Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 22
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 4 11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR A thyglisvert hefur verið að fylgjast með því hve mikið af bílum hefur komið á skömm- um tíma frá Volkswag- en-bílafjölskyldunni sem eru með umhverf- isvæna aflgjafa. Það eru raf- magnsbílar, Plug-In-Hybrid-bílar og metanbílar. Hekla er umboðs- aðili fyrir margar gerðir bílafjöl- skyldu Volkswagen og þar á bæ eru nú í boði einar níu bílgerðir sem eru með umhverfisvæna afl- gjafa, fimm bílar frá Volkswagen, þrír frá Audi, einn frá Skoda. Að auki eru þar í boði tveir þannig bílar frá Mitsubishi. Rafmagnsbílar, tvíorkubílar og metanbílar Frá Volkswagen eru þetta raf- magnsbílarnir E-up og E-Golf, Golf GTE sem er tvíorkubíll og notar rafmagn og brunavél og einnig Golf TGI og Golf Vari- ant TGI sem nota metan og bens- ín. Frá Audi kemur A3 e-tron rafmagnsbíllinn, A3 g-tron sem gengur fyrir metani og bens- íni og svo er að koma Q7 e-tron sem gengur fyrir rafmagni og dísilolíu. Frá Mitsubishi koma svo i-MiEV rafmagnsbíllinn og Outlander PHEV sem geng- ur fyrir rafmagni og bensíni. Fyrir skömmu greindi forstjóri Volkswagen frá því að fyrirtæk- ið byði nú mesta úrval rafmagns- bíla nokkurs bílaframleiðanda og ekki tók það þetta stóra og sveigj- anlega fyrirtæki langan tíma að komast í þá stöðu. Undir Volks- wagen-fjölskylduna heyra einnig Porsche-bílar og þar eru einn- ig nokkrir bílar sem bjóðast með rafmótorum auk brunavéla og fer þar ef til vill fremst tækniundrið 918 Spyder, en einnig Volkswagen XL-bíllinn sem eyðir 0,9 lítrum af bensíni á hundraðið. Volkswagen  árfesti fyrir 1.702 milljarða í fyrra í nýja bíla Stefna Volkswagen er einföld, þar á bæ stendur til að bjóða svo til hverja einustu bílgerð með rafmagnsmótorum til aðstoð- ar brunavélunum og sem dæmi um bíla sem þannig verða búnir á næstunni eru Audi A7 og A8 og Volkswagen Touareg og Phea- ton. Aðrir bílar fyrirtækisins verða boðnir sem hreinir raf- bílar, svo sem nýr Audi R8 e-tron sem komast mun 450 km á hleðsl- unni og Volkswagen er að vinna að bíl sem komast mun meira en 500 km á hverri hleðslu. Það er því ekki lítið að gerast í þessum fræðum hjá stóru Volkswagen- bílafjölskyldunni og í fullu sam- ræmi við það að aldrei áður hefur Volkswagen fjárfest fyrir hærri upphæð í þróun bíla sinna en í fyrra, eða fyrir 1.702 milljarða króna, og enginn annar bílafram- leiðandi eyddi meira. Með stærsta bílaflotann sem mengar undir 95 g af CO2 Þessir umhverfisvænu bíla með nýrri tækni er liður í því að hlíta ströngum kröfum Evrópusam- bandsins um mengun bíla og þar stendur Volkswagen vel nú og mun standa enn betur að vígi innan tíðar. Volkswagen er með stærsta flota bíla sem menga undir 95 g af CO2 allra bílaframleiðenda, eða 57 bíla talsins. Volkswagen skil- greinir sínar aðferðir sem framlag sitt til betri heims og umhverfis- verndar og stendur nú skyndilega fremst í flokki bílaframleiðenda hvað það varðar. UMHVERFISVÆNIR AFL- GJAFAR NÚ Í ÖNDVEGI Hjá Heklu má nú velja á milli 11 gerða bíla sem ganga fyrir óhefðbundnum aflgjöfum. Með stærsta