Fréttablaðið - 03.06.2015, Side 42

Fréttablaðið - 03.06.2015, Side 42
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26 Í KVÖLD KL. 19:00 365.is Sími 1817 KEFLAVÍK–KR TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í SÍMA 1817 EÐA Á 365.IS Í fyrra léku liðin til úrslita í Borgunarbikarnum og þá höfðu Vesturbæingar betur en í kvöld geta Keflvíkingar náð fram hefndum á heimavelli. Ekki missa af beinni útsendingu í kvöld og Borgunarmörkunum á föstudagskvöld á Stöð 2 Sport. TENNIS Birkir Gunnarsson, fremsti tenniskappi Íslands, komst auðveldlega áfram í 2. umferð á Smáþjóðaleik- unum í gær þegar hann vann Bradley Callus frá Möltu í tveimur settum; 6-2 og 6-1. Hann mætir andstæðingi frá Andorra í næstu umferð. Rafn Kumar Bonifacius er aftur á móti úr leik, en hann tapaði fyrir Lauren Recouderc frá Andorra í gær í tveimur settum. Hjördís Rósa Guðmundsdóttir komst einnig áfram í einliðaleik í tennis þegar hún vann Judit Cartana frá Andorra í gær, 6-4 og 6-2. Tenniskeppnin fór vel af stað í Kópavogi í gær og var sjálfur Albert prins af Mónakó mættur í Tennishöllina til að fylgjast með sínu fólki. Birkir og Hjördís halda áfram í dag þegar keppni í 2. umferð hefst. Birkir og Hjördís komust áfram FRJÁLSAR Keppni hófst í frjálsum íþróttum á Laugardalsvelli í gær og fór íslenska keppnisliðið vel af stað. Tvær af fremstu frjáls- íþróttakonum landsins, Ásdís Hjálmsdóttir og Hafdís Sigurð- ardóttir, fóru fyrir íslenska lið- inu með því að vinna gull í sínum greinum. Aníta Hinriksdóttir, fremsta hlaupakona landsins, varð hins vegar að sætta sig við silfur í sinni sterkustu grein, 800 m hlaupi, þar sem hún var langt frá sínu besta. Karlarnir lögðu einnig sitt af mörkum en Hlynur Andrésson vann gull í 5000 m hlaupi. Stang- arstökkvarinn Krister Blær Jóns- son og kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson fengu silfur í sínum greinum. Spjótið fór næstum þversum Ásdís bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína í spjótkasti en lengsta kast hennar var 58,85 m. Hún er nýbúin að tryggja sig inn á HM í sumar og ÓL í Ríó á næsta ári með kasti upp á 62,14 m á móti í Lettlandi í síðustu viku. Hún er því í frábæru formi en sterkur vindur í gær gerði henni sem og öðrum keppendum erfitt fyrir. „Mér leist ekki á blikuna þegar ég fór að hita upp. Það var kalt og mikið rok,“ sagði Ásdís eftir sigur- inn í gær. „En það rættist úr þessu og að kasta rétt tæpa 59 metra í svona aðstæðum – þar sem spjótið fór næstum þversum í kastinu – er mjög gott. Þetta lofar ofboðslega góðu fyrir framhaldið.“ Hún var ekki nema 8 sentímetr- um frá mótsmetinu sem hún setti á leikunum í Kýpur árið 2009. „Markmiðið var að bæta það og það var pínu svekkjandi [að ná því ekki],“ segir Ásdís sem keppir einnig í kringlukasti á fimmtudag. Of sterkur meðvindur Hafdís Sigurðardóttir vann gull í langstökki og silfur í 100 m hlaupi. Hún náði risastökki strax í fyrstu atrennu er hún stökk 6,50 m. Það er bæting á Íslandsmeti hennar, 6,45 m, en er ekki gilt vegna of sterks meðvinds sem mældist 5,8 metrar á sekúndu. Hámarkið er 2 m/sek. „Það er frábært að fá gull í fyrstu grein og ágætis árangur. En veðrið setti strik í reikning- inn,“ sagði Hafdís sem hefði einn- ig bætt mótsmetið með stökki sínu. Hefði átt að keyra upp hraðann Aníta Hinriksdóttir þótti sigur- stranglegust í 800 m hlaupi þar sem hún er í heimsklassa. En hún fann sig ekki í rokinu í Laugar- dalnum og varð önnur, tæpum níu sekúndum frá sínum besta tíma. „Ég gerði smá mistök í hlaup- inu. Það var vindur en maður er vanur að æfa og keppa í þessu og það hefur gengið mjög vel,“ sagði Aníta eftir keppnina í gær. „Ég gerði mistök með því að fara of hægt af stað sem er önnur tak- tík en ég er vön. Ég hefði bara átt að keyra upp hraðann í byrjun.