Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 4
11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Stefán, varstu ráðinn í gegnum
Webcam?
„Já, en það var engin nekt innifalin
í því.“
Stefán Ívarsson samdi lokalagið fyrir
kvikmyndina Webcam sem út kom í sumar,
en í henni striplast ung kona á netinu.
STJÓRNMÁL Guðmundur Stein-
grímsson, formaður Bjartrar fram-
tíðar, ætlar að leggja til á flokks-
fundi að forysta flokksins skiptist á
um að gegna formannsembættinu.
Heiða Kristín Helgadóttir,
annar stofnenda flokksins, lýsti
því nýverið í þættinum Vikulok-
unum í Ríkisútvarpinu að hún gæti
vel hugsað sér að að taka við for-
mennsku í flokknum. Hún hafði þá
áður lýst því yfir að hún vildi ekki
leysa Björt Ólafsdóttur af sem
þingmaður meðan hún færi í fæð-
ingarorlof nema formannsskipti
yrðu í flokknum.
Guðmundur segist í viðtali
við Stöð 2 hafa orðið leiður yfir
ummælum Heiðu Kristínar. Hann
telji það ekki til góðs fyrir flokk-
inn að fara út í formannsslag.
„Dæmin allt í kringum okkur eru
að sýna okkur það, að öll þessi
áhersla á formenn og hver er for-
maður, á ábyrgð hans og persónu-
leika, eru að standa allri almenni-
legri pólitík fyrir þrifum.“
Hann segist hins vegar ætla
að leggja til að helstu embættum
flokksins, þar á meðal formennsk-
unni, yrði framvegis róterað. „Í
þessu felst að ég sjálfur yrði ekki
lengur formaður, nema þegar
röðin kæmi að mér að axla þá
ábyrgð til jafns við aðra.“
Guðmundur segist enn telja að
Björt framtíð eigi sér bjarta fram-
tíð, þrátt fyrir síðustu fylgiskann-
anir. Þegar yfirstandandi erfið-
leikum sleppi verði um að ræða
„flottasta „kombakk“ Íslandssög-
unnar í pólitík.“ - þká
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, leggur til nýtt fyrirkomulag hjá flokknum:
Vill að formennskan gangi manna á milli
Í RÆÐSUSTÓL Guðmundur Steingríms-
son, formaður Bjartrar framtíðar, boðar
„kombakk“ flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UTANRÍKISMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, átti á
sunnudaginn fund með sendiherra
Þýskalands, Thomas Hermann
Meister, sem senn lætur af störf-
um.
Meðal annars var rætt um fjöl-
þætta þróun í samvinnu land-
anna á undanförnum árum, þátt-
töku þýskra fyrirtækja í íslensku
atvinnulífi, samstarfi á sviði menn-
ingar og lista og framlagi Þýska-
lands til þróunar norðurslóða.
Sendiherrann var einnig sæmd-
ur Hinni íslensku fálkaorðu fyrir
framlag sitt til aukinnar samvinnu
landanna. - ngy
Rætt um fjölþætta þróun:
Sendiherra lætur
brátt af störfum
FORSETI ÍSLANDS Átti fund með sendi-
herra Þýskalands síðastliðinn sunnudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MALDÍVEYJAR Fjölmiðlar á Maldív-
eyjum birtu í gær myndir af braki
á floti við sker úti við eyjarnar
sem grunur leikur á að geti verið
úr flugvélinni MH370.
Sérfræðingar frá Malasíu fóru
til Maldíveyja í gær til að hafa
uppi á brakinu og færa það til
rannsóknar.
Samgöngumálaráðherra Mal-
asíu segir of snemmt að úrskurða
um það hvort brakið sé úr MH370.
Stutt er síðan brot úr flugvélar-
væng MH 370 fannst á eyjunni
Reunion í Indlandshafi. - srs
Sendu sérfræðinga af stað:
Mögulega brak
úr vél MH370
LÖGREGLUMÁL „Það var þannig
að lögregla hafði samband við
okkur. Við ákváðum síðan að
stíga aðeins inn í umræðuna á
samfélagsmiðlum þar sem það
var alls konar umræða í gangi
og hræðsla kannski,“ segir
Steinunn Þorsteinsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi Hafnarfjarðar.
„Fólk var að fá misvísandi
upplýsingar úr alls konar áttum.
Okkur fannst mikilvægt að það
kæmu upplýsingar frá einhverju
opinberu batteríi.“
Af umræðunum á Facebook-
síðu íbúa í Vallahverfinu að
dæma upplifðu margir ákveðna
óvissu í miðjum aðgerðum lög-
reglu í hverfinu síðastliðið
sunnudagskvöld og aðfaranótt
mánudags.
Lögregla girti af svæði á Völl-
unum á sunnudagskvöld vegna
manns sem hafði veist að lög-
regluþjónum og var með ólæti
í íbúð sinni. Maðurinn sagðist
vera vopnaður skotvopni.
