Fréttablaðið - 11.08.2015, Side 42
11. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22
ÞRISVAR INN Á TOPP TÍU Hrafnhildur Lúthersdóttir á ferðinni á HM í 50 metra laug þar sem hún sló í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Fyrsti leikurinn er í dag
Stjörnukonur spila í dag sinn fyrsta
leik í undanriðli Meistaradeildarinnar
þegar þær mæta Hibernians frá Möltu.
Allir þrír leikirnir í riðlakeppninni fara
fram á Kýpur en Stjarnan
mætir einnig KÍ frá
Færeyjum og Apollon
frá Kýpur. Efsta liðið
í riðlinum kemst
áfram í 32 liða
úrslit Meistara-
deildarinnar.
Stjörnukonur
hafa tvisvar
áður tekið
þátt í
Evrópu-
keppninni
en eru enn að bíða
eftir sínum fyrsta
Evrópusigri.
SUND „Við höfum verið að ströggla
við að komast inn í milliriðla og í
úrslitariðla nánast alla þessa öld.
Það að komast fimm sinnum inn í
milliriðla og þrisvar í úrslit er langt
umfram það sem við væntum,“ segir
Hörður J. Oddfríðarson, formaður
SSÍ, um frábæran árangur á HM í
sundi sem lauk um síðustu helgi.
Þrisvar inn á topp tíu á sama HM
Hrafnhildur Lúthersdóttir komst
í úrslit í tveimur greinum og varð
fyrsti íslenski sundmaðurinn frá
upphafi til að komast inn á topp tíu
í þremur greinum á HM í 50 metra
laug. Eygló Ósk Gústafsdóttir komst
í úrslit í sinni bestu grein með því að
setja tvö Íslands- og Norðurlandamet
sama daginn. Bryndís Rán Hansen
og Anton Sveinn McKee settu bæði
met.
„Þetta er það besta sem við höfum
gert á heimsmeistaramóti síðan í
Fukuoka 2001,“ segir Hörður, en Örn
Arnarson vann bæði silfur og brons
á HM fyrir fjórtán árum. Hörður
nefnir sérstaklega þessi ár með bæði
Jakobi Jóhanni Sveinssyni og Erni en
þrátt fyrir góða möguleika þá náðu
þeir ekki að setja saman eins flott
heimsmeistaramót og þær Hrafn-
hildur og Eygló Ósk gerðu núna.
Erfitt að vera eini strákurinn
Stelpurnar stálu vissulega sviðs-
ljósinu með frábærum árangri en
fulltrúi karlpeningsins var líka
að stimpla sig inn. „Það var erfitt
fyrir Anton að vera eini strákurinn í
hópnum. Það voru sterkari andstæð-
ingar sem hann var að kljást við en
hann stóð alveg undir pressunni og
tók meðal annars Íslandsmetið sem
Jakob Jóhann Sveinsson setti fyrir
einhverjum árum. Þetta er hann
að gera í miðjum breytingum því
hann er að breyta sér úr því að vera
langsundsskriðsundsmaður í það
að verða bringusundsmaður. Það er
líka ákveðið stökk,“ segir Hörður.
„Ég held að það hafi ekki gerst,“
segir Hörður spurður um það þegar
Hrafnhildur og Eygló náðu báðar
að bæta sig tvisvar á sama degin-
um.
Eygló setti tvö Norðurlandamet
sama daginn og Hrafnhildur bætti
Íslandsmetið tvisvar í 200 metra
sundinu sama daginn auk þess að
jafna Íslandsmet sitt í 50 metra
bringusundinu sama daginn og hún
setti það. „Þetta er eitthvað sem við
höfum verið að vinna í en höfum ekki
séð fyrr en núna,“ segir Hörður.
Bein til að bera mótlæti
„Hrafnhildur hefur bein til þess að
bera mótlæti og nýtir það sér í vil
sem er mjög mikill kostur. Ég sá það
líka á þessu móti að þegar allt gekk
ekki upp þá bætti Hrafnhildur í frek-
ar en hitt. Það var mikil hvatning
fyrir hina í hópnum,“ segir Hörður.
„Það að vera búin að ná þremur
einstaklingum inn á Ólympíuleika,
ári fyrir leika, er mjög athyglisvert.
Ég man ekki til þess að við höfum
náð því. Við höfum verið að ná lág-
mörkum alltof alltof seint sem hefur
þýtt að það hefur ekki verið neinn
undirbúningstími. Við vorum alltaf
að ná lágmörkunum seinna og seinna
í ferlinu og höfðum þannig minni og
minni tíma til að aðstoða sundfólkið
í því að byggja sig upp fyrir leikana,“
segir Hörður og bætir við:
„Núna erum við í þeirri óvæntu
stöðu að við erum með þrjá sund-
menn sem munu nota þennan vetur
til þess að byggja sig upp og koma
síðan vonandi inn á Evrópumótið
næsta vor til þess að sýna að þau
eigi erindi inn á Ólympíuleika og ná
síðan vonandi að blómstra á leikun-
um,“ segir Hörður og sundheimurinn
hefur tekið eftir litla Íslandi á þessu
móti.