“ Hún segir að það hafi komið hik á keppendur þegar enginn tók af skarið. „Ég var ekki nógu grimm. Ég myndi segja að þetta hafi verið frekar misheppnað hlaup en hinar tvær eru mjög sterkar,“ sagði Aníta og bætti við að hún hefði alls ekki vanmetið keppinauta sína. Aníta keppir í 1500 m hlaupi á fimmtudag og svo boðhlaupi á laugardaginn. Hún fær því annað tækifæri þá til að vinna gullverð- laun fyrir íslenska liðið á Smá- þjóðaleikunum. Þórdís Eva stórefnileg Alls vann íslenska keppnisliðið til tíu verðlauna í gær. María Rún Gunnlaugsdóttir hlaut brons í spjótkasti, sem og Kristinn Þór Kristinsson í 800 m hlaupi og Ari Bragi Kárason í 100 m hlaupi. Keppni heldur áfram á morgun en í gær sýndu hlaupararnir Kol- beinn Höður Gunnarsson og Þór- dís Eva Steinsdóttir að þau eru til alls líkleg í 400 m hlaupi en bæði urðu þau fyrst í undanúrslit- um greinanna í gær. Þórdís Eva er aðeins fimmtán ára gömul og meðal efnilegasta frjálsíþrótta- fólks landsins. eirikur@365.is, ingvithor@365.is Gulldísir í Laugardalnum Ásdís Hjálmsdóttir og Hafdís Sigurðardóttir fóru fyrir íslenska frjálsíþróttalandsliðinu á fyrsta keppnisdegi Smáþjóðaleikanna. Þær unnu gull í sínum greinum við erfi ðar aðstæður. Aníta Hinriksdóttir fékk silfur. UPP Á SITT BESTA Ásdís sýndi mikinn stöðugleika við krefjandi aðstæður í Laugardalnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SUND Hrafnhildur Lúthersdóttir og Anton Sveinn McKee bættu bæði Íslandsmet í sundi á Smáþjóðaleik- unum í gær. Hrafnhildur vann gull í 200 m fjórsundi á nýju og glæsilegu Íslandsmeti þar sem hún bætti met Eyglóar Óskar Gústafsdóttur um 1,04 sekúndu. Tími Hrafnhildar var 2:13,83 mínútur og var einnig mótsmet. Eygló sigraði í sinni sterkustu grein í gær, 200 m baksundi, og kom í mark á 2:12,52 mínútum sem er um þremur sekúndum frá Íslands- og Norðurlandameti hennar. Íslandsmet Antons kom í 200 m fjórsundi og dugði til silfurs. Tími hans var 2:04,53 mínútur. Jóhanna Gerða Gústafsdóttir vann tvenn silfurverðlaun í gær en hún er systir Eyglóar. Þær voru saman í tveimur efstu þrepunum í 200 m baksundi í gær. Bryndís Rún Hansen varð önnur í 100 m skriðsundi en Ísland hlaut þrenn bronsverðlaun til við- bótar, Kristinn Þórarinsson í 200 m baksundi, Inga Elín Cryer í 200 m flugsundi og Ingibjörg Kristín Jóns- dóttir í 100 m skriðsundi. Keppni í sundi heldur áfram í Laugardalslauginni í dag. - esá Hrafnhildur stórbætti met Eyglóar GULL Hrafnhildur komst á pall í 200 m fjórsundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ SPORT HANDBOLTI „Ég er búinn að vera í fimm ár úti og hef náð að spara. Maður hefur verið að lifa á sparn- aðinum síðustu mánuði,“ segir Fannar Friðgeirsson sem er orð- inn atvinnulaus eftir að félag hans, Grosswallstadt, varð gjaldþrota. Fannar hefur ekki fengið greidd laun frá félaginu í fimm mánuði. „Sumir hafa ekki fengið laun í lengri tíma en það en það var allt- af sagt við okkur að þetta yrði í lagi. Þetta myndi reddast. Það gekk ekki alveg eftir hjá þeim. Við trúðum þeim í lengstu lög en því miður var ekkert að marka sem þeir sögðu.