Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 2

Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 2
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 UMHVERFISMÁL „Staðan er það slæm þessa dagana víða í úthög- um að bændur telja vart nægan gróður til beitar með hliðsjón af velferð sauðfjár,“ segir Andrés Arnalds, fagmálastjóri Land- græðslunnar, um alvarlega stöðu gróðurs í úthaga um allt land. Það er mat Landgræðslunnar að ef ekki hlýnar fljótlega gæti stefnt í mikla ofbeit víða um land, líkt og gerðist á köldum árum á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Andrés segir að þá hafi fé að vísu verið um 900 þúsund en nú er það um 500 þúsund. Beitartími sé auk þess styttri nú og beitar- stjórnun í mörgu betri. Hins vegar hafi byggst upp mörg stór bú sem ekki ráða við að hafa féð heima þann tíma sem þarf til að brúa bil þar til úthagi heima fyrir, fjalllendi og afrétt- ir eru almennilega beitarhæfir. Einnig sé enn víða verið að beita illa farið land, sem er nú enn við- kvæmara en ella. Afleiðingar ofbeitar 1979, og áranna þar á eftir, var vistfræði- legt hrun margra afrétta. „Ég held að margir afréttanna séu ekki komnir í sama stand og þeir voru fyrir þessi hörðu ár. Það er mikið í húfi að leita leiða til að hafa fé lengur heima við því ekkert hefur eins mikil áhrif á beitarþol heimalanda og afrétta og hvenær beit er hafin,“ segir Andrés. Ekkert fé er þó komið á fjall ennþá bendir Andrés á. Mjög breytilegt sé hvenær menn beita fé sínu á afrétti – sögulega séð. Vandinn sé margþættur því það að halda fé heima skapi sjúk- dómahættu. „Það er þó illskárri kostur en að hleypa í ógróinn úthaga. Það varðar ekki aðeins áhrifin á gróð- ur heldur geta ærnar líka misst mjólkurnytina sem kemur hrika- lega niður á fallþunga í haust.“ Sama gildir um hrossahaga að sögn Andrésar. Menn fylgja nokkuð tímatalinu með að fara með hross í haga, horfa ekki nóg á sprettu, að hans mati. Ofbeitar- hætta er því mikil. Það er því ákall Landgræðsl- unnar að landgræðslumenn, bændur og í raun allir landsmenn þurfi að fylgjast vel með ástandi lands í ár og stuðla að aukinni gróðurvernd. „Það þarf að skoða mjög vel hvort landið getur tekið við þeim hrossafjölda sem settur er á það. Annars geta menn lent í vítahring ofbeitar, eins og dæmi eru um, og eyðilagt beitarhólfin,“ segir Andrés. svavar@frettabladid.is Stefnir í mikla ofbeit ef kalt helst í veðri Landgræðslan segir úthaga um allt land vera jafn illa undir beit búna og var í köldustu árum í kringum 1980. Þá varð vistfræðilegt hrun á mörgum afréttum vegna beitar. Að halda fé heima getur reynst bændum mjög dýrt og torsótt. Á BEIT Landið er fjarri því að þola beit, enda gróður góðum tveimur vikum á eftir. MYND/SVEINN Ég held að margir afréttanna séu ekki komnir í sama stand og þeir voru fyrir þessi hörðu ár. Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslunnar VEÐUR 11° 3° 5° 5° 11° 7 5 5 6 3 SJÁ SÍÐU 20 Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Í dag er útlit fyrir minnkandi norðanátt. Sunnan til þykknar upp og fer að rigna seinnipartinn, en að sama skapi mun stytta upp fyrir norðan. Hitastig er áfram svipað, 1 til 6 stig norðanlands en allt að 12 stig fyrir sunnan. FÓLK „Það er æðislegt að koma heim. Þetta er búið að vera langt og strangt en við vorum að koma úr vel heppnuðu verkefni,“ segir Einar Valsson, skipherra á varðskipinu Tý. Týr lagði að bryggju við Ægisgarð í gærmorgun en skipið hefur verið að sinna landamæragæslu Evrópusambandsins undanfarna sex mánuði. „Skipið hefur verið að sinna verkefninu síðan í nóvember með pásum. Núna vorum við úti í sjö vikur.