umhverfisvæna flotann. Volkswagen Golf GTE. Á síðasta ári voru seldir fleiri Porsche-bílar í Bandaríkjunum en nokkru öðru landi. Í ár eru yfir 30 þúsund bílar seldir þar fyrstu sex mánuði ársins, sem svarar til 13% aukningar miðað við sama tímabil í fyrra. Það kemur reyndar ekki á óvart vegna þess að sterk ímynd Porsche í Bandaríkjunum á sér langa sögu. Amer- íski Porsche-klúbburinn (PCA) hefur verið starfandi í 60 ár og er sá fjölmennasti í heimi með um 115,000 meðlimi í 143 deildum vítt og breitt um Bandaríkin. Porsche-ástríða Ameríkana endurspegl- aðist einnig ljóslega í könnun sem framkvæmd var nýlega af J.D. Power and Associates, einu virtasta markaðsrannsóknafyrirtæki Bandaríkjanna. Þar trónir Porsche á toppnum í heildaránægju- könnun á meðal bandarískra bíleigenda, enn eina ferðina. Nýjar gerðir frá Porsche eiga glæsilega innkomu, eins og til dæmis Mac- an-sportjeppinn, sem tekur toppsætið í sínum flokki í sinni fyrstu tilraun og goðsögnin Porsche 911 sem hirðir titilinn í fjórða skipti í röð. Ofurjeppinn Cayenne og Panamera Gran Turismo tylla sér líka í toppsætin. Þessi niðurstaða byggir á reynslu tugþúsunda bandarískra bíleigenda sem átt hafa 2015-árgerðir af Porsche á tímabilinu frá febrúarmánuði og út maí. Til grundvallar valinu á hverju ári liggur einnig langtíma áreiðanleikarannsókn á bílum á Bandaríkjamarkaði sem hefur verið gerð árlega, samfellt í 29 ár, af J.D. Power and Associates. Met í vinsældum Porsche í Bandaríkjunum Bílamarkaðurinn á Indlandi hefur verið í nokkurri lægð á undanförn- um árum og þar seljast tæplega þrjár milljónir bíla á ári. Ýmis teikn eru þó á lofti um aukna sölu á næstu árum og því er spáð að árið 2020 verði Indland orðinn þriðji stærsti bílamarkaður heims á eftir Kína og Bandaríkjunum. General Motors ætlar greinilega ekki að missa af þessum vagni og ætlar á næstu árum að fjárfesta fyrir einn milljarð dollara, eða um 134 milljarða króna, í starfsemi sinni á Indlandi. GM seldi aðeins 56.700 bíla í fyrra á Indlandi og var markaðshlut- deild fyrirtækisins aðeins 1,8%. Þessu ætlar Mary Barra, forstjóri GM, að breyta og vaxa afar hratt á Indlandi. Stefnan er að kynna tíu nýja bíla á Indlandi á næstu fimm árum og verða þeir framleiddir þar. Í dag eru japanskir og kóreskir bílaframleiðendur ráðandi á bílamark- aðnum á Indlandi. Framleiðendur eins og Suzuki og Hyundai hafa náð miklum árangri á Indlandi en bandarísk og evrópsk bílafyrirtæki hafa ekki náð að festa nægilega rótum í Indlandi og bjóða ekki nógu litla og ódýra bíla þar. GM ætlar einmitt að framleiða ódýra og smáa bíla í Indlandi og ekki bara selja þá þar heldur einnig í öðrum löndum í Asíu. Þar munu nýjar verksmiðjur GM á Indlandi leika aðalhlutverk. Í leiðinni ætlar GM að draga úr framleiðslu sinni í S-Kóreu, en þar er framleiddur fimmt- ungur af bílum GM á hverju ári. Hækkandi launakostnaður í S-Kóreu hefur hins vegar valdið GM áhyggjum og stefnan er að flytja talsvert af framleiðslunni þaðan í nýjar verksmiðjur á Indlandi. Framleiðslan í S-Kóreu mun í leiðinni breytast í framleiðslu dýrari bíla GM. GM veðjar á Indland S vo vel gengur hjá Fiat Chrysler um þessar