Fréttablaðið - 03.06.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 03.06.2015, Blaðsíða 12
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 SJÁVARÚTVEGUR Fiskimjölsverk- smiðjur Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað og á Seyðisfirði hafa tekið á móti um 79 þúsund tonnum af kolmunna það sem af er ver- tíðinni. Alls hafa 45 þúsund tonn komið að landi í Neskaupstað og 34 þúsund tonn á Seyðisfirði. Gunnar Sverrisson, rekstrar- stjóri fiskimjölsverksmiðju Síldar vinnslunnar, segir í frétt á vef fyrir tækisins að útlit sé fyrir ágætt ár hjá fiskimjölsverksmiðj- unni á Seyðisfirði en hún hefur tekið á móti 70 þúsund tonnum af hráefni það sem af er ári, þar af 36 þúsund tonnum af loðnu. Guðjón B. Magnússon, verk- smiðjustjóri í Neskaupstað, upp- lýsir að verksmiðjan þar hafi tekið á móti 103.500 tonnum af hráefni það sem af er árinu og þar vegi loðnan þyngst. Dofnað hefur yfir kolmunna- veiðunum í færeysku lögsögunni nú síðustu dagana og eru skipin að leita mun norðar en áður. - shá Lítil kolmunnaveiði og íslensku skipin á leið heim fyrir sjómannadaginn: Vertíðin hefur gefið 79.000 tonn BJARNI ÓLAFSSON Skipin flykkjast brátt heim fyrir hátíð sjómanna um helgina. MYND/HÁKON ERNUSON MANNRÉTTINDI Bæjarráð Garða- bæjar hefur samþykkt að hinseg- in fræðsla verði veitt í bænum. Skólanefnd bæjarins á að útfæra tillögur um fræðsluna sem á að vera í samstarfi við Samtökin ’78. Áður hafa Hafnafjörður, Kópa- vogur og Árborg samþykkt að útfæra hinsegin fræðslu í sínum sveitarfélögum auk Reykjavíkur sem hefur verið með samstarfs- samning við Samtökin ’78 síðan 2012. - srs Hinsegin fræðsla í Garðabæ: Í samstarf við Samtökin ’78 Lyfjaauglýsing 20% afsláttur af 100g og 150g Voltaren Gel í júní Skráning stendur yfir í síma 564 4030 og á tennishollin.is BYRJENDANÁMSKEIÐ Í TENNIS FYRIR FULLORÐNA eru að hefjast ÞÝSKALAND Helmut Kohl, fyrr- verandi kanslari Þýskalands, hefur legið þungt haldinn á gjör- gæslu í þrjár vikur á sjúkrahúsi í Heidelberg. Þýska tímaritið Bunte segir Kohl hafa verið meðvitundarlaus- an dögum saman eftir að hafa gengist undir aðgerð. Kohl, sem er 85 ára, var kansl- ari 1982-1998 og átti ríkan þátt í friðsamlegri sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands eftir fall Berlínarmúrsins árið 1989. - gb Í gjörgæslu í þrjár vikur: Helmut Kohl þungt haldinn BELGÍA Lánardrottnar Grikklands hafa komist að samkomulagi og hyggj- ast kynna Grikkjum tillögur sínar í dag. Þetta fullyrti gríska dagblaðið Ekathimerini á vefsíðum sínum í gær. Grikkir lögðu fram sínar tillögur að lausn skuldavandans á mánudag, en samkvæmt heimildum Ekathimerini eru þær tillögur töluvert óljósari en hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, evruríkjanna og Seðlabanka Evrusambandsins. Gríska stjórnin hefur reynt að komast undan því að fylgja umsam- inni áætlun um endurgreiðslu skulda sinna til þessara þriggja stærstu lánardrottna sinna. Alexis Tsipras forsætisráðherra segir hugmyndir stjórnar sinnar raunhæfar, en lánardrottnarnir virðast ekki alfarið á sama máli. Næsti stóri gjalddagi er á föstudaginn, en þá eiga þeir að greiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 300 milljónir evra. Stórir gjalddagar reka síðan hver annan næstu vikurnar, en stærsta endurgreiðslan á að vera í næsta