Nánd felur
ekki aðeins í sér kynlíf heldur er
margt annað sem fellur þar undir.
Að deila tilfinningum og hugsunum
sínum með öðrum getur verið vand-
ræðalegt en með því sköpum við til-
finningalega nánd.
Þriðja áhrifaríka leiðin er að við-
halda jafnvægi í því hvernig við verj-
um tíma okkar. Það er auðvelt að
gleyma sér í mörgum viðburðum
sem við höfum í raun ekki tíma fyrir
eða að verja of miklum tíma í
vinnunni. Slíkt ójafnvægi getur vald-
ið streitu í sambandi okkar. Því er
mikilvægt að vanda valið þegar við
verjum tíma okkar. Hvað er það sem
skiptir okkur mestu máli?
Mikilvægt er að huga að þessu nú
þegar jólahátíðin er að skella á. Fyr-
ir marga geta jólin verið mikill
streituvaldur og þá er mikilvægt að
vera til staðar hvort fyrir annað.
Sýnum tillitssemi, verum hreinskilin
og umfram allt sýnum hvort öðru
hlýju og skilning.
Getty Images/iStockphoto
Jól Sýnið tillitssemi, verið hreinskilin og sýnið hvort öðru hlýju og skilning.
Heilsupistill
Ólöf Edda Guðjónsdóttir
sálfræðingur
Heilsustöðin sálfræði- og ráðgjafarþjón-
usta, Skeifunni 11a, Rvk. www.heilsustodin.is
Hefur streita áhrif á
samband þitt við maka?
Jólagjöf gr i l lmeistarans
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Kjúklingastandur
Hamborgarapressa
FULLT VERÐ
5.500
4.500
Þráðlaus kjöthitamælir
Ljós á grill
Pítsusteinn
FULLT VERÐ
8.990
5.99015”
FULLT VERÐ
7.990
5.990
Spaði og
skeri fylgja
FULLT VERÐ
4.490
3.490
Einstökupplifun
Stilltu á kjöttegund og
steikingu. Mælirinn lætur vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill ogofna
FULLT VERÐ
4.990
3.990
LED
Stillanlegþykkt