Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 4

Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 4
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Erla, er allt þegar þrennt er? „Já við skulum svo sannarlega vona það.“ Erla Hlynsdóttir blaðamaður lagði ríkið þriðja sinni fyrir mannréttindadómstól Evrópu vegna skrifa sinna sem blaðamaður. STJÓRNMÁL Frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráð- herra um losun fjármagns- hafta var ekki kynnt á fundi ríkisstjórnar í gær. Bjarni hefur boðað að frumvarpið verði lagt fyrir á vorþingi. Reyna á að taka málið fyrir á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Heimildir Fréttablaðsins herma að fyrirhugað hafi verið að fjalla um frumvarpið í ríkisstjórn á föstudaginn var, en því hafi verið frestað vegna kynningar á tillögum ríkisstjórnarinnar um ýmsar aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum. - kóp Enn töf á haftafrumvarpi: Fór ekki fyrir ríkisstjórn í gær KÍNA Björgunarmenn reyndu í gær ákaft að bjarga fólki úr skemmti- ferðaskipinu sem fórst í Yangtse-fljóti í Kína á mánudag. Hundraða manna var enn saknað. Alls voru 456 manns um borð. Tekist hafði að bjarga 15 þeirra en vitað var að fimm voru látnir. Óttast var að flestir hinna hefðu einnig látist þegar skipinu hvolfdi. Meðal þeirra, sem björguðust, voru bæði skipstjóri og vélstjóri skipsins. Þeir voru báðir í haldi lögreglu í gær. Skipstjórinn sagði skipið hafa lent í fellibyl og sokkið á fáeinum mínútum. - gb Kínverskir björgunarmenn í kapphlaupi við tímann: Hundraða manna enn saknað BJARGAÐ ÚR SKIPINU Björgunarmönnum hafði í gær tekist að bjarga nokkrum úr skipinu, þar á meðal konu sem þarna er bjargað upp á kjöl skipsins. NORDICPHOTOS/AFP SAKAMÁL Reyfarakennd atburða- rás átti sér stað í hádeginu á föstudag þegar sérsveit ríkis- lögreglustjóra sat fyrir systrun- um Hlín Einarsdóttur og Malín Brand sunnan Vallahverfis í Hafnarfirði. Var það gert í kjölfar þess að bréf merkt Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsæt- isráðherra, barst á heimili þeirra hjóna í Ystaseli. Bréfið var sent með pósti og fjölskyldan varð þess vör síðdegis á fimmtudag og í kjölfarið var hringt í lögreglu. Í bréfinu var hótun um að upp- lýst yrði um fjárhagstengsl Sig- mundar Davíðs og Björns Inga Hrafnssonar, eiganda Vefpress- unnar ehf. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins var bréfið að hluta handskrifað og að hluta til samsett úr stafaúr klippum. Systurnar játuðu að eiga aðild að málinu en Malín sagði í sam- tali við Vísi í gær að hún hefði ekki sent bréfið heldur farið með systur sinni, þar sem hún taldi ekki líklegt að nokkur myndi taka þetta alvarlega. „Kjarni málsins er að þarna blandast ég inn í atburðarás sem ég hvorki skipulagði né tengdist á nokkurn hátt nema fjölskylduböndum,“ sagði Malín. Bréfinu fylgdu leiðbeiningar um hvernig koma ætti pening- unum til skila en þar var fyrir- skipað að þeim yrði komið fyrir við Krísuvíkurveg sunnan Valla- hverfis. Sérsveit ríkislögreglu- stjóra handtók systurnar þegar þær voru að nálgast fjármunina. Systurnar voru færðar til yfir- heyrslu hjá lögreglu þar sem þær játuðu aðild að málinu en yfir- heyrslan stóð í sólarhring. Húsleitir voru gerðar í fram- haldinu á heimili þeirra beggja, annars vegar á heimili Malínar á Selfossi og hins vegar á heim- ili Hlínar við Kristnibraut í Grafarholti þar sem sönnunargagna var leitað. Símar og tölv- ur í þeirra eigu voru gerð upptæk. Þeim var sleppt að lokinni yfirheyrslu og málið telst að mestu upplýst. Ríkissaksóknari tekur ákvörðun um næstu skref. Ekki er vitað hvort upplýs- ingar sem talað er um í bréfinu eru til en Hlín var sambýlis- kona Björns I n g a f r á árinu 2011 til ársins 2014. Hú n va r ritstjóri Bleikt.is, vefsíðu í eigu Björns Inga. Malín hefur starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu en er komin í leyfi