Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 11.08.2015, Qupperneq 26
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 8 11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR T il landsins er mættur einn af alskemmtilegustu „hothatch“ bílum sem kaupa má nú, þ.e. Renault Megane RS. Þar fer eng- inn kettlingur því undir húddi hans lúrir 280 hest- afla vél sem kemur þessum netta bíl sannarlega úr sporunum. Rétt er að hafa í huga að þessi bíll átti lengi brautarmetið á Nürburgring-braut- inni í flokki stallbaka áður en Seat Leon Cupra bætti það örlítið. Það eru ekki margir bílar sem fást hér á landi í þessum flokki ofurstall- baka, en þó hefur Hekla verið með í sölu Volkswagen Golf R, 300 hest- afla bíl og selt nokkra slíka bíla nú þegar, enda frábær bíll þar á ferð. Verðið á þessum gullfallega Ren- ault Megane RS er alveg til fyrir- myndar, eða 5.990.000 kr. og segja má að þarna fari ódýrustu hestöflin sem kaupa má. Algjör raketta Greinarritari fékk að reyna þenn- an kostagrip á dögunum og þvílík hamingja. Þetta er algjör raketta sem límd er á veginn og þótt reynt hafi verið að fara svo hratt í beygj- ur að búist hafi verið við griplosi var því ekki til að dreifa og enn er velt fyrir sér hversu hratt sé hægt að fara á honum gegnum krappar beygjur og hringtorg áður en bíln- um er ofboðið. Þar ræður bara þor ökumannsins. Þessi bíll stendur nú í sýningarsal BL ef einhver hepp- inn kaupandi hefur ekki tryggt sér hann. Afl bílsins kemur frá aðeins 2,0 lítra vél en forþjappa og frá- bær vélartækni Renault, sem þekkt er úr Formúlu 1, nær öllu því afli sem sent er eingöngu til framhjóla bílsins. Með allt þetta afl er bíllinn eðlilega togstýrður og því er rétt að ökumaðurinn sé með báðar hendur á stýri þegar honum er gefið hressi- lega inn. Ef svo er gert úr kyrr- stöðu spólar hann ógurlega og það er líka hægt þegar skipt er í annan gír og bensínfetillinn troðinn. Vakti endalausa athygli Ekki var frá því að nokkrar augna- gotur frá vegfarendum hafi lent á bílnum í þau fáu skipti sem þetta var reynt, en ekki var það held- ur leiðinlegt. Í raun var alls ekki leiðinlegt að aka á þessum bíl um bæinn, svo mikla eftirtekt vakti hann og margir vafalaust enn með hálsríg vegna höfuðsnúninga. Bíll- inn sem reyndur var, og reyndar sá eini enn sem komið er, var svart- ur á svörtum felgum með rauðan og fagran ysta boga felganna. Rauður bremsubúnaður bílsins rímar svo við þennan boga, hann kemur frá Brembo og bremsudiskarnir eru svo stórir að ekki sjást stærri nema á öflugustu bílum Porsche. Enda er jafnmikill unaður að bremsa þess- um bíl og gefa honum inn, en það er eins gott með öll þessi hestöfl í handraðanum. Vill vera á háum snúningi Framsætin er frá Recaro, hvað annað, ári þægileg og þau halda ökumanni læstum á réttum stað í öllum þeim átökum sem þessi bíll hreinlega krefst af ökumanni. Öll öryggisbeltin í bílnum eru rauð og ýta þau enn undir sportlegt útlit hans. Þessi bíll, eins og margur annar sportbíllinn, elskar að vera á háum snúningi og þannig fæst líka allt afl hans. Því er alveg óhætt að hanga aðeins í