Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 87

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 87
Fyllist allt af sauðum svo varla sér í sandinn. Mál er að flokka, reka suma til byggða, ekki of marga í einu, nenni ekki að rétta, halda til haga. I stað þess að setja kindumar í kvíar set ég þær hverja í aðra, uns ég á bara eftir eitt lamb sem ég held á í fanginu. Um hálsinn er ullarlindi sem í er saumað, má borða. II. Lendi í villum Þennan áfangann kemur álagaþokan. Sést á norðurtindum, drottinn stýri vindum. Víst finn ég hana áður og kasta boltunum þótt mig gruni að brátt sjái ekki til fótanna. Sést á norðurfjöllum, drottinn hjálpi oss öllum. Kemur íshríðin, kemur þokan, kemur kafaldið, kemur þokan. Sést á hnjúkum, drottinn hjálpi sjúkum, það hallar undan fæti í undangjöf, fóturinn getur ekki annað en sett sig niður, hvert sem hann ber mig. Ekki þykist ég hræddur þótt ég hafi bara séð fjöllin á fingrum mér drjúgan spöl niður í mótí. Það er sem ég sjái þetta í kviksjá, þótt ég sé þar sjálfur. Það stafar af því að fylgst er með mér. Lendi í villum, læt hylla mig yfir í tröllaheima, sem sýnist þó ekki svo slæmt nú þegar þokunni loks tekur að létta. Geng fram á gnípu, set brjóstið fram og þá léttir þokunni framundan svo sést niður grænan og geðslegan dal. Auðvitað eru ekki mikil erlend áhrif í útilegu- mannadölum, ekki jeppar og kjúklingabúllur, við hverju bjóst ég? Þeir taka auðvitað ekki inn eins mikið af heiminum og fólkið í byggðum. Þótt hér sé allt þjóðlegt og vel þekkjanlegt er dalurinn þó allur líkastur órum, eins og veruleiki minn gangi inn í sögu, sem er sögð af fiski í sauðargæru. Ég geng glaður niður í móti með sauðina mína í lambi sem leikur í skítugum ullarlinda mínum og skokkar fagurleggjað milli steina sem breytast í þúfur. Þúfumar gefast brátt upp fyrir kjarri, sem í dalbotninum fram undan verður nýskógur njótandi verndunar skógræktarlaga. En frá því að niður á grængresið kom hefur lambið mitt viljað halda sig þar, hér eru lömb á líku reki. Ég gelti og glefsa í lendar lambsins míns, toga það og toga niður í móti, vil ekki missa, býð því meira að segja að éta kjarr, en fyrr en varir er lindinn einn í hendi og lambið stokkið og ég veit að ég hlýt að eiga erindi við dalbúa og verð að halda áfram. Geng hikandi með framréttar hendur og lafandi linda niður hallann, inn í skóginn. Lambið er horfíð mér og ekki hirði ég um það, er ekki lengur þess hirðir, fmn að hér liggja reglur í lofti, virði reglur dalsins auðvitað, til TMM 1993:2 85
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.