Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Ég hrökk upp við þá frétt í fjölmiðlum að stríðshanska væri nú kastað í að hefta framgang í miklu hagsmunamáli. Í mörg ár hafa heima- menn horft til þess að Hagavatn komist í það form sem það var í fyrir árið 1929. Á því mikla hlýinda- tímabili sem hófst upp úr 1920 og stóð í 30 ár gerðist það að jök- ulsporður úr Langjökli sem lá fram Brekknafjöll eyddist mjög og sprakk undan vatnsþunganum. Fyrst við svokallaðan Leynifoss og níu árum seinna kom í ljós ann- að skarð þar sem núverandi útfall er. Hagavatn, sem var talið vera um 1.500 ha að stærð, minnkaði þá niður í rúmlega 500 ha. Vatns- borðið lækkaði um rúmlega 15 metra. Upp komu þá 1.000 ha af jökulaur sem enginn veit hverstu djúpur er. Hófst þá mikill sand- og aurblástur til vesturs frá vatn- inu. Jarðvatnið lækkaði mjög í hrauninu neðan og framan við vatnið. Vatnið úr gamla Hagavatni eftir hlaupið fór þá í Sandvatn sem var lítið vatn neðan við Ein- ifell. Mikill upp- blástur hófst síðar úr Sandvatni er vatnið flæddi upp í vorleys- ingum og sjatnaði síð- an á haustin. Fyrir um 30 árum var útfall Sandvatns stíflað og vatnið hækkað um nokkra metra og öllu vatninu veitt í Sandá. En áður en það var stíflað fór það í Ás- brandsá og þaðan í Tungufljót. Fyrir 50 árum hóf Landgræðsla ríkisins í samráði við landeigendur að stöðva sandfok á Haukadals- heiði. Þetta var erfitt verkefni en því nefnt hér að við það að hækka vatnsyfirborðið um nokkra metra vannst mikill áfangasigur í land- græðslunni og sýndi okkur að það sama mundi eiga við um Haga- vatn. Það hefur því verið mikið áhugamál heimamanna að beita þessari aðferð einnig við Haga- vatn, en mikill blástur er enn úr gamla vatnsbotninum, síðast nú fyrir liðlega þremur vikum að það blés verulega. Í Biskupstungum hafa bændur og búalið unnið sleitulaust við uppgræðslu og náð miklum árangri með farsælu sam- starfi við Svein Runólfsson, land- græðslustjóra ríkisins. Í sveitinni er áhugamannafélag um land- græðslu og hefur félagið und- anfarin ár fengið hvað hæstan styrk úr Pokasjóði og á síðasta landgræðsludegi fékk stjórn fé- lagsins landgræðsluverðlaunin 2014. Þessi pistill er ritaður svo fólk megi sjá að hér er unnið af alhug og að allar þær fram- kvæmdir sem hér eru unnar eru að tillögu landgræðslustjóra og hans sérfræðinga. Svo mun einnig vera um Hagavatnsvirkjun. Er að því kemur að Hagavatn verður stíflað og vatnsborðið sett upp í það sem það var áður, mun öllum tillögum og ábendingum land- græðslustjóra vera hlýtt til hins ýtrasta. Því hrökkva menn við er einn af þingmönnum í Suður- kjördæmi reynir að eyðileggja málið með órökstuddu máli um að uppblástur muni aukast. Það er dapurleg staðreynd að menn og konur gefi kost á sér til þingsetu til að eyðileggja mál sem einhugur er um í héraði. Sveitarstjórn og önnur samtök hafa sent frá sér ályktanir um málið. Ef Hagavatn verður stíflað eru uppi áform um að þetta verði græn virkjun. Upp- græðsla mun stóraukast og raf- orkan notuð í matvælaframleiðslu í þeim mikla uppgangi sem hefur orðið í garðyrkju í uppsveitum Ár- nessýslu og stuðla þannig að mat- vælaframleiðslu með sjálfbærri endurnýjanlegri orku. En sú fram- leiðsla fer nú sigurför um allan heim. Íslenska þjóðin mun eiga þessa kost að verða fyrst þjóða til að rafvæða sín ökutæki, en það er talið vera ein besta leið til að bæta lífskjör og losna við bensín og dísil úr innkaupalistanum. Þjóðin á mikla orku í fallvatni sem sjálfsagt er að nýta, en búa svo um hnútana að við megum stolt horfa á þessar framkvæmdir. Það er því umhugsunarefni og vonbrigði að fólk skuli ekki vilja standa saman að þessu mikla vel- ferðarmáli. Við kjósendur í Suður- kjördæmi vorum því miður ekki heppnir með þá sem fengu kosn- ingu til alþingis á síðasta kjör- tímabili. Mikil vonbrigði voru að þetta fólk beitti brögðum til að læsa allar framkvæmdir inni í Rammaáætlun og stöðva allan framgang mála. Þetta fólk fékk því makaleg málagjöld í síðustu kosningum. Það er því furðulegt að þeir sem eru enn á lífi af vinstrimönnum hér í kjördæminu skuli nú ekki hysja upp um sig brækurnar, frekar en að bíða eftir annarri rassskellingu. Um síðustu kosningar var ljóst að hér þyrfti að skipta um for- ystulið og það var gert. Það var mikið gæfuspor að fá þau Sigurð Inga og Ragnheiði Elínu til for- ystu og koma framfaramálum aft- ur á þá braut að athafnamenn sem ávallt hafa verið til hjá okkar þjóð geti tekið til við að koma á legg áðurnefndum framkvæmdum og fleira sem þarf í okkar stóra kjör- dæmi. Ég skora því á alla þing- menn Suðurkjördæmis að endur- skoða afstöðu sína svo þessi græna virkjun megi rísa þegar öll- um undirbúningi er lokið. Enn stendur óhaggað – ræktum bæði land og lýð. Eftir Björn Sigurðsson » Það hefur því verið mikið áhugamál heimamanna að beita þessari aðferð einnig við Hagavatn til að hefta uppblástur og stöðva sandfok. Björn Sigurðsson Höfundur er bóndi í Úthlíð. Hagavatnsvirkjun – landgræðsluverkefniMóttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Gleðileg jól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.