Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014
SkorEHF
HEILDVERSLUN
Hvaleyrarbraut 33 • 220 Hafnarfirði • Sími 564 1925 • skorehf.is • Skor ehf - Heildverslun
Seljum til fyrirtækja og verslana
Vetrarheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í tíu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.
Jólagleðin er komin í huga og hjörtu flestra á þessum tíma árs og Frakkar
eru þar engin undantekning. Valerie Trierweile, fyrrverandi unnusta for-
seta Frakklands, og franska söngkonan Laam dreifðu gjöfum til barna í
París um helgina fyrir Secours Populaire-góðgerðarsamtökin.
AFP
Jólastemning í París
Börnin fá gjafir frá jólasveininum
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tveir lögreglumenn voru skotnir til
bana í New York á laugardaginn en
fjölmiðlar vestanhafs hafa lýst
morðinu á lögreglumönnunum
Wenjia Liu og Rafael Ramos sem af-
töku. Þeir sátu í lögreglubíl í Brook-
lyn-hverfinu þegar maður kom
gangandi og skaut á bílinn. Vitni að
skotárásinni sögðu í samtali við New
York Times að maðurinn hefði kom-
ið út úr húsi og komið aftan að lög-
reglubílnum áður en hann hóf skot-
hríðina á lögreglumennina, sem sátu
inn í bílnum. Morðið var framið degi
eftir mótmælagöngu í borginni gegn
lögregluofbeldi en morðinginn, sem
er 28 ára gamall og heitir Ismaaiyl
Brinsley, hafði lýst andúð sinni á
lögreglunni á samskiptavef á netinu.
Stuttu fyrir morðið setti hann á net-
ið skilaboðin: „Ég set vængi á svín í
dag. Þeir taka einn af okkur.... Tök-
um 2 af þeim. Þetta gæti orðið síð-
asta innlegg mitt.“ Áður en hann
skaut lögreglumennina til bana hafði
hann skotið á fyrrverandi unnustu
sína og er hún alvarlega slösuð.
Ismaaiyl Brinsley fannst á lest-
arstöð skammt frá vettvangi morðs-
ins en hann hafði þá svipt sig lífi með
skotvopni. Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, hefur fordæmt
verknaðinn.
Tveir lögreglumenn í
New York skotnir til bana
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum kalla morðin aftöku
Morð Lögreglumenn í New York
loka vettvangi morðsins.
Móðir sem grunuð er um að hafa
orðið átta börnum að bana, þar af
sjö sem hún átti sjálf, hefur verið
formlega ákærð. Hún var leidd fyrir
dómara í gær þar sem henni var
gerð grein fyrir ákæruliðum. Konan
sem er 37 ára gömul átti sjö börn
með fimm mönnum en faðir elsta
barnsins lýsti því fyrir fjölmiðlum
þegar hann hitti dóttur sína síðast á
lífi. „Hún bað mig um að gefa sér
pening en ég sagði henni að ég
myndi gefa henni gjöf á laugardag-
inn, þegar hún ætti afmæli. Ég átti
yndislega og fallega dóttur,“ sagði
faðir hennar.
Tvítugur sonur konunnar kom að
heimilinu á föstudaginn og tilkynnti
lögreglu um voðaverkin. Móðirin
var flutt á sjúkrahús með stungusár
sem hún veitti sér sjálf. Hún er ekki
í lífshættu.
Áströlsk móðir ákærð
Talin hafa myrt börn sín og stjúpdóttur
Sprengjur sprungu aðra nóttina í röð
í Malmö í Svíþjóð, aðfaranótt sunnu-
dags. Lögreglan á svæðinu segir að
engan hafi sakað en nokkurt tjón
hafi orðið. Íbúar í Rosengård-hverf-
inu, sem er stórt innflytjendahverfi,
tilkynntu um nokkrar sprengingar
til lögreglu. Enginn hefur enn verið
handtekinn vegna málsins en vitni
hafa verið yfirheyrð.
Í Danmörku þurftu farþegar að
bíða meðan lögregla leitaði af sér
grun á lestarstöðinni í Óðinsvéum á
föstudaginn en borist hafði
sprengjuhótun til lögreglunnar með
smáskilaboðum. Sprengjuhótuninni
fylgdi krafa um að forsætisráðherra
Danmerkur segði af sér. Miklar tafir
urðu á danska lestakerfinu og þurfti
að aflýsa nokkrum ferðum.
Sprengjur Sprengingar hafa verið í Malmö og sprengjuhótun í Danmörku.
Sprengingar og sprengju-
hótanir á Norðurlöndum