Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 48
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Boltakvóti Ég spilaði brennó með stórum barnahópi um daginn. Þetta voru strákar og stelpur á öllum aldri. Strákarnir voru fullir sjálfsöryggis og snöggir að ná boltanum. Fóru í kapp við eigin liðsmenn og hrifsuðu boltann nánast úr höndum þeirra. Þegar stelpurnar náðu boltanum köll- uðu þeir: „Ég skal! Gefð’ann!“ og oftar en ekki gáfu þær boltann eftir. Því trú strákanna á eigin getu var svo sannfærandi. Svo gæti orðið vandræðalegt að berj- ast af hörku fyrir boltanum en mistakast svo. Hitta engan. Auð- vitað mistókst strákunum oft en það var allt í lagi því þeir fengu svo mörg tækifæri til að bæta það upp með þrumuskotum. Stelpurn- ar voru þó yfirleitt síðastar úr leik. Aðallega af því að þær voru ekki mikilvæg skotmörk í augum strákanna og gleymdust því á kantinum þar til í lokin. Stundum duttu þær út og horfðu út í loftið. Sungu lagstúf. Löguðu taglið. ÞANGAÐ til skessumamman fór að baula og skipaði strákunum að láta stelpurnar líka fá boltann. Jafnvel þótt þeir hefðu keppst við að ná honum fyrst. Jafnvel þótt stelpunum fyndist kjánalegt að taka við boltanum. „Taktu bara boltann og skjóttu, stelpa!“ OG viti menn. Allt í einu kom einhver neisti í stelpurnar. Keppnisskapið fyllti brjóst þeirra og þær dúndruðu vægðarlaust í allar áttir. Með misjöfnum árangri. Stundum út í runna. En þær fengu þó að prófa. Og prófa aftur. Og svo hitta og fagna. Og þær skutu á hinar stelpurnar sem voru ekki lengur öruggar í felum í einu horninu. Þær þurftu að hlaupa og hoppa og detta fyrir lífi sínu. Hafa fulla einbeitingu og augun á boltanum. Fjör færð- ist yfir allan leikvöllinn. Allt í einu fór að hljóma: „Skjóta Önnu! Skjóta Svövu!“ Munið þið hvað það er gaman að vera týpan sem allir vilja feiga í brennó? Því þá er maður ógn og maður er mikil- vægur. Maður er með í leiknum. ÆI, ég fór bara eitthvað að pæla í þessu vegna umræðu um kynja- kvóta í kvikmyndabransanum. BAKÞANKAR Erlu Bjargar Gunnarsdóttur 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 1 -E 8 0 8 1 5 B 1 -E 6 C C 1 5 B 1 -E 5 9 0 1 5 B 1 -E 4 5 4 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.