“ Félagið er farið í greiðslustöðv- un og leikmenn liðsins eru með lausan samning. Grosswallstadt mun hefja leik í neðstu deild en leikmenn liðsins þurfa að finna sér nýjan samastað. „Minn umboðsmaður er á fullu að finna möguleika núna en ekk- ert komið inn á borð. Ég er samt bjartsýnn á að finna mér eitthvað. Ég myndi helst vilja vera áfram í Þýskalandi en ég er samt opinn fyrir öðrum löndum. Ég er minnst spenntur fyrir því að koma heim,“ segir afmælisbarnið Fannar en hann varð 28 ára í dag. „Það er kominn júní og markað- urinn er svolítið mettaður. Þetta hefði mátt gerast fyrr. Ég tel mig hafa staðið mig ágætlega og von- andi hef ég lagt eitthvað inn á þessum fimm árum sem skilar mér samningi annars staðar.“ Leikmenn Grosswallstadt munu ekki spila lokaleik tímabilsins þar sem þeir eru ekki tryggðir lengur. - hbg Bjartsýnn á að fi nna eitthvert lið Fannar Friðgeirsson er atvinnulaus eft ir að félag hans fór á hausinn. HVAÐ NÆST? Fannar vill finna sér annað félag í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÚRSLIT PEPSI-DEILD KVENNA STJARNAN - VALUR 4-0 1-0 Írunn Þorbjörg Aradóttir (11.), 2-0 Ana Victoria Cate (19.), 3-0 Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (58.), 4-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir (74.). SELFOSS - ÞRÓTTUR 5-0 1-0 Donna Kay Henry (10.), 2-0 Erna Guðjóns- dóttir (18.), 3-0 Guðmunda Brynja Óladóttir (24.), 4-0 Dagný Brynjarsdóttir (29.), 5-0 Erna Guðjóns- dóttir (76.). STAÐAN Breiðablik 4 3 1 0 15-2 10 Þór/KA 4 3 1 0 13-5 10 Stjarnan 4 3 0 1 10-2 9 Valur 4 3 0 1 11-5 9 Selfoss 4 3 0 1 10-5 9 ÍBV 4 2 1 1 7-4 7 Fylkir 4 1 0 3 3-11 3 KR 4 0 1 3 3-11 1 Afturelding 4 0 0 4 3-16 0 Þróttur 4 0 0 4 0-14 0 BORGUNARBIKAR KARLA 32-LIÐA ÚRSLIT FJARÐABYGGÐ - KÁRI 4-0 1-0 Brynjar Jónsson (3.), 2-0 Ólafur Örn Eyjólfsson (28.), 3-0 Ingvar Ásbjörn Ingvarsson (78.), 4-0 Viðar Þór Sigurðsson (88.). VÖLSUNGUR - GRINDAVÍK 3-4 0-1 Alejandro Hernandez (7.), 0-2 Ásgeir Þór Ingólfsson (12.), 0-3 Óli Baldur Bjarnason (33.), 0-4 Óli Baldur Bjarnason (41.), 1-4 Peter Odrobena (61.), 2-3 Sæþór Olgeirsson (82.), 3-4 Rafnar Smárason (87.). KA - ÁFLTANES 4-0 1-0 Ævar Ingi Jóhannesson (49.), 2-0 Orri Gúst- afsson (73.), 3-0 Ólafur Aron Pétursosn (75.), 4-0 Ben Everson (85.). ÞRÓTTUR R. - BÍ/BOLUNGARVÍK 4-1 0-1 Josepth Spivack (27.), 1-1 Viktor Jónsson (47.), 2-1 Viktor Jónsson (59.), 3-1 Viktor Jónsson (68.), 4-1 Davíð Þór Ásbjörnsson (89.). KV - FRAM 2-1 1-0 Davíð Steinn Sigurðarson (46.), 1-1 Orri Gunnarsosn (52.), 2-1 Brynjar Orri Bjarnason (80.). SMÁÞJÓÐALEIKAR Fimleikakonur fengu gull Ísland bar sigur úr býtum í liðakeppni kvenna í keppni í áhaldafimleikum sem fór fram á Smáþjóðaleikunum í gær. Íslenska kvennaliðið varði þar með titil- inn frá því í Lúxemborg fyrir tveimur árum og það gerði einnig Dominiqua Alma Belanyi sem bar sigur úr býtum í fjölþraut kvenna. Karlalandsliðið vann silfur en bestum árangri í fjölþraut náði Valgarð Reinhardsson sem vann brons. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 0 -2 C 9 C 1 6 3 0 -2 B 6 0 1 6 3 0 -2 A 2 4 1 6 3 0 -2 8 E 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.