Hvað, Ísland aftur?
„Við fáum mjög jákvæð viðbrögð og
sumir eiga ekki orð til að lýsa því
hvað þeim finnst þetta hafa verið
óvæntur árangur. Ég er að reyna
að segja þeim að þetta var ekkert
óvænt,“ segir Hörður í léttum tón.
„Allar þjóðirnar, hvort sem það
eru vinaþjóðir okkar á Norðurlönd-
um eða hvaðan sem þær eru úr heim-
inum voru að segja: „Hvað, Ísland
aftur?“ og „Frábært að sjá ykkur
stimpla ykkur inn,““ segir Hörður
um viðbrögðin.
„Það er mjög mikill metnaður
hjá okkar sundfólki og hann jókst
bara við þennan árangur og þegar
þau uppgötvuðu það hvað þau gátu
gert þegar þau voru saman. Sund-
ið er mikil einstaklingsíþrótt og
það er ekki auðvelt að búa til mik-
inn hópanda í sundi. Það er hægt og
það hefur mörgum tekist það en við
höfum ekki endilega verið mjög góð
í því fram að þessu,“ segir Hörður
að lokum.
ooj@frettabladid.is
SPORT
PEPSI-DEILD KARLA
STAÐAN
FH 15 10 3 2 33-19 33
KR 15 9 3 3 25-13 30
Breiðablik 15 8 5 2 23-9 29
Valur 15 7 3 5 24-18 24
Fjölnir 15 7 3 5 22-20 24
Stjarnan 15 5 5 5 18-17 20
Fylkir 15 5 5 5 15-20 20
Víkingur 15 4 5 6 23-23 17
ÍA 15 4 5 6 19-23 17
ÍBV 15 4 2 9 17-26 14
Leiknir 15 3 4 8 14-21 13
Keflavík 15 1 3 11 14-38 6
NÆSTU LEIKIR
Mánudagur 17. ágúst: 18.00 Víkingur-Leiknir,
Breiðablik-ÍA, FH-Stjarnan og Fylkir-Keflavík.
Fimmtudagur 20. ágúst: 18.00 Fjölnir-Valur,
ÍBV-KR.
PEPSI-DEILD KVENNA
ÍBV - AFTURELDING 5-1
Cloe Lacasse 2, Díana Dögg Magnúsdóttir,
Kristín Erna Sigurlásdóttir, Guðrún Bára
Magnúsdóttir - Stefanía Valdimarsdóttir.
STAÐAN
Breiðablik 12 11 1 0 35-2 34
Stjarnan 13 11 0 2 36-7 33
ÍBV 13 7 1 5 30-19 22
Þór/KA 12 6 3 3 32-19 21
Valur 13 7 0 6 26-32 21
Selfoss 12 6 2 4 20-13 20
Fylkir 12 6 1 5 22-22 19
KR 12 1 3 8 9-28 6
Þróttur R. 12 0 2 10 4-35 2
Afturelding 13 0 1 12 7-44 1
NÆSTU LEIKIR
Í kvöld: 18.00 Þór/KA-KR, 19.15 Þróttur-
Selfoss, Breiðablik-Fylkir.
Mörkin: 1-0 Þorsteinn Már Ragnarsson (80), 2-0
Pálmi Rafn Pálmason (83.).
KR (4-3-3): Stefán Logi Magnússon 7, Aron Bjarki
Jósepsson 6, Skúli Jón Friðgeirsson 7, Rasmus
Christiansen 6, Gunnar Þór Gunnarsson 6 - Jónas
Guðni Sævarsson 6, *Pálmi Rafn Pálmason 7 (86.
Kristinn Jóhannes Magnússon -), Jacob Schoop
6 - Sören Fredriksen 3 (73. Almarr Ormarsson -),
Óskar Örn Hauksson 5, Hólmbert Aron Friðjóns-
son 5 (36. Þorsteinn Már Ragnarsson 7).
FYLKIR (4-4-2): Ólafur Íshólm Ólafsson 6, Andrés
Már Jóhannesson 6, Tonci Radovinkovic 6, Ásgeir
Eyþórsson 7, Tómas Joð Þorsteinsson 6 - Ragnar
Bragi Sveinsson 5 (60. Ingimundur Níels Óskars-
son 5), Ásgeir Börkur Ásgeirsson 6, Jóhannes Karl
Guðjónsson 6 (65. Oddur Ingi Guðmundsson -),
Ásgeir Örn Arnþórsson 6 - Hákon Ingi Jónsson
4 (75. Kjartan Ágúst Breiðdal -), Albert Brynjar
Ingason 4.
