Fréttablaðið - 03.06.2015, Qupperneq 18
| 2 3. júní 2015 | miðvikudagur
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ
Fasteignaskrá – Fasteignamarkað-
urinn eftir landshlutum
FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ
Hagstofan – Vöruskipti við útlönd
í maí 2015
Hagar – Aðalfundur félagsins
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ
Hagstofan – Landsframleiðslan á
1. fjórðungi 2015
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ
Fasteignaskrá – Fjöldi þinglýstra
leigusamninga um íbúðahúsnæði
Hagstofan – Fjármál hins opinbera
á 1. fjórðungi
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ
Seðlabanki Íslands – Vaxtaákvörð-
unardagur
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
HÆGT ER AÐ hrósa ríkisstjórninni fyrir
aðkomu að kjarasamningum. Það er
jákvætt að dregið sé úr þörf fyrir bein-
ar launahækkanir með einföldun tekju-
skatts og lækkun beinna skatta og tolla.
ÞÁ ER jákvætt að stjórnvöld skuli ætla
að beita sér fyrir átaki í byggingu
leiguíbúða sem ætlaðar eru tekju-
lægri hópum sem og að reynt skuli að
draga úr byggingarkostnaði með því
að endurskoða byggingarreglugerðir
og fl eira.
SAMT ER einkennilegt að tillögur
stjórnvalda skuli fela í sér sérstaka
niðurgreiðslu til fjármagnsafl a.
Húsnæðisbætur eru þegar á reyn-
ir bein niðurgreiðsla til leigusala
og fjármálafyrirtækja en nýtast
þiggjendum ekki. Þær gera
leigusölum kleift að hækka
leiguna rétt eins og vaxtabætur eru
ávísun á hærri útlánsvexti en annars
fengju þrifi st.
HÉR Á ÍSLANDI eru laun vart hálfdrætt-
ingur á við laun í helstu nágranna-
löndum okkar. Samt er húsnæðisverð í
stórum dráttum sambærilegt við hús-
næðisverð annars staðar, þrátt fyrir að
vaxtakostnaður við íbúðalán á Íslandi
sé margfaldur á við það sem þekk-
ist í nágrannalöndunum. Þetta stríðir
raunar gegn þeirri grundvallarkenn-
ingu hagfræðinnar að eftir því sem
tekjur séu lægri og fjármagnskostnað-
ur hærri, því lægra verði eignaverð.
TEKJULÁGIR Íslendingar standast ekki
greiðslumat fyrir venjulegu húsnæðis-
láni og því er til hér á landi lánafl okk-
ur, sérstaklega ætlaður til að fl eyta
þeim í gegnum greiðslumat, sem ekki
hafa efni á að taka lán. Þetta eru hin
svonefndu verðtryggðu jafngreiðslu-
lán, sem sérfræðingar kalla „Íslands-
lán“ þar sem þau þekkjast hvergi ann-
ars staðar.
MEÐ TENGINGU höfuðstóls lána við
vísitölu neysluverðs er vaxtaokrið falið
fyrir lántakendum og með því að fl ytja
áfallnar verðbætur á höfuðstól um hver
mánaðamót er hægt að láta líta út fyrir
að launalitlir íbúðakaupendur ráði alla
vega við fyrstu afborgun húsnæðis-
lánsins hvað sem verður í framhaldinu.
Í ÞÝSKALANDI, sem er eitt ríkasta land
í heimi og oft notað sem dæmi um vel
heppnað markaðshagkerfi , leigja mun
fl eiri en eiga. Skattareglur hvetja til
þess að íbúðarhúsnæði sé fremur í
eigu útleigufyrirtækja en einstaklinga.
Skýrar reglur tryggja búsetuöryggi
leigjenda og skipulagsyfi rvöld tryggja
nægt framboð lóða til að byggja á til
að tryggja stöðugleika og fyrirbyggja
verðbólur. Almennt verja Þjóðverjar
innan við fjórðungi ráðstöfunartekna í
húsnæði.
Í ÞÝSKALANDI ríkir samkeppni á fjár-
málamarkaði og vextir eru lágir. Á
Íslandi ríkir fákeppni á fjármálamark-
aði og vextir til íbúðakaupa eru gríðar-
lega háir. Væri ekki nær fyrir stjórn-
völd að ráðast gegn rótum vandans
en að nota skattfé til að niðurgreiða
okurvexti banka sem starfa saman í
fákeppni? Má ekki skoða aðild að ESB
til að bæta hag fólksins?
