Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samskiptahæfileikar þínir batna verulega á næstu vikum. Sumt sem þú gerir til að auka vellíðanina tekur bara nokkrar mínútur – eins og að lesa eða gera maga- æfingar. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú er rétti tíminn til þess að gera vel við sjálfan sig og næra líkama og sál. Mundu bara að fara ekki fram með neinu offorsi, heldur lagni og tillitssemi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Mundu að sumar spurningar eiga sér ekki einhlítt svar. Sýndu kjark og leyfðu hæfileikum þínum að blómstra. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vertu ekki niðurlútur þótt þér finnist þú einn á báti með skoðanir þínar. Samtöl við ættingja og vini eru innileg á þessum tíma. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gefðu þér tíma til þess að skoða hlut- ina í kringum þig. Fólk sem á sér líf ætlast ekki til að þú sleppir öllu til að falla því í geð. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú munt fá fleiri tækifæri til að afla peninga á næstunni en um leið færðu líka fleiri tækifæri til að eyða þeim. Gerðu það samt því án þess er líf þitt ófullkomið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Óþolinmæðin er óvinur þinn. Margs konar möguleikar blasa við. Gættu þess bara að halda utan um þína nánustu eins og þeir gera um þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Tilfinningar þínar sýna þér að hverju þarf að vinna, en ekki sýna tilfinn- ingar við vinnuna. Vertu með opinn huga gagnvart framandi hlutum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Óskammfeilinn sjálfsfrömuður getur kennt þér sitthvað. Að réttu lagi er þetta þér allt til góðs þótt ekki virðist svo á yfirborðinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín málefni. Kannski þarftu svo ekki á hjálpinni að halda – þú þarft bara að vita að þú stendur ekki einn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur ákaflega sterka eðlis- ávísun til þess að fara eftir. Ekki sinna börn- um þínum og barnabörnum of mikið, ein- beittu þér frekar að ástinni og njóttu hennar til hins ýtrasta. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það þarf visst hugrekki til þess að taka af skarið þegar mál eru tvísýn. Hikaðu ekki við að leita til vina þinna eftir aðstoð þegar þú þarft á að halda. Pétur Stefánsson skrifaði í Leir-inn í lok nóvember að hann hefði rekist á þessar limrur í vísna- bunkanum sínum. „Fyrri limran er auðvitað um Sigrúnu okkar“ segir hann. Hvort sem er bjartviðri og blíða, brjálæðis frost eða þýða, og jafnvel í hríð við hesthús ég bíð til að sjá hana Sigrúnu ríða. Frænkurnar Svala og Svandís, Sveinbjörg og Guðríður Brandís, Þórhildur Erla og Ísgerður Perla, eru sólgnar í kaffi og kandís. Ekki stóð á því að Sigrún Haralds- dóttir staðfesti það sem Pétur sagði: „Einbeittur mætir árdaga flesta erindi að gegna brýnu, að horfa á mig sinna helsta og besta hugðarefninu mínu. Ég hugsa reyndar oft til Péturs: Ef friðlaus verð í feldinum, ef freistar vetrarsvalinn, mjög þá gjarnan eigra um Elliðaárdalinn. Stundum sé ég stika hjá stæðilega gæja, þá mig geri blíða á brá, brosi eins og pæja. Á göngunni þá geri hlé, gái enn og betur í þeirri von að þetta sé þokkafulli Pétur. Það er reyndar einkennilegt hvernig menn taka því ef ég horfi gaumgæfilega á þá: Margur frá mér burtu beygir, brölt sitt aðrir herða, fádæma þó flóttalegir flestir þeirra verða. Ég hef fulla trú á að bráðlega mæti ég Pétri á göngu minni.“ Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir á Boðnarmiði: Norðri gjallar, nepja köld næðir hjalla og rinda, Degi hallar, húmsins tjöld hjúpa fjallatinda. Út á sænum öldur kvika ótta hylur fölva grund Mánaljós á bárum blika bjarma slær á vík og sund. Gylfi Þorkelsson hugsar til barnanna – þau njóta sín í leik úti við segir hann: Skrýðir fjöll og skógarhöll, skjannamjöll á grundum. Hávær köll og hlátrasköll heyrast öllum stundum. Sigurjóna Björgvinsdóttir nýtur útsýnisins: Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rölt í Elliðaárdalnum en birtu slær á fjöll Í klípu „ÞÚ GETUR ANNAÐHVORT HÆTT AÐ REYKJA NÚNA, EÐA EFTIR LÍKBRENNSLUNA ÞÍNA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „Á ÉG AÐ SLÖKKVA Á HONUM?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... í hverju skrefi ykkar. ORFEA FRÆNKA MÍN SAGÐI ALLTAF: „JÓLIN KOMA BARA EINU SINNI Á ÁRI.“ SVO SAGÐI HÚN: „ALDREI FARA UNDIR MISTILTEININN MEÐ REYTTUM KJÚKLINGI.“ OG SVO SPILAÐI HÚN Á ENNIÐ MEÐ SKEIÐUM. ORFEU FRÆNKU VANTAÐI NOKKRAR RÚSÍNUR Í JÓLAKÖKUNA. ÞETTA HEFUR VERIÐ ERFITT ÁR FJÁRHAGSLEGA, ÞANNIG AÐ ÞIÐ MUNUÐ EKKI FÁ ALLAR GJAFIRNAR SEM ÞIÐ SETTUÐ Á JÓLAGJAFALISTANN YKKAR... ER ÞAÐ Í LAGI? AÐ SJÁLFSÖGÐU, VIÐ SKILJUM! Dagurinn í dag, 22. desember, ersá tímapunktur í almanakinu sem Víkverja finnst skemmtileg- astur allra. Bjartsýni og boðorð um betri tíð liggja í loftinu. Það er nefni- lega alveg þrælmagnað að nú sé daginn farið að lengja og útreikn- ingar Þorsteins Sæmundssonar stjarnfræðings í Almanaki Háskóla Íslands bregðast aldrei. Nú sveigir norðurhvelið hægt og hægt í sólarátt og í kringum þrettándann, eða í þann mund sem álfar og huldufólk snúa í klettaborgir sínar eftir ára- mótaskemmtun meðal manna, sést birtumunurinn greinilega. Fagn- aðarboðskapur jóla, um fæðingu frelsarans, er fínn og ástæða til að gleðjast. Kannski enn frekar á pásk- unum, enda eru skilaboðin sem fel- ast í upprisunni þau að alltaf sé von. Og nú, rétt fyrir jól, víkur myrkrið fyrir birtunni, þó aðeins í hænufets- skömmtum í byrjun. x x x Það eru notalegar morgunstundirhér á ritstjórn Morgunblaðsins þegar við sjáum vorið koma fljúg- andi inn yfir landið. Það er ævintýri að standa við austurgluggana í Há- degismóum, þar sem ísilagt Rauða- vatnið blasir við, skógarbreiðurnar í Heiðmörk, Heiðin há og Bláfjöll. Að ekki sé nú talað um Vífilsfellið, bað- að rauðri árdegisbirtu þegar sólin gægist rétt upp fyrir fjallsbrúnir. Og með birtunni eykst orka líkama og sálar. Strax upp úr páskum er kom- inn ferðahugur í Víkverja, sem þá fer að skoða leiðakort landsins og undirbúa ferðalögin. Þegar komið er fram í maí er svo slegið undir nára. x x x Oft liggur leið Víkverja austur fyr-ir fjall. Leiðangrar þangað ganga upp og oftan. Tíðin getur ver- ið rysjótt langt fram í mars og skyggnið sáralítið. Í kófi og byl, þeg- ar sést ekki nema frá stiku til stiku, er Faðir vorið góður vegvísir. En svo er það eins og við manninn mælt; að í Kömbunum rofar til. En svona er nú bara lífið sjálft; oft er tilveran eins og leikur í þrautabraut. En það kemur alltaf vor; éljum léttir á Kambabrún og eftir vetrarsólstöður er hver dagurinn öðrum bjartari. víkverji@mbl.is Víkverji Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu en leiða mæðurnar. (Jesaja 40:11)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.