Morgunblaðið - 22.12.2014, Page 31

Morgunblaðið - 22.12.2014, Page 31
hjá Upledger-stofnuninni á Íslandi 2001-2002, jógakennaranám frá Siv- ananda International Yogaschool 2007, auk þess sem ég hef tekið fjöldann allan af námskeiðum í sjúkraþjálfun, hómópatíu, jóga, höfuðbeina-spjaldhryggjarmeðferð og næringarfræði í tengslum við lífs- stílssjúkdóma og heilun.“ Martha þjálfar nú hlaupahópa og segist helst leggja áherslu á skyn- samlega þjálfun og góða heilsu. Hún kennir jóga, stendur fyrir heilsuhelg- um á Laugarvatni og á Vestfjörðum og tekur fólk í einkatíma í höfuð- beina-spjaldhryggjarmeðferð, ráð- gjöf og nuddi. Mikil íþróttafjölskylda En helstu áhugamálin, Martha? „Fjölskyldan og vinir eru helstu áhugamálin en síðan eru það lýð- heilsuheilbrigðismál. Mín uppáhalds- íþróttagrein er frjálsíþróttir enda er lífið langhlaup og ég búin að hlaupa kerfisbundið frá því ég var tvítug. Fjölskyldan mín er meira og minna á kafi í frjálsum, Jón, maðurinn minn, var landsliðsmaður í frjálsum svo ár- um skiptir og átti einu sinni Íslands- met í langstökki auk þess sem hann var landsliðsmaður í knattspyrnu. Systkin mín hafa hlaupið áratugum saman og mörg systkinabörnin eru í frjálsum. Einnig er sonur okkar Jóns mikið efni í spjótkastara og Darri er fyrrverandi landsliðsmaður í júdó. Ég hef verið svo lánsöm að fá tæki- færi til að æfa og keppa um allan heim og hef keppt á mörgum Evr- ópumeistaramótum, heimsmeistara- mótum og á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.“ Martha lenti í 3. sæti í vali á íþróttamanni ársins árið 1994: „Það var kosning sem mér hefur alla tíð þótt óskaplega vænt um.“ Fjölskylda Eiginmaður Mörthu er Jón Hall- dór Oddsson, f. 25.1. 1958, viðskipta- fræðingur og tölvunarfræðingur. Foreldrar hans: Kristín Guðrún Jónsdóttir, f. 10.6. 1928, og Oddur Guðjón Örnólfsson, f. 14.9. 1920, d. 18.7. 2008. Synir Mörthu og Jóns Halldórs eru Jón Orri Jónsson, f. 19.1. 1983, kerf- isstjóri í Reykjavík (stjúpsonur Mörthu) en kona hans er Margrét Sæný Gísladóttir efnafræðingur; Darri Kristmundsson, f . 17.8. 1987, geimverkfræðingur, búsettur í Sví- þjóð, en kona hans er Signý Tryggva- dóttir, mastersnemi í verkfræði; Dag- bjartur Daði Jónsson, f. 13.11. 1997, menntaskólanemi í Reykjavík. Systkini Mörthu eru Sveinn Ernstsson, f. 8.5. 1967, líffræðingur og kerfisfræðingur, búsettur í Reykjavík; Bryndís Ernstsdóttir, f. 24.1. 1971, kennari og mannauðs- fræðingur, búsett í Reykjavík. Hálfbróðir Mörthu, samfeðra, er Brendan Danielsson, f. 8.5. 1974, listamaður og grafískur hönnuður, búsettur í Bandaríkjunum. Foreldrar Mörthu eru Þorbjörg Bjarnadóttir, f. 28.12. 1936, tækni- teiknari, búsett í Reykjavík, og Ernst Peter Daníelsson, f. 8.12. 1936, d. 30.11. 2012, búsettur lengst af í Bandaríkjunum. Úr frændgarði Mörthu Ernstdóttur Martha Ernstsdóttir Steinunn Guðbrandsdóttir húsfr. á Akri Þorkell Helgason sjóm. á Akri við Bræðraborgarstíg í Rvík Daníel Þorkelsson málarameistari í Rvík Martha Christiane Friedrike húsfr. í Rvík Ernst Peter Daníelsson læknir í Bandaríkjunum Ernst Kämpferts vélaverkstj. í pappírs- verksm. í Altkloster í Hannover í Þýskalandi Bryndís Ernstsdóttir kennari og mannauðs- fræðingur Aníta Hinriksdóttir heims- og Evr. meistari unglinga í 800 m hlaupi Sveinn Ernstsson líffræðingur og kerfis- fræðingur í Rvík Árelía Mist Sveinsdóttir 8 ára Soffía S. Jóhannsdóttir húsfr. í Danmörku Rútur Þorsteinsson frá Hrútafelli undir Eyjafjöllum Svanhvít Rútsdóttir húsfr. á Hörgslandi og í Rvík Bjarni Loftsson b. á Hörgslandi á Síðu og síðar borgarstarfsm. í Rvík Þorbjörg Bjarnadóttir fyrrv. tækniteiknari í Rvík Þorbjörg Pétursdóttir húsfr. á Hörgslandi Loftur Ólafsson b. á Hörgslandi Íris Árnadóttir sálfræðingur og ráðgjafi Guðrún Elísabet Árnadóttir lögfræðingur Anna Sigríður Bjarnadóttir jógakennari Guðríður Þorkelsdóttir húsfr. í Rvík Ásgeir Birgir Ellertsson yfirlæknir í Rvík Einar Daði Lárusson tugþrautarm. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir prestur aldraðra í Rvík Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Hlaupakonan Martha Ernstsdóttir. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Stefán Jónsson rithöfundurfæddist á Háafelli í Hvítár-síðu 22.12. 