Fréttablaðið - 03.06.2015, Side 32
USD 132,48
GBP 203,22
DKK 19,80
EUR 147,70
NOK 16,92
SEK 15,69
CHF 141,90
JPY 1,07
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE 100
6.928,27 -25,31
(-0,36%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
3 NÝIR Í STJÓRN
Fulltrúi golfnefndar í stjórn FVH
Ný stjórn Félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga hefur verið kjörin fyrir starfsárið
2015-2016. Þrír nýir tóku sæti í stjórninni,
þau Ólafur Reimar Gunnarsson og Vala
Hrönn Guðmundsdóttir, auk Sverris Sigur-
sveinssonar sem er fulltrúi golfnefndar í
stjórninni. Golfmót FVH verður haldið í lok
ágúst. Kosið er í embætti stjórnar til tveggja
ára í senn.
19,5 MILLJARÐAR
Þjónustujöfnuður jákvæður
Samkvæmt Hagstofu Íslands var þjónustujöfn-
uður við útlönd jákvæður um 19,5 milljarða
króna á fyrsta ársfjórðungi 2015. Heildar-
útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi
2015 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 101,2
milljarðar króna en innflutningur á þjónustu
81,8 milljarðar. Þjónustujöfnuður við útlönd var
því jákvæður um 19,5 milljarða króna á fyrsta
ársfjórðungi en var jákvæður um 15,6 milljarða
á sama tíma árið 2014 á gengi hvors árs.
02.06.2015 Ég er harmi sleginn yfir fregnum
dagsins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga
að binda vegna þessa máls. Forsætisráðherra fjár-
magnaði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki
hlut í blaðinu. Að öðru leyti óska ég eftir því að
tekið sé tillit til þess að hér er mannlegur harm-
leikur á ferðinni og að aðgát skuli höfð í nær-
veru sálar.
Björn Ingi Hrafnsson útgefandi.
Í fréttum síðustu viku var sagt
frá því að háar greiðslur tíðkuðust
til starfsmanna Kaupþings fyrir
stjórnarsetu erlendis – til að mynda
væru meðalárslaun stjórnarmanna
í bresku tískukeðjunni Karen
Millen tæplega 60 milljónir króna
en þar situr meðal annars yfirmað-
ur eignastýringar Kaupþings.
ÞETTA er til viðbótar ríflegum
mánaðarlaunum, sem að sögn
nema að meðaltali 1,6 milljónum
króna á mánuði hjá starfsmönnum
Kaupþings. Þeir starfsmanna, sem
treyst er fyrir stjórnarsetu erlend-
is, bera væntanlega talsvert meira
úr býtum.
STJÓRNARMAÐURINN verður síð-
astur til að gagnrýna vegleg launa-
kjör fyrir fólk sem stendur sig vel,
og sinnir störfum sem skapa verð-
mæti.
ERFITT er hins vegar að halda
því fram að slíkt eigi við í tilviki
fallins íslensks banka, þar sem
fólk hefur frekar skipast í störf á
grundvelli tilviljunar en sérþekk-
ingar eða reynslu. Það er heldur
engin alþjóðleg eftirspurn eftir því
annars ágæta fólki sem séð hefur
um uppgjör íslensku bankanna, og
óljóst hvað réttlætir betri kjör en
almennt gengur og gerist í íslensk-
um fjármálageira.
KAUPÞING er í slitameðferð og
hefur verið síðan á haustdögum
2008. Merkilegt í ljósi þess mark-
miðs allra skiptastjóra að hámarka
þær eignir sem liggja í búinu og
ljúka skiptum á tilhlýðilegum tíma.
Á ÞEIM sjö árum sem liðin eru frá
hruni hafa orðið sáralitlar breyt-
ingar á erlendu eignasafni Kaup-
þings. Bankinn hefur ekki selt
verulega eign ótilneyddur frá söl-
unni á tískufatakeðjunni All Saints
árið 2011. Til samanburðar þá lauk
formlegum skiptum bandaríska
fjárfestingarbankans Lehman
Broth ers fyrir réttum þremur
árum. Skýringa á aðgerðaleysi
Kaupþingsmanna þarf hins vegar
varla að leita langt.
ÞEIR fá ríkulega umbunað, og af
fréttaflutningi virðast þeir fá að
stinga stjórnarlaunum í eigin vasa.
Það er nokkuð óvanalegt en hefðin
er sú að umsýslulaun vegna fjár-
festinga renni til félagsins sem á
hlutinn, en ekki þess starfsmanns
sem sér um fjárfestinguna fyrir
þess hönd.
FYRIR liggur að margir hafa sýnt
eignum Kaupþings í Bretlandi
áhuga, og þá ef til vill sérstaklega
tískuverslanakeðjunum Karen
Millen, Warehouse, Oasis og Coast.
Efnahagshorfur í Bretlandi eru
góðar og Kaupþingsmenn sitja á
þekktum vörumerkjum sem þeir
hafa ekki sérstaka kunnáttu eða
eigendaástríðu til að reka.
HINGAÐ til hafa þeir hins vegar
ekki hirt um að svara símtölum frá
áhugasömum kaupendum. og skyldi
engan undra. Hvatinn er enginn.
Eilífðarvél
Kaupþings
LIFÐU í NÚLLINU!
Til hvers að flækja hlutina?
*Greitt er 9,7 kr. upphafsgjald þegar
hringt er úr heimasíma
4 GSM áskriftir
60 mín. og 60 SMS
Heimasími
100 mín.*
Internet
20 GB
60 mín. og 60 SMS fylgja hverri áskrift
Með Skemmtipakkanum fylgja sex sjónvarpsstöðvar, GSM,
internet, heimasími, Stöð 2 Maraþon og aðild að Vild.
SKEMMTIPAKKINN
Öll vitum við að margt af því besta í lífinu kostar ekki neitt. Það fer svo sannarlega ekki fram hjá þeim sem eru með Skemmtipakka
365 eða aðra valda pakka, því nú er GSM áskriftin líka innifalin. Þannig geta viðskiptavinir 365 talað í 60 mínútur og sent 60 SMS fyrir
0 krónur. Viðskiptavinir fá einnig 20 GB í interneti og 100 mín. í heimasíma á 0 kr. Allt þetta ásamt frábærri sjónvarpsdagskrá!
Komdu í áskrift og lifðu í núllinu með okkur.
©2015 Home Box Office, Inc. All rights reserved.
HBO® and all related programs are the property
of Home Box Office, Inc.
365.is
Sími 1817
Aðeins 310 kr. á dag
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
0
-5
D
F
C
1
6
3
0
-5
C
C
0
1
6
3
0
-5
B
8
4
1
6
3
0
-5
A
4
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K