Lögreglumen gengu á milli
húsa og báðu fólk um að halda
sig innandyra. Fólki, sem var
statt utan hverfisins, var mein-
aður aðgangur. Maðurinn var
loks handtekinn á fyrsta tíman-
um aðfaranótt mánudags og var
íbúum þá frjálst að snúa heim.
Íbúar Vallahverfis halda úti
hóp á Facebook þar sem umsát-
ur lögreglunnar var skeggrætt.
Þar lýstu íbúar meðal annars
áhyggjum sínum af skorti á upp-
lýsingum vegna lokunar í hverf-
inu.
Á síðunni má meðal annars
sjá að íbúar höfðu áhyggjur af
börnum sem enn væru utandyra
auk þess sem fólki fannst erfitt
að vera meinaður aðgangur að
hverfinu án þess að fá viðunandi
skýringar á því.
„Eftir samtal við [lögreglu]
þá var ákveðið að setja upp-
lýsingar inn á síðuna sem var
kannski ekkert mikið meira
en hafði komið fram áður, en
maður upplifir það kannski að
það rói umræðuna,“ segir Stein-
unn. Hún segir ávallt góða sam-
vinnu milli bæjarins og við-
bragðsaðila.
„Við höfum átt mjög gott sam-
starf og það erum auð vitað við
sem erum þessir aðilar sem eru
í beinu sambandi við íbúana,
þannig að það var mjög gott að
fá þetta símtal frá þeim.“
Hún segir samfélagssíður íbúa
góðan vettvang til þess að koma
upplýsingum á framfæri og hún
segir að vel hafi gengið að koma
upplýsingum frá viðbragðsaðil-
um til íbúa þegar tveir drengir
lentu í lífshættu við Reykjadals-
stíflu fyrr á árinu.
stefanrafn@frettabladid.is
Skortur á upplýsingum olli
óvissu meðal íbúa á Völlum
Nokkrir íbúar í Vallahverfinu upplifðu mikla óvissu vegna upplýsingaskorts á meðan lögregluaðgerðir stóðu
yfir í hverfinu á sunnudagskvöld. Fólk hafði áhyggjur af börnum og að vita ekki hvenær það kæmist heim til
sín. Upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðar segir samfélagsmiðla góða leið til að upplýsa fólk á óvissutímum.
SVÆÐIÐ SEM VAR LOKAÐ Umferð var bönnuð og fólki sagt að vera innandyra á
Völlunum í Hafnarfirði meðan lögregla fékkst við þekktan ofbeldismann.
„Mæli með að ef einhverjir vita
af einhverjum á ferðinni þarna á
Völlunum að hringja í viðkomandi
og segja þeim að koma sér ein-
hvers staðar inn strax og hringja
á undan sér í aðilann sem þau
komast inn hjá.“
„Jeminn eini … Og fullt af
saklausu fólki og börnum …
Vonum innilega að þetta gangi
vel! Haldið ykkur inni … Þeir eru
hér hjá Bjarkavöllum og heyri
annað slagið. Farðu inn!!“
„Ég sé fólk vera að labba og
taka myndir! Löggan er ekkert að
leika sér að því að reka fólk inn.“
„Stelpan mín og vinkona
hennar ætluðu að koma heim
í strætó í kvöld (Drekavellir),
hvernig komast þær heim? Kemur
strætó hingað?“
„Löggan er hérna fyrir framan
hjá mér, Engjavellir, fullt af krökk-
um að reyna að komast heim,
löggan bannar það, spurning um
að foreldrar hringi í börnin sín og
segi þeim að bíða þar sem þau
eru (ef þau eru í heimahúsi) svo
þau séu ekki úti.“
„Þarf maður að vera hræddur
inni hjá sér eða?“
„Ég er að andast úr hræðslu
hvað er að fokking gerast hérna?“
„Nú væri ráð að lögrelgan hefði
samband við upplýsingafulltrúa
Hafnarfjarðarbæjar til að upplýsa
um stöðuna…“
Ummæli íbúa af
Facebook
SUMARFRÍ
SENN Á ENDA
Nokkrir sól-
ríkir dagar
hafa látið
á sér kræla
í sumar og
margir eflaust
notið þess að
fá smá pásu
frá skóla. Senn
fer að líða að
skólasetningu
en flestir
framhalds-
skólar landsins
verða settir í
næstu viku.
Starfsmenn
bókaverslana
eru í óðaönn
að skipuleggja
hausttíma-
bilið en skóla-
bókamarkaðir
spretta nú upp
víða. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/ANTON BRINK
HAUSTVERKIN HAFIN SEM SKÓLAHALD VETRARINS KALLAR Á
AÐGERÐIR
SÉRSVEITAR
AÐ KIRKJU-
VÖLLUM 7.
SPURNING DAGSINS
FULL BÚÐ AF
NÝJUM
VÖRUM
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
2
-0
0
B
8
1
5
B
1
-F
F
7
C
1
5
B
1
-F
E
4
0
1
5
B
1
-F
D
0
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K