“ Áhöfnin hefur bjargað rúm- lega tvö þúsund flóttamönnum frá Afríku við eftirlit sitt. Andrea, dóttir Einars, var ægilega ánægð með að hitta pabba sinn aftur eftir svo langan tíma. „Já, það er mjög gaman. Ég var farin að sakna hans svo rosalega mikið,“ segir Andrea. - srs Varðskipið Týr kom í höfn eftir sjö vikur á Miðjarðarhafi: Ánægð með að fá pabba heim SÁTTUR SKIPHERRA Andrea, dóttir Einars, faðmar pabba sinn innilega eftir langa sjóferð á varðskipinu Tý. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÉLAGSMÁL Hópur eldri borgara afhenti í gær Degi B. Eggerts- syni borgarstjóra undirskriftir með áskorun um að dagþjónustu í Þorraseli verði haldið áfram í óbreyttri mynd. Á áskorun hópsins segir að flestir gestir Þorrasels séu 87 ára gamlir og að sá elsti sé 97 ára. Það verði slæm röskun á högum þeirra ef Þorraseli verði lokað og hópurinn fluttur á Vest- urgötu 7. „Mörg okkar nota göngugrind- ur eða hjólastóla til að komast á milli innanhúss og úti. Hluti er að kljást við fyrstu stig alz- heimer eða elliglöp. Nokkur eru blind eða sjónskert og flest okkar nota heyrnartæki,“ segir í áskoruninni þar sem viðmót starfsmanna Þorrasels er lofað sem og andrúmsloftið í hópnum: „Við erum kvíðin ef af verð- ur og viljum vera áfram í sama umhverfi þar sem við þekkjum okkur vel og erum að ýmsu leyti sjálfbjarga.“ - gar Eldri borgarar vilja óbreytta þjónustu í Þorraseli og skora á borgarstjórn: Kvíða flutningi á Vesturgötu 7 ÁSKORUN Borgarstjóri tók við undirskriftum Þorraselshópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVISS Nokkrum dögum eftir endur- kjör sitt boðar Joseph Blatter afsögn sína sem forseti Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA, og segir jafnframt að kallað verði saman aukaþing hið fyrsta til að kjósa nýjan forseta. Bandaríska fréttastofan ABC seg- ist hafa heimildir fyrir því að Blatt- er sæti spillingarrannsókn banda- rísku alríkislögreglunnar, FBI, þótt hann hafi ekki verið einn þeirra 14 sem ákærðir voru í síðustu viku í tengslum við þessa sömu rannsókn. Á blaðamannafundi í Zürich í gær, þar sem Blatter tilkynnti um væntanlega afsögn, gaf hann enga skýringu á því hvað hefði breyst frá ársþinginu á föstudag, þegar hann var endurkosinn forseti eftir sautj- án ár í embættinu. Hann sagðist þó gera sér grein fyrir því að hann nyti ekki lengur þess trausts sem hann taldi sig hafa. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, segir tímasetninguna koma sér á óvart. Vonast hafði verið til þess að hann segði af sér á ársþingi sam- bandsins á föstudaginn var. „Nú bíður maður eftir því hvað gerist næst í málinu. Evrópuþjóðirn- ar ákváðu að ræða þetta mál næst á laugardaginn þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram í Evrópu,“ segir Geir. „En þetta var algjörlega nauðsynlegt enda hafði Evrópa kallað eftir breytingum.“ Samkvæmt reglum FIFA verður aukaþingið að öllum líkindum kallað saman einhvern tímann á tímabilinu frá desember á þessu ári fram til mars á næsta ári. - gb / esá Sepp Blatter, forseti FIFA, boðar afsögn sína og hyggst kalla saman aukaþing FIFA hið fyrsta: Sagður sæta rannsókn í Bandaríkjunum SEPP BLATTER Segist gera sér grein fyrir því að hann njóti ekki lengur nægi- legs stuðnings. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 E -9 7 B C 1 6 2 E -9 6 8 0 1 6 2 E -9 5 4 4 1 6 2 E -9 4 0 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.