frá störfum til 1. ágúst næstkomandi. Í yfirlýsingu frá forsætisráð- herra kemur fram að upplýsingar í bréfinu byggðust á getgátum og sögusögnum. Hann segist hvorki hafa fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson né hafa komið að kaupum á DV. Björn Ingi Hrafnsson neitaði því í samtali við blaðamann að Sigmundur eða félag í hans eigu ætti hlut í DV eða að hann hefði lánað fyrir kaupum á DV. „Forsætisráðherra fjármagnaði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blaðinu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til- lit til þess að hér er mannlegur harmleikur á ferðinni og að aðgát skuli höfð í nær- veru sálar,“ skrifaði Björn Ingi í stöðuupp- færslu á Facebook. Verði systurnar fundnar sekar um fjárkúgun gætu þær átt yfir höfði sér sex ára fangelsi en fjár- kúgun er brot á 251. grein almennra hegn- ingarlaga. stefanrafn@frettabladid.is viktoria@frettabladid.is Kveðst hafa dregist inn í fjárkúgunina Malín Brand og Hlín Einarsdóttir voru handteknar á föstudag fyrir að reyna að kúga fé af forsætisráðherra. Húsleit var gerð á heimili þeirra beggja en Malín segist hafa dregist inn í atburðarás sem Hlín systir hennar hafi hrundið af stað. MALÍN BRAND HLÍN EINARSDÓTTIR VALLAHVERFI Lögreglan kom systrun- um á óvart við sunnanvert Vallahverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/MAPS.IS Á AFVIKNUM STAÐ Forsætisráðherra var skipað að skilja peningana eftir við Krísu- víkurveg. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HÚSLEIT Lögregla leitaði að sönnunar- gögnum á heimili Hlínar í Grafarholti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SLYS Konu sem slasaðist alvarlega í bílslysi við Hellissand í síðustu viku var í gær enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún er enn sögð mjög þungt hald- in og samkvæmt upplýsingum frá spítalanum gæti henni verið hald- ið sofandi í einhvern tíma enn. Konan er önnur tveggja erlendra ferðamanna sem fluttir voru á Landspítalann alvarlega slasaðir eftir bílveltu á þjóðveginum við Hellissand síðasta fimmtudag. Hinn ferðamaðurinn, kínversk- ur karlmaður á fertugsaldri, var úrskurðaður látinn daginn eftir. - bá Bílveltan við Hellissand: Konunni enn haldið sofandi STJÓRNMÁL Ragnheiður Rík- harðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til á Alþingi í gær að einungis konur yrðu í framboði í næstu alþingis- kosningum. Sagði Ragnheiður að lítið sem ekkert hefði breyst í störfum þingsins á þeim átta árum sem hún hefði þar setið og því varp- aði hún fram þessari róttæku hugmynd. Lagði Ragnheiður til að þetta „kvennaþing“ yrði einungis til tveggja ára, frá 2017 til 2019. Með því væri hægt að sannreyna hvort vinnubrögð kvenna væru önnur eða betri en vinnubrögð karla. „Að loknu því þingi gæti þjóðin sjálf velt því fyrir sér hvort það væri jafnvel bara skynsamlegra að hafa kvennaþing,“ sagði Ragn- heiður. - bá Formaður þingflokks sjálfstæðismanna vill hreint kvennaþing í tvö ár: Sannreyni vinnubrögð kvenna RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Segir lítið breytt í störfum Alþingis á átta árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ásvalla braut Álfhell a Hraun hella K rísuvíkurvegur SUÐUR-KÓREA MERS-veiran hefur dregið tvo til dauða í Suður-Kóreu. Að minnsta kosti 25 hafa smitast af veirunni þar í landi undanfarið. Þetta er fyrsta dauðsfallið af völdum veirunnar í þessum heims- hluta frá því hún einn dó í Malasíu í apríl á síðasta ári. Veiran kom fyrst fram á Arabíu- skaganum árið 2012. Hún er skyld SARS-veirunni svonefndu, sem gerði fyrst vart við sig árið 2002. Báðar veirurnar valda alvar- legri öndunarfærabilun. - gb MERS-veiran gerir usla: Tveir látnir í Suður-Kóreu SPURNING DAGSINS 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 2 F -6 7 1 C 1 6 2 F -6 5 E 0 1 6 2 F -6 4 A 4 1 6 2 F -6 3 6 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.