1905. Foreldrar hans voru Jón Einarsson, lausamað- ur í Hvítársíðu, og k.h., Anna Stef- ánsdóttir húsfreyja. Jón var sonur Einars Jónssonar frá Fljótstungu, bróður Jóns, bónda á Leyni og síðar í Winnipeg, afa Guðmundar Böðvarssonar, skálds á Kirkjubóli í Hvítársíðu, föður Böðv- ars skálds og rithöfundar. Hálf- bróðir Einars og Jóns var Helgi, bóndi á Lambastöðum, afi Halldórs Laxness, föður Guðnýjar kvik- myndaleikstjóra. Anna var dóttir Stefáns Guðmundssonar, bónda í Tungu í Svínadal. Eiginkona Stefáns var Anna, dótt- ir Ara Stefánssonar, trésmiðs í Stöðvarfirði og í Reykjavík, og k.h., Mörtu Jónsdóttur húsfreyju. Stefán stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni og lauk kenn- araprófi frá Kennaraskóla Íslands 1933. Hann kenndi við Austurbæjar- skólann allan sinn kennsluferil frá 1933, sat í stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík, í stjórn SÍB og var ritstjóri tímaritsins Unga Íslands 1939-45. Þekktastar af vísum Stefáns fyrir börn eru Guttavísur en þekktustu skáldsögu hans fyrir börn er að finna í Hjaltabókunum, Sagan hans Hjalta litla, Mamma skilur allt og Hjalti kemur heim. Það er þroska- saga drengs á íslenskum sveitabæj- um á öðrum áratug síðustu aldar. Sagan er myndræn og lifandi, skrif- uð af miklu næmi fyrir barnssálinni og lýsir mjög vel aðstæðum og við- horfum síns tíma. Stefán fékk fyrstu verðlaun í smá- sagnakeppni Eimreiðarinnar fyrir söguna Konan á klettinum, 1933, og fyrir Kvöld eitt í september, 1940. Auk fjölda barnabóka skrifaði hann tvær skáldsögur fyrir fullorðna, Sendibréf frá Sandströnd og Vegur- inn að brúnni. Þótt Stefán sé þekktastur fyrir sögur sínar og vísur sem hann samdi fyrir börn er hann vissulega í hópi mikilhæfustu rithöfunda okkar á síðustu öld. Stefán lést 12.5. 1966. Merkir Íslendingar Stefán Jónsson 85 ára Ásta Karlsdóttir Inga Ingólfsdóttir Ingibjörg Friðriksdóttir Ingveldur Árnadóttir Magnea Erna Auðunsdóttir Páll Ágúst Hjálmarsson Sigríður Þorvaldsdóttir 80 ára Jón Hassing 70 ára Betzy Ívarsdóttir Bragi Guðmundur Kristjánsson Guðfinna Sveinsdóttir Guðrún Svava Svavarsdóttir Gylfi Gunnlaugsson Sóley Guðrún Sveinsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson 60 ára Árni Gústafsson Dýrborg Ragnarsdóttir Einir Ingólfsson Elísabet Steinunn Steinsdóttir Guðmundur Einarsson Guðný Erla Guðmundsdóttir Haraldur Þórarinsson Inga Jóna Jónsdóttir Ingibjörg Þorláksdóttir Ingibjörg Þórisdóttir Karl Jóhann Valdimarsson Pranciskus Unika Stefanía Þórarinsdóttir Ögmundur Gunnarsson 50 ára Fanney Gunnarsdóttir Grímur Þór Gíslason Halldóra Anna Jórunnardóttir Hansína Sturlaugsdóttir Högni Páll Harðarson José M. Duarte Da Fonseca Jón Sigurbjörn Ólafsson Jórunn Guðmundsdóttir Linda Wilaiphan Saengsutthi Vilborg Andrésdóttir Þórður Þórðarson 40 ára Anna María Júníusdóttir Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir Birna Guðrún Jónsdóttir Brynja Jónsdóttir Fjóla Björk Hauksdóttir Guðmundur Brynjar Lúðvíksson Hanh Thi Tran Hildur María Kristbjörnsdóttir Ragnheiður Eggertsdóttir Sigurlaug Íris P Hjaltested 30 ára Ágústa Helgadóttir Ómar Mehmet Annisius Reynir Ragnarsson Til hamingju með daginn 30 ára Jóna Kristín ólst upp í Reykjavík, er nú bú- sett í Reykjanesbæ, lauk BEd-prófi frá HÍ og er grunnskólakennari í Njarðvík. Systkini: Bjarki S. Her- mannsson, f. 1979, og Dísa Björg Jónsdóttir, f. 1990. Foreldrar: Erna Björk Guðmundsdóttir, f. 1960, kokkur, og Jón Bergur Gissurarson, f. 1948, húsasmíðameistari. Jóna Kristín Jónsdóttir 30 ára Guðlaug ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ og er hjúkrunarfræð- ingur á LSH. Dóttir: Álfrún Una, f. 2009. Systkini: Berglind, f. 1975, og Sigurbjartur Ingvar, f. 1979. Foreldrar: Helgi Sigur- bjartsson, f. 1955, húsa- smiður, og Kristín Karólína Bjarnadóttir, f. 1955, sölumaður. Guðlaug Helga Helgadóttir 30 ára Halla Kristín ólst upp í Reykjavík, er þar bú- sett, lauk prófum í vöru- hönnun við LHÍ og er í MA-námi í vöruhönnun við háskóla í Sydney í Ástralíu. Unnusti: Brendan Hough, f. 1984, lögfræð- ingur. Foreldrar: Halla Sigrún Arnardóttir, f. 1963, hjúkr- unarfræðingur, og Hann- es Birgir Hjálmarsson, f. 1963, kennari. Halla Kristín Hannesdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.