gírunum og njóta í leiðinni þess fallega hljóðs sem frá húddinu kemur. Bíllinn var að sjálfsögðu beinskiptur, en það ligg- ur við helgispjöllum ef öðruvísi væri farið. Eins og venjulegur  ölskyldubíll í hægakstri Það sem vakti kannski mesta furðu undirritaðs var að bíllinn er alls ekki stífur og hastur eins og loðað hefur við „hothatch“-bíla og þegar bíllinn var keyrður eins og venju- legur fólksbíll hegðaði hann sér einmitt þannig og fór vel með farþega. Svo vel er fjöðrun bíls- ins stillt. Það eitt réttlætir hann sem heimilisbílinn sem allir í fjöl- skyldunni kunna að meta, en samt kannski helst heimilisfaðirinn – þó ef til vill líka grimmakandi hús- móðirin. Áhugasömum bílaunnend- um og -kaupendum er rétt á benda á þennan bíl og gott verð hans. RENAULT MEGANE RS KOMINN TIL LANDSINS 280 hestafla skruggukerra sem kostar aðeins 5.990.000 kr. Renault Megane RS U mboðsaðili Jaguar Land Rover hér á landi, BL, heimsótti nýlega liðsmenn Team Sky sem tóku þátt í reið- hjólakeppninni Tour De France sem nýlega er afstaðin, en Jaguar Land Rover er meðal helstu styrktaraðila liðs- ins. Ingþór Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri þjónustusviðs hjá BL, fór utan til að kynna sér starf- semina hjá Jaguar, en sem kunn- ugt er opnar BL umboð fyrir Jagu- ar síðar á þessu ári. Í ferðinni fékk Ingþór tækifæri til að heim- sækja liðsmenn Team Sky þar sem lokaundirbúningur fyrir Tour De France var í hámarki. Jaguar sá liðinu fyrir bílum fyrir keppend- ur og fylgdarlið, Pinarello-keppnis- reiðhjólum, eldhúsbíl, kokkum, þjónustubílum og öðru sem alvöru lið þurfa á að halda. Team Sky með 6 Jaguar bíla „Þetta er mikið umfang, liðið var með sex Jaguar-bíla af mismunandi gerðum, m.a. F-Pace sem kemur ekki á markað fyrr en seint í haust og svo Land Rover Discovery jeppa. Þeir fylgdu liðinu eftir og sáu kepp- endum fyrir hjólum til skiptanna. Svo var svefnrúta með í för, eld- húsvagn með tveimur kokkum sem sáu bara um keppendur liðsins. Það var allur matur búinn til á staðn- um þannig að yfirkokkurinn, Hen- rik Orre sem er þekktur sjónvarps- kokkur í Noregi, vissi nákvæmlega hvað fór ofan í keppendurna. Svo var þjónustu- og viðhaldsbíll sem sá um hjólin sem eru engin venjuleg hjól, þau vega ekki nema örfá kíló, eða mjög nálægt lágmarki reglu- gerðar keppninnar, sem segir að hjólin megi ekki vera léttari en 6,8 kíló,“ segir Ingþór. Bílarnir vekja mikinn áhuga Það er því ekki skrítið að meðal helstu hjólakappa heims þyki eftir- sótt að vera styrktur af Jaguar. Að sögn Ingþórs segja stjórnendur Team Sky að keppnin í ár hafi skor- ið sig nokkuð úr frá fyrri keppnum hvað það varðar, að nú hafi fylgd- arbílar Jaguar fengið meiri athygli almennings en keppendurnir og þessi fisléttu keppnishjól sem allir geta látið sig dreyma um að eiga! Þess má geta í lokin að hver kepp- andi hefur til umráða þrjár gerðir af hjólum, nokkur varahjól af hverri týpu, og hjólin eru sérsmíðuð fyrir hvern og einn keppanda, handföng- in eru t.d. steypt eftir gripi hvers og eins, segir Ingþór. BL Á SLÓÐUM TOUR DE FRANCE MEÐ JAGUAR Team Sky með sex Jaguar-bíla