Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 20
| 4 3. júní 2015 | miðvikudagur
Dagvelta á skuldabréfamarkaði
í maí jókst um 83 prósent milli
ára og nam veltan samtals 153
milljörðum króna í mánuðinum.
„Hin aukna velta skýrist helst
af auknum væntingum um verð-
bólgu og skiptum skoðunum á hve-
nær vaxtahækkunarferlið myndi
byrja,“ segir Valdimar Ármann,
framkvæmdastjóri sjóða hjá
GAMMA.
Valdimar segir að mest hafi
verið um að vera á markaði um
miðjan mánuðinn í kringum síð-
ustu vaxtaákvörðun Seðlabankans.
Þá tilkynnti Seðlabankinn að hann
myndi að öllum líkindum hækka
stýrivexti í júní.
Verðbólguálag á skuldabréfa-
markaði, þ.e. mismunur á ávöxt-
unarkröfu á verðtryggð og óverð-
tryggð skuldabréf sem segir til um
vænta verðbólgu næstu fi mm árin
jókst um tæplega hálft prósentu-
stig í maí og stóð í 4,5 prósentum
í lok mánaðarins. Frá áramótum
hefur verðbólguálagið hækkað
verulega eða um tæplega tvö pró-
sentustig.
Hækkunin er talin skýrast af
væntingum um
au k n a verð -
bólgu og stýri-
vaxtahækkunum
Seðlabankans.
Valdimar
bendir á að
Seðlabankinn
hafi gefi ð út áður
en kjaraviðræður fóru í hart að
framleiðsluspenna væri að skap-
ast í hagkerfi nu. Því væri líklegt að
Seðlabankinn hefði hækkað stýri-
vexti í haust eða vetur þrátt fyrir að
launahækkanir hefðu orðið óveru-
legar. Nú muni stýravaxtahækkun
líklega koma fyrr til og verða meiri
en annars hefði orðið. Greiningar-
deild Landsbankans spáir tveggja
prósenta stýrivaxtahækkun á þessu
ári og öðru eins á því næsta.
Hrafn Steinarsson, sérfræðingur
hjá Greiningardeild Arion banka,
bendir á að aðgerðir ríkisstjórnar-
innar sem tilkynnt var um á föstu-
daginn gætu aukið þenslu í hagkerf-
inu enn frekar. „Að óbreyttu mun
þetta hafa í för með sér að afkoma
ríkissjóðs versnar um átta til fjór-
tán milljarða á ári,“ segir Hrafn.
Þetta muni þó skýrast betur í haust
þegar fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar verður lagt fram.
Hrafn bend einnig á að óljóst sé
hvaða áhrif frumvarp um afnám
gjaldeyrishafta muni hafa á mark-
aðinn. Leggja á frumvarpið fram á
næstu dögum. Vegna óvissunnar
sem uppi sé í efnahagsmálum hafi
verið talsvert áhættuálag innbyggt
í verðlagningu á óverðtryggðum
skuldabréfum, að sögn Hrafns.
Að óbreyttu
mun þetta
hafa í för með sér
að afkoma ríkissjóðs
versnar um átta
til fjórtán
milljarða á
ári.
Hrafn Steinarsson
sérfræðingur í
Greiningardeild
Arion banka
Velta með skuldabréf
jókst um 83 prósent
Velta á skuldabréfamarkaði í maí jókst um 83 prósent milli ára
auk þess að verðbólguálag hækkaði talsvert. Aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar gætu valdið ríkissjóði fjórtán milljarða tekjutapi á ári.
janúar febrúar mars apríl maí júní
Fimm ára
verðbólguvæntingar
á skuldabréfamarkaði
5%
4%
3%
2%
álag
2015
Heimild: GAMMA
VALDIMAR ÁRMANN
Hagnaður Bílaþvottastöðvarinn-
ar Lindarinnar í Kópavogi nam
12 milljónum króna á síðasta
ári. Þetta kemur fram í nýbirt-
um samandregnum ársreikn-
ingi. Rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnsliðið nam 15,9 milljón-
um króna. Hagnaðurinn er mun
meiri en hann var árið áður en
þá nam hann einungis 1 milljón
króna.
Bílaþvottastöðin Lindin er
staðsett í Bæjarlind. Þar er rekin
svampþvottastöð, bónstöð, hrað-
þrif og fólk getur þvegið bílinn
sinn sjálft. Sjötíu prósenta hlut-
ur í Bílaþvottastöðinni Lindinni
er í eigu Þórðar Más Jóhannes-
sonar, 15 prósent í eigu Róberts
Más Reynissonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, og 15 pró-
sent í eigu Bergþóru Sigurðar-
dóttur.
Þórður Már keypti hlut sinn í
fyrirtækinu í byrjun árs 2013.
Hann sagðist í samtali við vb.is
stuttu eftir kaupin fyrst og
fremst hafa verið að aðstoða
félaga sinn, Róbert Reynisson,
sem hafði unnið hjá fyrirtækinu
í þrettán ár. Róbert var rekstrar-
stjóri bílaþvottastöðvarinnar
Löðurs en ákvað þegar tækifæri
gafst að kaupa stöðina og fékk
Þórð Má með sér lið.
- jhh
Rekstur Bílaþvottastöðvarinnar Lindarinnar í Bæjarlind í Kópavogi batnaði mikið á árinu 2014:
Þvottastöð græddi 12 milljónir
Í KÓPAVOGI Bílaþvottastöðin er að stærstum hluta til í eigu Þórðar Más Jóhannesonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
0
-5
D
F
C
1
6
3
0
-5
C
C
0
1
6
3
0
-5
B
8
4
1
6
3
0
-5
A
4
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K