mánuði. Þann 20. júlí á Grikkland að greiða 3,5 milljarða evra til Seðlabanka ESB. - gb Lánardrottnar Grikklands komust að niðurstöðu: Grikkjum gert tilboð ALEXIS TSIPRAS Forsætisráðherra Grikklands hefur neitað að hlíta fyrri skilmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA BANDARÍKIN Öldungadeild Banda- ríkjaþings samþykkti í gær með 62 atkvæðum gegn 27 Frelsis- lögin svonefndu, sem veita leyni- þjónustustofnunum heimildir til þess að stunda margvíslegt eftir- lit með borgurum landsins. Eftirlitinu verða þó settar strangari skorður en í fyrri lögum, Föður landslögunum svo- nefndu, sem runnu út um mán- aðamótin. Í gær samþykkti deild- in jafnframt að framlengja að hluta Föðurlandslögin, sem upp- haflega voru sett í kjölfar hryðju- verkanna 11. september 2001 til að tryggja öryggi Bandaríkjanna. Öldungadeildarþingmaðurinn Ron Wyden segir Frelsislögin mikil vægasta sigur sem unnist hafi í baráttunni fyrir borgara- réttindum í Bandaríkjunum í meira en áratug. Bandaríska þjóðaröryggis- stofnunin hefur ekki lengur þær víðtæku heimildir til eftir- lits með símanotkun og netsam- skiptum fólks, sem Föðurlands- lögin veittu. Repúblikanar í öldungadeild töldu heimildirnar í nýju lög- unum hins vegar ekki nógu víð- tækar og reyndu að gera á þeim breytingar, en þær breytingar- tillögur voru allar felldar í gær í atkvæðagreiðslu í deildinni. Lögin hafa þegar verið sam- þykkt í fulltrúadeild þingsins og Barack Obama forseti hefur lagt blessun sína yfir þau, þannig að þau taka væntanlega gildi um leið og hann hefur undirritað þau. Gildistími fyrri laga rann út um mánaðamótin og þar með hætti Bandaríska þjóðarörygg- isstofnunin, NSA, hinni stórtæku upplýsingasöfnun, sem Edward Snowden ljóstraði upp um fyrir nærri tveimur árum. Aðrar leyniþjónustustofnan- ir Bandaríkjanna hafa heldur ekki lengur heimild til að stunda margvíslegt annað eftirlit með athöfnum fólks, til dæmis með viðskiptum sem grunur leikur á að geti tengst hryðjuverkastarf- semi. Upphaflega var það talið vera einfalt afgreiðsluatriði að fram- lengja lagaheimildirnar, en uppljóstranir Edwards Snow- den settu strik í þann reikn- ing og andstaðan við njósnirnar hefur verið töluverð, bæði meðal almennings og meðal banda- rískra þingmanna. Ef breytingartillögur McConn- els hefðu verið samþykktar í gær hefði frumvarpið aftur komið til kasta fulltrúadeildarinnar, sem að öllum líkindum hefði ekki samþykkt útgáfu öldungadeildar- innar óbreytta, og sent enn aðra útgáfu aftur til öldungadeildar. gudsteinn@frettabladid.is Þingið sendi lögin áfram til Obama Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær ný lög um eftirlitsheimildir leyni- þjónustunnar. Breytingartillögur repúblikana voru allar felldar. Fyrri lagaheim- ildir runnu út um mánaðamótin, en nú verða eftirlitinu settar strangari skorður. MITCH MCCONNELL Leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings gengur til þings í gær, áður en gengið var til atkvæða. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ➜ Edward Snowden ljóstraði fyrir nærri tveimur árum upp um víðtækar njósnir Banda- ríkjanna um símnotkun fólks víða um heim. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 E -6 B 4 C 1 6 2 E -6 A 1 0 1 6 2 E -6 8 D 4 1 6 2 E -6 7 9 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.