í sinni þjónustu í keppninni. Hyundai í Bretlandi var í síðustu viku útnefndur bílaframleið- andi ársins hjá Motor Trader, sem eru hagsmunasamtök þeirra sem starfa við bílgreinina í Bretlandi og gefa m.a. út samnefnt tímarit. Þetta er í þriðja sinn á sex árum sem Motor Trader út- nefnir Hyundai sem besta bílaframleiðandann. Í áliti dómnefnd- ar var einkum litið til söluárangurs Hyundai í Bretlandi, auk nýrr- ar og endurhannaðrar vörulínu Hyundai og einstakra nýrra gerða framleiðandans sem hlotið hafa fjölmörg verðlaun vítt og breitt um heiminn. Segir dómnefndin að allir þessir þættir muni eflaust hjálpa framleiðandanum að ná settum markmiðum til 2020. Þegar verðlaunin voru afhent sagði Curtis Hutchinson, ritstjóri Motor Trader, Hyundai hafa aukið vöruúrval sitt á eftirtektar- verðan hátt með nýjum og vel hönnuðum bílum sem uppfylli vænt- ingar og þarfir allra helstu markhópa. „Árangurinn blasir við öllum. Hyundai í Bretlandi hefur aukið söluna um 25% frá 2010 og sló sölumet á síðasta ári þegar rúmlega 82 þúsund bílar voru af- hentir nýjum eigendum. Forstjóri Hyundai í Bretlandi segir, að þótt fyrirtækið hafi tekið miklum stakkaskiptum á undanförn- um árum verði ekki látið þar við sitja. „Við viljum að Hyundai þrói áfram náið og persónulegt samband sitt við viðskiptavini sína. Það munum við gera m.a. með því að bjóða upp á enn fjölbreyttara úrval bíla sem fólk langar til að eignast og einnig með því að bjóða viðskiptavinum enn persónulegri þjónustu. Markmið Hyundai er að selja a.m.k. 100 þúsund bíla á ári á breska markaðnum, öðlast 5% markaðshlutdeild og verða þar með í hópi fimm helstu bíla- merkjanna þar í landi. Allt er þá er þrennt er hjá Hyundai í Bretlandi Aldrei fyrr hafa sést Jaguar-bílar til aðstoðar í Tour de France. Sendibíllinn Opel Movano tók gullið í keppninni „Green Van 2015“ og hafði þar betur en fimmtán keppinautar í flokki at- vinnubíla sem eru undir sjö tonn að þyngd. Dómnefndin var skipuð sérfræðingum frá fagtímaritunum VerkehrsRund- schau og Trucker sem voru sammála um að veita Opel Movano umhverfisverðlaunin „Green Van 2015“ fyrir lipurð, rými og hleðslueiginleika og síðast en ekki síst fyrir sparneytna CDTI, 2,3 l BiTurbo dísilvélina, sem eyðir einungis 8,5 l/100km og hefur minnstu CO2-losun allra keppinautanna. Opel Movano var sá eini sem hlaut yfir 6.000 umhverfispunkta í sínum flokki. Sá sem kom næstur var 170 punktum neðar. „Mov- ano hefur slegið í gegn fyrir afburða sveigjanleika, lipurð og hleðslugetu og í fyrra fengu allir atvinnubílarnir okkar spar- neytnar og umhverfisvænar BiTurbo-dísilvélar sem eru m.a. að koma þeim á þennan stall í umhverfislegu tilliti, en þar ætlum við að halda okkur í framtíðinni,“ sagði Steffan Rasch- ing frá Opel, sigri hrósandi, þegar hann veitti viðtöku verð- launum fyrir umhverfisvænsta sendibílinn, við hátíðlega at- höfn í Bonn á dögunum. Opel Movano hlýtur titilinn „Green Van 2015“ 1 0 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 B 1 -F 6 D 8 1 5 B 1 -F 5 9 C 1 5 B 1 -F 4 6 0 1 5 B 1 -F 3 2 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.