Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 30

Morgunblaðið - 22.12.2014, Síða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Orri Vésteinsson,prófessor ífornleifafræði við Háskóla Íslands, er þessa stundina að vinna að verkefni fyrir grænlensku lands- stjórnina. Það felst í að skrifa umsókn til UNESCO, Menningar- málastofnun Samein- uðu þjóðanna, um að koma norrænum minj- um á Grænlandi á heimsminjaskrá. „Þetta eru fimm svæði við Eiríksfjörð og Einarsfjörð. Minj- arnar eru vel þekktar en það felst í því ákveðin viðurkenning að fá þær á heims- minjaskrá auk þess sem verndun þeirra styrkist.“ Aðalverkefni Orra eru að ganga frá upp- gröftunum í Sveiga- koti í Mývatnssveit og á Gásum í Eyjafirði til útgáfu. „Fæst orð bera minnsta ábyrgð um hvenær þessi verkefni klárast. Það tekur alltaf gríðarlega langan tíma að ljúka svona rannsóknum og fá fjármagn til þeirra. Það er mun erfiðara að fá borgað fyrir úrvinnsluna en uppgröftinn sjálf- an. Ég hef því reynt að fara ekki mikið á vettvang í öðrum verk- efnum meðan ég er að klára þessi, en þó fór ég í sumar til Græn- lands og eins norður í Bárðardal. Vinnan er mitt aðaláhugamál, enda er ég í mjög skemmtilegri vinnu, og svo auðvitað fjölskyldan. Ég er svo heppinn að eiga skemmtilega konu og skemmtileg börn.“ Eiginkona Orra er María Reyndal leikstjóri og börn þeirra eru Hrafnhildur, 14 ára, og Jörundur, átta ára. Jólin verða með hefðbundnu sniði hjá Orra. „Ég vona að ég fái einhverjar bækur í jólagjöf, lestur á skáldsögum hefur farið minnkandi með árunum en það vex bara í fræðiritabunkanum.“ Orri Vésteinsson er 47 ára í dag Situr við og skrifar umsókn til UNESCO Fornleifafræðingur Orri Vésteinsson. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Leifur Máni Atlason fædd- ist 15. janúar 2014 kl. 0.44. Hann vó 3.004 g og var 48,5 cm langur. For- eldrar hans eru Atli Fannar Arnarson og Rakel Dóra Leifsdóttir. Nýir borgarar Njarðvík Ísabella Ósk Aronsdóttir fæddist 24. apríl 2014, á sumardaginn fyrsta. Hún vó 3.675 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Aron Örn Grétarsson og Katrín Helga Steinþórsdóttir. M artha fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 22.12. 1964, flutti sex mán- aða með fjölskyld- unni til Bandaríkjanna þar sem faðir hennar fór í framhaldsnám í læknis- fræði. Þar fæddust systkini hennar, Sveinn og Bryndís. Foreldrar hennar skildu er hún var sjö ára og sumarið 1972 flutti móðir þeirra heim með þau systkinin. Martha var í Fellaskóla og lauk stúdentsprófi frá MS 1984: „Þá um haustið hófst það flökkulíf sem hefur einkennt mig síðan. Ég fór til Dan- merkur, var þar aðstoðarþjálfari hjá dönsku sundfélagi í sex mánuði. Haustið 1985 hóf ég nám í sjúkra- þjálfun við HÍ og útskrifaðist þaðan haustið 1989. Síðan hef ég bætt við mig námi í hómópatíu við Skandinav- isk Institutt for klassisk Homeopati og lauk þaðan prófum 1997, lærði höf- uðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð Martha Ernstsdóttir – 50 ára Heima í Skerjafirði Martha og Jón Halldór með sonunum þremur, Jóni Orra , Dagbjarti Daða og Darra. Er ekki lífið langhlaup? Fyrst í mark Martha sigrar í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmarþoni 2001. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Sérverslun með kvenfatnað og gjafavöru Gleðilega hátíð Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 Opið: Mán-fim: 12-18 - fös-lau: 12-16 Minnum á gjafabréfin - tilvalin jólagjöf! þökkum ánægjuleg viðskipti á árinu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.