Fréttablaðið - 03.06.2015, Page 46
3. júní 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Lófafylli af Spirulina frá Life
Stream og soðið egg, kryddað með
svörtum pipar og Himalaya-salti.
Um helgar hendi ég í mömmuklatta
fyrir strákana mína, það er svona
spari.“
Védís Hervör Árnadóttir
MORGUNMATURINN
Í næstu viku er væntanlegur hing-
að til lands sjálfur kóngurinn Tom
Jones, en hann heldur tónleika
í Laugardalshöll 8. júní. „Ég er
rosalega spenntur að koma. Síðast
þegar ég kom árið 1990 þá söng
ég á bar sem var nýopnaður. Það
verður gaman að sjá hvað hefur
breyst síðan ég kom síðast,“ sagði
Tom hress í samtali við Frétta-
blaðið.
Hann fagnar 75 ára afmæli sínu
þann 7. júní og hyggst eyða stóra
deginum á Íslandi, en hann heldur
tónleika í Danmörku kvöldið áður.
„Ég ætla að eyða deginum hér,
en hef ekki hugmynd um hvað ég
geri. Það kemur í ljós,“ segir hann
og hlær.
Á tónleikunum ætlar hann að
flytja nýtt efni í bland við það
gamla. „Ég þakka guði fyrir það að
ég er ekki einn af þeim listamönn-
um sem fá leið á gömlu lögunum
sínum. En ég mun líka spila nýtt
efni, setja það með. Mér finnst
alltaf best að blanda þessu saman,
gömlu og nýju.“
Þessa stundina vinnur Tom að
nýju efni, en síðasta plata hans,
Spirit in the Room, kom út 2012.
Hana vann hann með upptöku-
stjóranum Ethan Johns sem hefur
meðal annars unnið með Kings
of Leon, Ray LaMontagne og The
Vaccines og vinna þeir einnig
saman að nýju plötunni. „Mínu
hlutverki í henni er eiginlega
lokið,“ segir Tom og hlær. „Platan
var tekin upp beint á band á gamla
mátann. Það er endurnærandi að
taka upp plötu aftur á þennan hátt
og þetta tengdi mig aftur við ræt-
urnar. Tónlistin verður meira lif-
andi þegar hún er tekin upp á
þennan hátt, miklu meira ég.“
Í fyrra söng Tom með breska
tónlistarmanninum Ed Sheeran
og aðspurður hvað honum finnist
um breska tónlist í dag segir hann
mikið af mjög efnilegum tónlistar-
mönnum í bransanum. „Ég myndi
segja að bresk tónlist í dag væri
mjög heilbrigð. Mikið af þessum
strákum eins og Ed, Sam Smith og
James Bay eru að semja sína eigin
tónlist, gera sitt. Og svo geta þeir
svo sannarlega sungið!“
Tom er einn dómara og leiðbein-
anda í sjónvarpsþættinum The
Voice og segir hann það hafa verið
góða reynslu. „Við sem höfum
verið í þessum bransa svona lengi
vitum hvernig þessum krökkum
líður, við höfum öll verið í þeirra
sporum. Það er gott og gefandi
að geta deilt þessari reynslu með
þeim.“
adda@frettabladid.is
Tom Jones fagnar
afmælinu á Íslandi
Einn ástsælasti söngvari heims, Tom Jones, er á leiðinni til landsins. Hann segist
ekki fá leið á gömlu lögunum sínum en er hrifi nn af Ed Sheeran og James Bay.
SVAKA SJARMÖR Söngvarinn Tom Jones er rosalega spenntur að koma til landsins en hann kom hingað til lands síðast árið
1990. NORDICPHOTOS/GETTY
365.is | Sími 1817
Viðskiptavinir okkar færast á milli
þrepa vissir um að vera í réttri leið.
Þú færð 20 GB ljóshraðanet, 100 mín. í heimasíma og 60 mín. og
60 SMS í GSM á 0 kr. ef þú kaupir valdar sjónvarpsáskriftir hjá 365.
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
365 GSM sérsníður þjónustuna að notkun hvers og eins. Í upphafi mánaðar
byrja allir viðskiptavinir í 0 mínútum og 0 SMS-um. Það fer síðan eftir notkun
í hvaða þrepi hann endar þann mánuðinn. Viðskiptavinir okkar færast á milli
þrepa, ávallt vissir um að vera í réttri leið.
0 kr. 2.990 kr. 4.990 kr.
60–365 mín. og SMS Endalaust
60 mínútur og 60 SMS í GSM
og heimasíma á Íslandi.
365 mínútur og 365 SMS
í GSM og heimasíma á
Íslandi.
Endalausar mínútur og
SMS í GSM og heimasíma
á Íslandi.
0–60mín. og SMS
GAGNAMAGNSPAKKAR FYRIR NETIÐ Í SÍMANUM
500MB
790 kr.
1GB 5GB
1.190 kr. 1.990 kr.
15GB 3.990 kr.
Inngöngutilboð með tilboðspökkum
1. 500 kr.
-2.490 kr.
365.is
Sími 1817
➜ Hér er Tom Jones að taka
lagið með Önnu Mjöll Ólafs-
dóttur en þau eru félagar úr
tónlistarbransanum.
YouTube og íslensku höfunda réttar-
samtökin STEF hafa gert með sér
samning sem felur í sér að með-
limir STEFs svo og erlendra syst-
ursamtaka munu geta fengið greitt
fyrir notkun tónlistar sinnar á You-
Tube á Íslandi. „Þessi nýja tekjuleið
eykur möguleika á fjárhagslegum
ávinningi rétthafa á notkun verka
þeirra á YouTube á Íslandi. Það að
ná samningi við YouTube mark-
ar þáttaskil í að skapa ný tækifæri
fyrir okkar rétthafa,“ segir Guðrún
Björk Bjarnadóttir, framkvæmda-
stjóri STEFs.
Munu meðlimir STEFs og tengdir
aðilar geta fengið greitt þegar tón-
list þeirra aflar tekna með spilun
eða birtingu auglýsinga á YouTube.
STEF fær tiltekið hlutfall af tekjum
YouTube á Íslandi sem fer í greiðslur
til listamannanna.
„Við erum einstaklega ánægð með
að hafa náð samningi við STEF og
höfunda innan samtakanna. Þetta
mun hlúa að nýsköpun íslensks efnis
og um leið gera tónlistarflytjend-
um, tónskáldum og textahöfundum
kleift að fá greitt fyrir myndbönd á
YouTube,“ segir Gudrun Schweppe,
framkvæmdastjóri leyfismála hjá
YouTube EMEA. „Þetta er líka sigur
fyrir YouTube-samfélagið, en mikil-
vægur hluti upplifunar þeirra á net-
inu er að hlusta á tónlist og uppgötva
nýja tónlistarmenn á YouTube.“
Samningurinn mun hafa áhrif en
Guðrún segir að væntingum félags-
manna ætti að stilla í hóf. „Á Norð-
urlöndunum hafa svona samningar
verið gerðir en þá hafa þetta verið
frekar lágar greiðslur. Höfundar
fá þó greitt fyrir sín verk í gegnum
STEF og ef þeir setja inn myndbönd-
in sín þá eiga þeir réttinn á þeim - glp
YouTube og STEF gera samning
Möguleiki á fj árhagslegum ávinningi rétthafa eykst. Skapar ný tækifæri.
NÝ TÆKIFÆRI Guðrún Björk Bjarna-
dóttir framkvæmdastjóri Stefs fagnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
F
-3
5
B
C
1
6
2
F
-3
4
8
0
1
6
2
F
-3
3
4
4
1
6
2
F
-3
2
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K