Fréttablaðið - 03.06.2015, Side 16

Fréttablaðið - 03.06.2015, Side 16
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, VALGARÐUR AGNAR JÓNSSON vélvirkjameistari, Öldustíg 17, Sauðárkróki, lést á LSH í Fossvogi laugardaginn 30. maí. Jarðarför hans fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 5. júní, kl. 14.00. Þökkum auðsýnda samúð. Erna Maríanna Flóventsdóttir Sigmundur Haukur Jakobsson Þórhildur Karlsdóttir Jón Gunnar Valgarðsson Helga J. Baldursdóttir Ómar Valgarðsson Birna F. Jónasdóttir Sigurlaug Hrönn Valgarðsdóttir Margeir Friðriksson Birgir Valgarðsson Halldóra Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN J. GUÐMUNDSSON Hólabraut, Reykjadal, (Lindasíðu 4, Akureyri) lést á Akureyri á hvítasunnudag, 24. maí. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 8. júní kl. 13.30. Guðmundur Eggert Björnsson Birgitta Granqvist Ragnheiður Björnsdóttir Jóhann Karlsson Ásta Björnsdóttir Sigurjón Valdimarsson Arna Jakobína Björnsdóttir Skúli Rúnar Árnason Guðm. Kolbeinn Björnsson Guðlaug Jónína Ágústsdóttir Birna Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET KRISTINSDÓTTIR Seiðakvísl 3, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 4. júní nk. kl. 13.00. Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir Reynir Vignir Sveinn Guðmundsson Birna Guðmundsdóttir Kolbeinn Finnsson barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginmaður, faðir, afi og langafi, MAGNÚS PÁLSSON verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtu- daginn 4. júní kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið, nr. 0301-26-000706, kt. 7001692789. Sylvia Briem Helgi Briem Magnússon Þóra Emilsdóttir Páll Briem Magnússon Anna G. Gunnarsdóttir Iðunn Magnúsdóttir Valgarður Guðjónsson Sæunn Magnúsdóttir Friðjón Hólmbertsson barnabörn og barnabarnabörn. Rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórs- son á 45 ára afmæli í dag. „Manni finnst maður samt alltaf vera 15 ára,“ segir hann glaður í bragði. Nítján ár eru liðin frá því að fyrsta skáldsaga Stefáns Mána, Dyrnar á Svörtufjöll- um, kom út. Stefán hefur sent frá sér margar vinsælar skáldsögur og verið einstaklega afkastamikill undanfarin ár. Alls hafa sex skáldsögur eftir hann komið út síðustu fjögur árin. „Mér finnst það nú ekki merkilegt í sjálfu sér, að skrifa bók á nokkrum mánuð- um. Ef menn ætla að kalla sig rithöf- unda á annað borð þurfa þeir að skila einhverju af sér.“ Stefán Máni segist temja sér öguð vinnubrögð þegar kemur að rithöfund- arstarfinu. „Já, ég sest niður á morgn- ana og byrja að skrifa. Ég er iðinn og duglegur. Svo er þetta líka spurning um salt í grautinn. Ef maður ætlar að lifa á þessu verður maður að skrifa. Ég veit ekki hvort ég væri svona duglegur ef ég væri ríkur og saddur,“ útskýrir hann. Stefán segir að maður verði seint ríkur af því að vera rithöfundur. „Það er algjört rugl að lifa á þessu. Ég mæli ekki með þessu fyrir nokkurn mann.“ Margir eftirminnilegir karakterar hafa orðið til á blaðsíðunum í bókum Stefáns Mána. Einn af þeim eftir- minnilegri er líklega hinn harðsvír- aði Óðinn Elsuson. „Já, hann er svolít- ið „legend“,“ útskýrir Stefán Máni og heldur áfram: „Hann birtist fyrst sem aukakarakter í Skipinu. En ég skynjaði hann allan einhvern veginn. Þegar svo- leiðis gerist langar mann að gefa þann- ig karakterum meira vægi.“ Óðinn varð svo aðalpersónan í Ódáðahrauni. „Hann steig fram alveg heilsteyptur. Stundum gerist þetta, að karakterar verði bara til allt í einu og birtist bara hjá mér með sína fortíð. Þetta er svo- lítið skrítið. Hann byrjar bara að tala hjá mér og getur romsað endalaust.“ Stefán Máni hefur gert undirheim- um Reykjavíkur nokkuð góð skil í skáldsögum sínum en segist ekki hafa nein tengsl við þann heim: „Maður dró sig hratt út úr þessum heimi eftir að hafa skrifað Svartur á leik. En þessi heimur heillar alltaf. Það eru þó tak- mörk fyrir því hvað maður nennir að elta ólar og þetta er oft vandmeðfarið efni.