Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2015, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 03.06.2015, Qupperneq 23
FALINN SKÓGUR Sýningin Falinn skógur verð- ur opnuð sunnu- daginn 7. júní og stendur í allt sumar. Nánar má fylgjast með verk- efninu Falinn skóg- ur á Facebook. Stokkið fram af klettum Coasteering er nýlegt sport sem er stundað víða um heim. Það snýst um að príla og klifra í klettum meðfram ströndum og stökkva öðru hvoru ofan af himinháum klettum út í hafið. SÍÐA 2 Við fengum í raun báðar sömu hugmynd, sín í hvoru lagi þó, eft-ir að hafa ferðast um Strandirnar, að setja upp sýningu byggða á hönnun úr rekavið,“ útskýrir Elísabet V. Ingvars- dóttir hönnunarsagnfræðingur en hún heillaðist af Djúpavík og gömlu síldar- verksmiðjunni rétt eins og Dóra Hansen innanhússarkitekt á ferðum sínum um Strandirnar. „Dóra hefur nýtt rekavið sem efni- við í hönnun sína og var í efnisleit á Ströndum en Strandirnar eru sá staður á landinu þar sem helst er rekavið að finna. Sjálf hef ég sinnt sýningarstjórn og saman þróuðum við hugmyndina að sýningu. Við köllum hana Falinn skóg,“ segir Elísabet og verður sýningin opnuð á sunnudaginn í gömlu síldarverksmiðj- unni. Verksmiðjan var reist árið 1934 og var stærsta steinsteypta bygging á Ís- landi á sínum tíma, 90 metra löng og á þremur hæðum. Verksmiðjan malaði gull í nokkur ár en halla fór undan fæti þegar síldin fór. Árið 1954 var verk- smiðjunni lokað. „Þetta hús tilheyrði stórum draumum síldarkónganna á þessum tíma en nú er byggingin í eigu Hótels Djúpavíkur. Rýmið er ofboðslega fallegt en við setjum sýninguna upp í gömlu renni- verkstæði, algerlega hráu rými með 6 metra lofthæð. Sýninguna vinnum við í samvinnu við Hótel Djúpavík og fengum til þess styrki úr Hönnunarsjóði og úr Listsjóði,“ útskýrir Elísabet. Hvaðan kemur nafnið Falinn skógur? „Hugmyndin að sýningunni bygg- ist á þeim tækifærum sem leynast í þessum efnivið. Okkur langaði að sjá hvort einhverjir hönnuðir væru að nota rekavið sem hráefni og renndum í raun blint í sjóinn með fjölda þeirra sem við kæmumst í samband við. Sýn- endur eru hins vegar 26 þegar upp er staðið, bæði íslenskir og erlendir hönnuð- ir og heimamenn á Ströndum. ■ heida@365.is FALINN SKÓGUR FERÐIR Þær Elísabet V. Ingvarsdóttir og Dóra Hansen féllu báðar fyrir Djúpa- vík á ferðalögum sínum um Strandirnar. Þær setja nú upp sýningu í gömlu síldarverksmiðjunni á hönnun úr rekavið sem opnuð verður á sunnudag. SKART Helga Ragn- hildur Mogensen skart- gripahönnuður er ein þeirra sem taka þátt í sýningunni Falinn skógur. ÚR REKAVIÐ Borð úr rekavið eftir Dögg Guð- mundsdóttur iðnhönn- uð. STRANDIRNAR HEILLUÐU Elísabet Ingvarsdóttir og Dóra Hansen fengu báðar sömu hugmyndina að sýningu á ferð um Strandir. MYND/DÓRA HANSEN DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 F -0 9 4 C 1 6 2 F -0 8 1 0 1 6 2 F -0 6 D 4 1 6 2 F -0 5 9 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.