Ekki ráðist að rótum vandans
Opna á veitingastað við Grandagarð 8 síðar í sumar
þar sem bæði verður bruggaður bjór á staðnum og
haldin bjórnámskeið í bjórskóla staðarins.
„Þetta er eitthvað sem er alveg nýtt,“ segir Fjóla
Guðrún Friðriksdóttir, ein aðstandenda staðarins,
en hún segist ekki vita til þess að áður hafi verið
boðið upp á bjór á íslenskum veitingastað sem
bruggaður sé á staðnum.
Sérstakur bruggmeistari verður við störf á veit-
ingastaðnum en á næstu dögum verður átta brugg-
kútum komið fyrir á þar.
Undirbúningur fyrir opnun er í fullum gangi.
Iðnaðarmenn hafa nýlokið störfum og nú tekur við
parketlagning og uppsetning á eldhúsi.
Vonast er til að opna staðinn fyrir verslunar-
mannahelgi en endanlegt nafn er ekki komið á stað-
inn.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og einn aðstand-
enda bjórskóla Ölgerðarinnar, segir að sprenging
hafi orðið í áhuga á öllu tengdu bjór að undanförnu.
Í vetur hafi Skúli Craft Bar verið opnaður við
Aðalstræti svo og Mikkeller & Friends við Hverfi s-
götu. Báðir barirnir gefi sig út fyrir að bjóða upp á
mikið bjórúrval. Þá eigi einnig að opna bjórgarð við
nýtt Fosshótel við Höfðatorg.
„Þess utan er það eiginlega alveg búið sem var að
á matseðlinum á betri veitingastöðum væru tvær
til þrjár tegundir af keimlíkum lagerbjór,“ segir
Stefán.
Sagnfræðingurinn óttast ekki aukna samkeppni
við bjórskóla Ölgerðarinnar sem stofnaður var fyrir
fi mm árum. „Forsendur þess að til þess að hægt sé
að standa undir öllum þessum „gourmet“-börum þá
verður náttúrulega að vera stór hópur sem er tilbú-
inn að borga aðeins meira fyrir betri bjór þannig að
það styður bara hvort annað,“ segir Stefán.
ingvar@frettabladid.is
Opna bjórskóla og
brugghús úti á Granda
Opna á veitingastað úti á Granda síðar í sumar þar sem brugghús
og bjórskóli verða undir sama þaki. Stefán Pálsson sagnfræðingur
segir að bjóráhugi landsmanna hafi margfaldast að undanförnu.
BJÓR Bjórinn á nýjum veitingastað úti á Granda verður bruggaður á
staðnum. NORDICPHOTOS/GETTY
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
#BYLGJANBYLGJAN989
ÞORGEIR, KRISTÓFER OG BRAGI
OG MÁLEFNI LÍÐANDI STUNDAR
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 16:00 - 18:30VIRKA DAGA
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
63,1% frá áramótum
HB GRANDI
6,6% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TRYGGINGAMIÐST.
-26,6% frá áramótum
EIMSKIP
2,3% í síðustu viku
7
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
8
1
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 119,00 14,4% 0,0%
Eik fasteignafélag* 6,28 -7,6% 1,0%
Eimskipafélag Íslands 212,00 -10,5% -2,3%
Fjarskipti (Vodafone) 38,45 9,9% -0,9%
Hagar 39,80 -1,6% 0,1%
HB Grandi 42,10 24,6% 6,6%
Icelandair Group 23,85 11,4% 3,7%
Marel 184,50 33,7% 3,1%
N1 36,15 55,8% 4,9%
Nýherji 8,45 63,1% 0,7%
Reginn 14,10 4,1% -0,7%
Reitir* 62,50 -2,2% -0,2%
Sjóvá 10,01 -16,2% -0,9%
Tryggingamiðstöðin 19,30 -26,6% -0,5%
Vátryggingafélag Íslands 7,60 -16,0% -1,8%
Össur 490,00 35,7% -1,0%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.423,77 10,5% 1,8%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 26,10 15,5% 0,4%
Sláturfélag Suðurlands 1,45 -21,6% -21,6%
*Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi).
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
0
-8
F
5
C
1
6
3
0
-8
E
2
0
1
6
3
0
-8
C
E
4
1
6
3
0
-8
B
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K