“ Raunar er það þannig að síðasta bók sem Stefán sendi frá sér var ung- lingabókin Nóttin langa. „Það er öðru- vísi að skrifa fyrir unglinga. Í raun er það tvennt sem er helst ólíkt því að skrifa skáldsögur fyrir fullorðna. Í fyrsta lagi þarf að tóna niður grafísk- ar lýsingar og vera aðeins meira „PC“. Hitt er að vera ekki hallærislegur. Að unglingarnir kaupi það sem maður skrifar. Ég er með hóp af unglingum sem les yfir fyrir mig og segir mér ef eitthvað má betur fara.“ Stefán Máni byrjaði að halda upp á afmælið sitt á sunnudagskvöld og enda veisluhöldin í kvöld. „Ég byrjaði að halda lambalærisveislu á sunnudag og í kvöld fer ég út að borða á Kola- brautinni með góðum hópi. Ég á vin sem á afmæli sama dag og ég. Við höldum gjarnan upp á afmælið okkar saman.“ Þegar Stefán Máni er spurður út í næstu verkefni grípur hann í póker- líkingar: „Ég ætla að halda spilunum þétt að mér. Ég sýni ekki svipbrigði. Ég gæti farið „all in“, eins og þeir segja. Það eina sem ég vil gefa út er að ég er ekki dauður úr öllum æðum,“ segir Stefán á afmælisdaginn. kjartanatli@frettabladid.is Er búinn að halda upp á afmælið frá sunnudegi Rithöfundurinn Stefán Máni er 45 ára í dag. Hann fer yfi r starfshætti sína sem rit- höfundur og minnist áhugaverðra karaktera sem hann hefur skapað í tilefni dagsins. AFKASTAMIKILL Stefán Máni hefur sent frá sér sex skáldsögur á síðustu fjórum árum. Bækur Stefáns Mána (1996) Dyrnar á Svörtufjöllum (1999) Myrkravél (2001) Hótel Kalifornía (2002) Ísrael: saga af manni (2004) Svartur á leik (2005) Túristi (2006) Skipið (2008) Ódáðahraun (2009) Hyldýpi (2011) Feigð (2012) Húsið (2013) Úlfshjarta (2013) Grimmd (2014) Litlu dauðarnir (2015) Nóttin langa MERKISATBURÐIR 1844 Síðustu tveir geirfuglarnir sem vitað er um eru veiddir í Eldey. 1885 Síðasta orustan sem háð var á kanadískri jörð til dagsins í dag fer fram. Leiðtogi cree-indíána, Stóri-Björn, sleppur undan kanadískum yfirvöldum. 1866 Pétur Pétursson er vígður biskup. 1932 Ríkisstjórn undir forsæti Ásgeirs Ásgeirssonar tekur við völdum. 1937 Flugfélag Akureyrar er stofnað. 1940 Þýski flugherinn hefur loftárás á París í síðari heimsstyrj- öldinni. 1946 Fimm farast og fimmtíu manns missa heimili sín í miklum eldsvoða á Ísafirði. 1951 Fyrsta óperan er uppfærð í Þjóðleikhúsinu, Rigoletto eftir Verdi. 1954 Ein fyrsta ísbúð á landinu er opnuð, Dairy Queen við Hjarðarhaga í Reykjavík. 1974 Menntaskólinn á Ísafirði útskrifar fyrstu stúdentana. 1989 Kínversk stjórnvöld senda hersveitir inn á Torg hins himneska friðar til að freista þess að stöðva stúdentamótmæli. 2006 Svartfjallaland segir sig úr ríkjasambandi við Serbíu og hlýtur sjálfstæði. Fílharmóníuhljómsveit Hamborgar, undir stjórn Jóns Leifs, hélt tónleika í Iðnó þennan dag fyrir 85 árum. Tónleikarnir voru síðasti viðburður í tónleikaferð hljóm- sveitarinnar um Norðurlöndin og mörkuðu tímamót í menningarlífi Reykjavíkur. Í dómi um tónleikana segir að þetta hafi verið „mesti viðburðadagurinn í listasögu þessa lands“. Fílharmóníuhljómsveit Hamborgar var ein frægasta hljómsveit í Evrópu, skipuð 40 manns og hélt alls átta tónleika í Iðnó og fimm í Dómkirkjunni. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem fullskipuð sinfóníu- hljómsveit lék hér á landi. Á dagskránni voru meðal annars verk eftir Jón Leifs, Minodrama og sorgargöngulag úr Galdra-Lofti og for- leikurinn Minni Íslands. Jón Leifs sigldi til Þýskalands 17 ára og lagði stund á tónlistarnám. Hann kvæntist konu af gyðingaættum og bjó í Þýskalandi allt til ársins 1944. ÞETTA GERÐIST 3. JÚNÍ 1926 Tónleikar fyrir næstum níu áratugum 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 F -C E C C 1 6 2 F -C D 9 0 1 6 2 F -C C 5 4 1 6 2 F -C B 1 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.