Morgunblaðið - 22.12.2014, Page 37

Morgunblaðið - 22.12.2014, Page 37
ekki hvort sem er flestir þéttir í dag eða með eitthvað örlítið utan á sér til að klípa í? Granna fólkið virðist í það minnsta bara lifa í tímaritum,“ segir Lóa og hlær en nokkuð er líka um naktar konur, bæði að ofan og neðan. Það segir hún helst tengjast sögunni sem verið er að segja á hverri mynd. „Oft sýnir þetta ástandið sem ein- staklingurinn er í, að hann er ekki fær til að klæða sig í brók.“ Uppruninn og ágreiningurinn Margir teiknarar, hvort heldur skopmyndateiknara eða aðrir, leita mikið í pólitíkina og deilumál í sam- félaginu. Lóa segist ekki vera póli- tísk í teikningum sínum og sé ekki að reyna að fanga pólitísk deilumál í samfélaginu. „Ég hef mínar skoðanir en þær rata ekki inn í teikningarnar mínar. Í það minnsta ekki viljandi.“ Hún segir teikningar sínar vera alls konar og fari oft bara eftir því hvað hún hafi mikinn tíma til að sinna hverri og einni. Hvaðan þessi einstaki stíll hennar kemur er erfitt að segja en Lóa sótti og lauk námi í Listaháskóla Íslands og er með meistaragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Hún sótti fram- haldsnám til Bandaríkjanna en þurfti frá að hverfa vegna efnahagshruns- ins. „Ég fór út árið 2007 mig minnir að dollarinn hafi verið eitthvað í kringum 60 krónur þegar ég fór út en var kominn í 140 þegar ég kom heim. Það var ekki nokkrum manni bært að búa í Bandaríkjunum á þessum tíma og vera með tekjur frá Íslandi eða lán. Ég kom því heim áður en ég náði að ljúka náminu.“ Lóa lætur það þó ekki stöðva sig enda teikningar hennar vikulegur gestur á heimilum landsmanna í Fréttatímanum og nýja bókin hennar hefur hlotið til- nefningu til fjöruverðlaunanna. í myndmáli Morgunblaðið/hag gur, er annar stofnenda FM Belfast og myndskreytir barnabækur. Í Lóabóratoríum rsónurnar eru í góðum holdum enda er víst skemmtilegra að teikna þær en grannar. Svart Skopskyn Lóu Hlínar er bleksvart, eins og sjá má af þessum dæmum. Kápan Ungar konur hæðast að eldri konu á kápu Lóaboratoríum. MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 2014 Karl Petersson ljósmyndari Stóru alifugla- bókarinnar hlýt- ur alþjóðlega við- urkenningu IDI fyrir matarljós- myndir. IDI, Int- eractive Design Institute, í Bret- landi, ásamt Há- skólanum í Hertfordskíri, veita ár- lega alþjóðlegar viðurkenningar á sviði grafískrar hönnunar, mynd- skreytinga, innanhússarkitektúrs og ljósmyndunar og hefur nú valið 11 bestu matarljósmyndara ársins 2014, að því er fram kemur í tilkynningu. Karl er þeirra á meðal, tilnefndur fyrir Íslands hönd en hann tók m.a. allar ljósmyndir fyrir Stóru alifugla- bókina og Stóru villibráðarbókina eftir Úlfar Finnbjörnsson. Karl hef- ur einnig myndað fyrir Gestgjafann, Morgunblaðið og fleiri til fjölda ára. „Ég hef stundað ljósmyndun í yfir 25 ár og sá lærdómur sem ég hef dregið af því er að þeim mun meira sem ég læri því minna veit ég … Matarljósmyndun snýst að mínu mati um persónulegt samband við mat og þau tilfinningalegu tengsl sem hann hefur fyrir mig. Það sem ég hef að leiðarljósi er að myndin kveiki mína eigin matarlyst, og það hefur því miður haft áhrif á mitt eig- ið mittismál,“ er haft eftir Karli í til- kynningu. Hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyr- ir matarljósmyndir Karl Petersson 12 16 16 -EMPIREJÓLAMYNDIN 2014 POWERSÝNING KL. 10 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU L L NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 2 - 4:30 - 5:50 - 8 EXODUS Sýnd kl. 7 - 10 (P) MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 7 - 10 BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2 - 4:30 MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 1:50 - 3:50 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar (lau&sun) 7 LITLU JÓLIN Í LAUGARÁSBÍÓI á allar myndir allan daginn.* *Tilboðið gildir ekki á forsýninguna á The Hobbit klukkan 20:00. Tryggðu þér miða á eða í miðasölu Laugarásbíós. Jólin byrja í Laugarásbíói 700 kr á Þorláksmessu 23. desember Jólasveinninn verður á staðnum allan daginn og gefur öllum nammipoka frá Nóa Síríus ásamt Svala eða kók frá Vífilfell á meðan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.