mundir að fyrirtækið hefur þurft að breyta spám sínum um hagnað ársins í betri áttina. Hagnaður fyrri helmings árs- ins var 223 milljarðar króna, en var 129 milljarðar í fyrra. Fyrir vikið hefur fyrirtæk- ið gert ráð fyrir meiri hagnaði á árinu en fyrri spár sögðu til um. Það er aðallega mjög góð sala í Bandaríkjunum og frá- bær sala Jeep á öllum mörkuð- um sem skapa þennan mikla hagnað nú. Velta Fiat Chrysler jókst um 25 prósent frá fyrsta fjórðungi ársins til þess næsta og velta þeirra beggja nam 1.273 milljörðum króna. Fiat hafði spáð 607 milljarða EBIT- hagnaði fyrir árið í ár en hefur nú breytt spánni í 666 milljarða hagnað. Helmingur hagnaðarins varð til í Bandaríkjunum Ríflega helmingur hagnaðar Fiat Chrysler varð til í Banda- ríkjunum á fyrri helmingi árs- ins og hann meira en tvöfald- aðist á milli ára. Hagnaður af sölu náði nú 7,9% en var 4,9% í fyrra. Salan þar vestra jókst um 8% og nam 677.000 bílum. Salan í Evrópu, Afríku og Mið- Austurlöndum jókst um 13% og hagnaður þar um 19%. Salan í Kína minnkaði um 15% á milli ára og hagnaður þar minnk- aði um 47%. Tap var á sölu bíla í Brasilíu og Argentínu, en þar var hagnaður af sölu í fyrra. Salan þar minnkaði líka um 32% og er til marks um al- mennt lélega bílasölu þar í ár og slæmt efnahagsástand. Alls seldi Fiat Chrysler 1,19 milljón- ir bíla á fyrri helmingi ársins, en í fyrra seldi fyrirtækið 1,18 milljónir bíla. Sala Jeep-bíla í heiminum jókst um 27% á þess- um fyrstu sex mánuðum ársins. Við þessar góðu hagnaðarfrétt- ir Fiat Chrysler hækkuðu hluta- bréf í félaginu um 6,6% og hafa þau hækkað um 45% í ár. FIAT CHRYSLER HÆKKAR HAGNAÐARSPÁNA Góð sala í Bandaríkjunum og frábær sala Jeep-bíla skýrir árangurinn. Velta Fiat Chrysler jókst um 25 prósent. Mikill kraftur er í Alfa Romeo, en fyrirtækið er í eigu Fiat Chrys- ler, sem gengur ágætlega um þessar mundir. Þar á bæ ætla menn ekki að missa af áhuga bílkaupenda á jepplingum og unnið hefur verið lengi að fyrsta jepplingi fyrirtækisins. Verður hann kynnt- ur um mitt næsta ár. Vinnuheiti bílsins er Project 949 og er þessi bíll byggður á sama undirvagni og næsti nýi bíll Alfa, þ.e. Giulia, en sá bíll verður kynntur á undan jepplingnum. Stærð jepplings- ins er á við BMW X3 og er meiningin að hann keppi við þann bíl og aðra lúxusjepplinga svipaðrar stærðar. Alfa Romeo hefur lengi haft á prjónunum að smíða jeppling og sýndi sinn fyrsta tilraunajepp- ling fyrir einum 12 árum og bar hann nafnið Kamal. Giulia og Proj- ect 949 jepplingurinn eru aðeins tveir af átta nýjum bílgerðum sem Alfa Romeo ætlar að kynna til sögunnar fram til ársins 2018 og þar á meðal er annar jepplingur. Aðrir bílar eru tveir af minni gerð fólksbíla, einn í millistærðarflokki, einn stór fólksbíll og einn bíll sem Alfa Romeo segir að verði afar sérstakur. Alfa Romeo hefur uppi þau háleitu markmið að selja um 400.000 bíla þegar árið 2018. Alfa Romeo jepplingur á næsta ári Jeep Cherokee og aðrir Jeep-bílar seljast mjög vel. 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 2 -0 5 A 8 1 5 B 2 -0 4 6 C 1 5 B 2 -0 3 3 0 1 5 B 2 -0 1 F 4 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.