Fréttablaðið - 11.08.2015, Page 48
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Boltakvóti
Ég spilaði brennó með stórum barnahópi um daginn. Þetta
voru strákar og stelpur á öllum
aldri. Strákarnir voru fullir
sjálfsöryggis og snöggir að ná
boltanum. Fóru í kapp við eigin
liðsmenn og hrifsuðu boltann
nánast úr höndum þeirra. Þegar
stelpurnar náðu boltanum köll-
uðu þeir: „Ég skal! Gefð’ann!“ og
oftar en ekki gáfu þær boltann
eftir. Því trú strákanna á eigin
getu var svo sannfærandi. Svo
gæti orðið vandræðalegt að berj-
ast af hörku fyrir boltanum en
mistakast svo. Hitta engan. Auð-
vitað mistókst strákunum oft en
það var allt í lagi því þeir fengu
svo mörg tækifæri til að bæta það
upp með þrumuskotum. Stelpurn-
ar voru þó yfirleitt síðastar úr
leik. Aðallega af því að þær voru
ekki mikilvæg skotmörk í augum
strákanna og gleymdust því á
kantinum þar til í lokin. Stundum
duttu þær út og horfðu út í loftið.
Sungu lagstúf. Löguðu taglið.
ÞANGAÐ til skessumamman fór
að baula og skipaði strákunum að
láta stelpurnar líka fá boltann.
Jafnvel þótt þeir hefðu keppst við
að ná honum fyrst. Jafnvel þótt
stelpunum fyndist kjánalegt að
taka við boltanum. „Taktu bara
boltann og skjóttu, stelpa!“
OG viti menn. Allt í einu kom
einhver neisti í stelpurnar.
Keppnisskapið fyllti brjóst þeirra
og þær dúndruðu vægðarlaust
í allar áttir. Með misjöfnum
árangri. Stundum út í runna. En
þær fengu þó að prófa. Og prófa
aftur. Og svo hitta og fagna. Og
þær skutu á hinar stelpurnar
sem voru ekki lengur öruggar í
felum í einu horninu. Þær þurftu
að hlaupa og hoppa og detta fyrir
lífi sínu. Hafa fulla einbeitingu
og augun á boltanum. Fjör færð-
ist yfir allan leikvöllinn. Allt í
einu fór að hljóma: „Skjóta Önnu!
Skjóta Svövu!“ Munið þið hvað
það er gaman að vera týpan sem
allir vilja feiga í brennó? Því þá
er maður ógn og maður er mikil-
vægur. Maður er með í leiknum.
ÆI, ég fór bara eitthvað að pæla
í þessu vegna umræðu um kynja-
kvóta í kvikmyndabransanum.
BAKÞANKAR
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
1
-E
8
0
8
1
5
B
1
-E
6
C
C
1
5
B
1
-E
5
9
0
1
5
B
1
-E
4
5
4
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K