Fréttablaðið - 11.08.2015, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. ágúst 2015 | SKOÐUN | 13
Niðurstöður rannsókna
sem gerð var meðal 77
þúsund breskra ung-
menna árið 2011 leiddi
í ljós að 60% þeirra
sögðust skammast sín
fyrir eigið útlit og 73%
sögðust finna fyrir þeim
þrýstingi frá umhverfinu
að þau ættu hafa „full-
kominn“ líkama. Þessar
niðurstöður undirstrika
þá brýnu þörf sem er á
opinni og upplýsandi umræðu
um neikvæðrar afleiðingar
líkamsdýrkunar.
Saman getum við á ábyrgan
hátt breytt ríkjandi viðhorf-
um til neikvæðra staðalmynda.
Óöryggi og þunglyndi eru afleið-
ingar þess þegar ungt fólk er
sífellt minnt á hvað sé fallegt og
hvað sé viðurkennt. Nánast óger-
legt er fyrir venjulegt fólk að
falla að þessum staðalmyndum.
Þá er hætta á að ungmenni rækti
með sér neikvæð viðhorf sem
heftir frelsi þeirra og getur haft
áhrif á nám og starfsframa.
Við erum öll misjöfn frá nátt-
úrunnar hendi, sem betur fer. Í
neyslusamfélagi nútímans sitja
börn og unglingar hins vegar
uppi með stanslausar áminn-
ingar um æskilegt og eftirsókn-
arvert útlit. Barbie-dúkkan var
kynnt fyrir stúlkum árið 1959
og lifir enn sem skýr tilvísun
um hvernig stúlkur skulu vera í
vextinum og hvernig þær skulu
klæðast. Þessi neyslumenning
lofar grannan vöxt og lítur nei-
kvæðum augum á fitu og önnur
persónuleg sérkenni.
Fullorðnir þurfa að vera vak-
andi yfir hugsunum barna og
unglinga og hlusta af næmni
þegar þau tjá sig um líkams-
ímynd sína og tilfinningar. Virk
hlustun felst í því að reyna að
skilja hvað barnið meinar en
ekki í að leggja okkar eigin
skilning í hvað þau segja. Við
þurfum að vera fyrirmyndir.
Hegðun okkar hefur mun
meira að segja heldur
en orðin tóm. Það kemur
fram í hegðun barna og
unglinga er þau finna
fyrir höfnun vegna lík-
amsgerðar sinnar. Við
þurfum því að beina
athyglinni að hegðun
barnsins eða unglingsins
en ekki holdafarinu eða
líkamsásýndinni.
Fordómar eiga fyrst
og fremst rætur í þekkingar-
leysi. Við sjáum þá birtast á
kommenta kerfum samfélags-
miðla og þá virðist ekki skipta
máli hvort þeir beinast að ein-
staklingum sem eru mismun-
andi á litinn eða einstaklingum
í stjórnmálum. Fordómar eru
jafnslæmir og skaðlegir beinist
þeir að holdafari eða útliti fólks.
Sem góðar fyrirmyndir tölum
við ekki neikvætt um líkama
fólks. Óraunhæf útlitsviðmið
gera ekkert gagn og við þurf-
um að fræða börnin okkar um
mikilvægi þess að þau beri virð-
ingu fyrir sjálfum sér. Þannig
ræktum við sterka og sjálfstæða
einstaklinga. Sjálfsmyndin
er sterkt afl og við þurfum
að rækta stolt hjá hverjum og
einum yfir sérkennum sínum.
Kaupfélag Suðurnesja (KSK)
tekur afstöðu með jákvæðum
skilaboðum til ungs fólks með
stuðningi við þá vitundarvakn-
ingu sem felst í því að efla
jákvæða líkamsímynd. KSK
vinnur með Miðstöð símennt-
unar á Suðurnesjum að því að
efla sjálfsmynd, kraft og hæfi-
leika ungs fólks með því að
skipuleggja samtal fagfólks á
öllum skólastigum sem vinna
þarf saman að því að eyða for-
dómum varðandi staðalímyndir
um líkamsbyggingu ungmenna
og styrkja um leið sjálfsmynd
þeirra og virðingu.
Líkamsfrelsi
➜ Við erum öll misjöfn
frá náttúrunnar hendi, sem
betur fer. Í neyslusamfélagi
nútímans sitja börn og
unglingar hins vegar uppi
með stanslausar áminningar
um æskilegt og eftirsóknar-
vert útlit.
A
pr
il
20
15
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Fáðu þér áskrift í síma
1817 eða á 365.is
ENDALAUST
TAL OG 10 GB
Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365
og fáðu frábært sjónvarpsefni
á fáránlega góðu verði.
Allt það besta hjá 365
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365
SAM-
FÉLAGSMÁL
Skúli Skúlason
formaður KSK
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
1
-F
1
E
8
1
5
B
1
-F
0
A
C
1
5
B
1
-E
F
7
0
1
5
B
1
-E
E
3
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K