Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 24
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 6 11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR SUZUKI VITARA Finnur Thorlacius reynsluekur S uzuki Vitara er einn vin- sælasti jeppinn hérlend- is á síðustu árum og ára- tugum. Hann er nú að koma af fjórðu kynslóð, en sú þriðja var orðin tíu ára gömul. Suzuki Vitara hefur selst í nær þremur milljónum eintaka frá komu fyrstu kynslóð- ar hans árið 1988. Suzuki Vitara er í flokki bíla sem spáð er mikilli vel- gengni á næstu árum og er búist við því að þessi flokkur bíla muni tvö- faldast í sölu fram til ársins 2020. Suzuki hefur frá upphafi alltaf haft þann kost umfram margan jeppann að vera léttur bíll og nú er hann enn þá léttari og það frá aðeins 1.075 kílóum með bensínvél og framhjóla- drifi. Enda hefur Suzuki aðeins minnkað Vitara milli kynslóða og því má segja að þar sé afturhvarf til fortíðar fyrstu kynslóðar hans. Vit- ara með dísilvél og fjórhjóladrifi er hins vegar 1.295 kíló, en það telst samt ekki mikið fyrir jeppa. Auð- veldlega má færa rök fyrir því að í framhjóladrifsútfærslu bílsins sé rétt að tala um Vitara sem jepp- ling. Sú útfærsla hans verður ekki flutt inn til landsins enda telur Su- zuki á Íslandi að þörfum Íslendinga sé ekki þjónað með þeim bíl. Sökum þess hve hæfur Vitara hefur ávallt verið með góðu fjórhjóladrifi sínu, þrátt fyrir smæðina, tel ég hann meðal jeppa. Mjög eyðslugrannur Vegna lítillar þyngdar hefur Vitara ávallt verið fremur eyðslugrann- ur bíll og það telst fátítt að jeppi eyði jafnlitlu og 4,0 lítrum eins og eyðslugrennsta dísilútgáfa hans nú. Nýjum Suzuki Vitara var reynslu- ekið um daginn við frábærar að- stæður sunnan Lissabon í Portú- gal. Í býsna hörðum reynsluakstrin- um, þar sem bílnum var lítið hlíft, eyddi bensínútgáfa hans 7,1 lítra og vakti það hrifningu greinarritara. Var þá innifalin þrautaakstursbraut þar sem reyndi á torfærugetu hans og ýmsar tækninýjungar sem nóg er af í þessari nýju gerð bílsins. Su- zuki Vitara hefur tekið stórvægileg- um útlitsbreytingum og er hinn fal- legasti bíll. Ekki er víst að núver- andi eigendur Vitara sjái það við fyrstu sýn að þarna fari nýr Vitara, svo breyttur er hann. Suzuki hefur ekki fallið í þá gryfju að stækka bílinn og er fyrirtækið trútt sinni sannfæringu, að bíllinn eigi áfram að vera nettur og meðfærilegur. Su- zuki Vitara er ámóta stór og Mazda CX-3, Opel Mokka, Peugeot 2008, Nissan Juke og Skoda Yeti. Hann er þó með stærsta skottið í sínum flokki, að sögn Suzuki-manna, eða 375 lítra. Aftursætisrými leyfði það í reynsluakstri að tveir fullorðnir sætu þar og annar þeirra af hærri gerðinni og vel fór um báða. Suzuki ekki gleymt torfærugetunni Vélarnar sem eru í boði í Suzuki Vit- ara eru 1,6 lítra en bæði af bensín- og dísilgerð og báðar 115 hestöfl. Þarna eru ekki háar hestaflatöl- ur en þar sem bíllinn er svo létt- ur eru þær báðar ágætlega spræk- ar, en dísilvélin sprækari þar sem hún togar heil ósköp, 320 Nm. Báðar vélarnar líkuðu vel en dísilvél- in yrði fyrir valinu svo fremi sem ekki munar of miklu í verði. Suzuki hefur ávallt verið trútt sinni sann- færingu, að smíða smáa, eyðslu- granna bíla en samt flesta hæfa til utanvegaaksturs. Flestir þeir bíl- framleiðendur sem framleiða bíla í þessum flokki, svo sem ofantalda bíla, hafa gefist upp á að bjóða þá með nokkurri torfærugetu og með því sparað talsvert í framleiðslunni og því samkeppnis hæfari í verði. STÓRBREYTTUR VITARA ER TRÚR UPPRUNANUM Hefur minnkað milli kynslóða, er aðeins 1.075 kíló og eyðir frá 4,0 lítrum, sem er fáheyrt fyrir jeppa. Vitara stóð sig frábærlega sem fyrr við erfi ðar aðstæður í reynsluakstrinum. SONAX LAKKVÖRN+GLJÁI – Sterk og endingargóð gljávörn! Hefur hlotið frábæra dóma! 40.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er. Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann með Fréttablaðsappinu. Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: 1,6 L BENSÍNVÉL, 120 HEST- ÖFL Fjórhjóladrif Eyðsla 5,6 l/100 km í bl. akstri Mengun 131 g/km CO2 Hröðun 12,0 sek. Hámarkshraði 180 km/klst. Verð 4.480.000 kr. Umboð Suzuki umboðið SUSUKI VITARA 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 B 1 -F 1 E 8 1 5 B 1 -F 0 A C 1 5 B 1 -E F 7 0 1 5 B 1 -E E 3 4 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.