Skot (á mark): 19-4 (4-2) Horn: 8-3
Varin skot: Stefán 2 - Ólafur 2
2-0
Alvogenvöllur
Áhorf: 1.501
Valdimar
Pálsson (3)
Mörkin: 0-1 Jonathan Glenn (38.).
VALUR (4-3-3): Anton Ari Einarsson 5 - Andri
Fannar Stefánsson 5, Thomas Christiensen 6,
Orri Sigurður Ómarsson 6, Bjarni Ólafur Eiríksson
7 - Haukur Páll Sigurðsson 5 (46. Iain Williamson
5), Mathias Schlie 5, Kristinn Freyr Sigurðsson 6 -
Kristinn Ingi Halldórsson 5 (77. Andri Adolphsson
-), Sigurður Egill Lárusson 6, Emil Atlason 4.
BREIÐABLIK (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson
6 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson 5 (81. Guðmundur
Friðriksson -), Elfar Freyr Helgason 6, *Damir
Muminovic 7, Kristinn Jónsson 6 - Oliver Sigur-
jónsson 4 (59. Andri Rafn Yeoman 5), Guðjón
Pétur Lýðsson 6 (77. Atli Sigurjónsson -), Arnþór
Ari Atlason 6 - Ellert Hreinsson 4, Höskuldur
Gunnlaugsson 5, Jonathan Glenn 6.
Skot (á mark): 13-11 (3-2) Horn: 9-4
Varin skot: Anton 1 - Gunnleifur 3
0-1
Laugardalsv.
Áhorf: Um 1.000
Vilhjálmur
Alvar (7)
Mörkin: 1-0 Þórhallur Kári Knútsson (75.), 1-1
Vladimir Tufegdzic (83.).
STJARNAN (4-3-3): Gunnar Nielsen 7 - Heiðar
Ægisson 6, Brynjar Gauti Guðjónsson 6, Daníel
Laxdal 7, Hörður Árnason 6 - Michael Præst 6,
Þorri Geir Rúnarsson 5 (61. Jeppe Hansen 5),
Pablo Punyed 7 - Arnar Már Björgvinsson 5 (71.
Þórhallur Kári Knútsson -), Ólafur Karl Finsen 6
(79. Jóhann Laxdal -), Guðjón Baldvinsson 5.
VÍKINGUR (4-3-3): Thomas Nielsen 6 - Dofri
Snorrason 7, Milos Zivkovic 7, Igor Taskovic 6,
Halldór Smári Sigurðsson 6 - Viktor Bjarki Arnars-
son 7, Ívar Örn Jónsson 6, Arnþór Ingi Kristinsson
5 (63. Vladimir Tufgdzic 6) - Davíð Örn Atlason 5
(79. Andri Rúnar Bjarnason -), *Hallgrímur Mar
Steingrímsson 7, Rolf Toft 5.
Skot (á mark): 8-8 (3-4) Horn: 6-1
Varin skot: Gunnar 2 - Thomas 2.
1-1
Stjörnuvöllur
Áhorf: 803
Ívar Orri
Kristjánss. (6)
Mörkin: 0-1 Kennie Knak Chopart (43.), 1-1
Martin Hummervoll (62.).
KEFLAVÍK (4-3-3): Sindri Kristinn Ólafsson 5 -
Guðjón Árni Antoníusson 5, Paul Bignot 5, Einar
Orri Einarsson 5, Magnús Þórir Matthíasson 5 (87.
Bojan Ljubicic -) - Frans Elvarsson 7*, Jóhann
B. Guðmundsson 5 (68. Leonard Sigurðsson 4),
Hólmar Örn Rúnarsson 5 - Samuel Hernarndez 4,
Martin Hummervoll 6, Chukwudi Chijindu 5 (70.
Daníel Gylfason -).
FJÖLNIR (4-4-2): Þórður Ingason 5 - Atli M. Þor-
bergsson 5 (87. Arnór Eyvar Ólafsson), Bergsveinn
Ólafsson 5, Jonatan Neftalí 5, Viðar Ari Jónsson
5 - Ragnar Leósson 5 (71. Aron Sigurðsson -), Illugi
Gunnarsson 5, Guðmundur Böðvar Guðjónsson
5, Guðmundur Karl Guðmundsson 6 - Gunnar
Már Guðmundsson 5 (61. Mark Magee 5), Kennie
Chopart 7.
Skot (á mark): 8-7 (2-3) Horn: 5-4
Varin skot: Sindri 2 - Þórður 1
1-1
Nettóvöllur
Áhorf: 900
Pétur
Guðmundss.(5)
Mörkin: 0-1 Jose Enrique (12.), 0-2 Jose Enrique
(58.).
LEIKNIR (4-3-3): Eyjólfur Tómasson 5 - Eiríkur
Ingi Magnússon 6, Halldór Kristinn Halldórsson
6, Óttar Bjarni Guðmundsson 4, Gestur Ingi
Harðarson 6 - Brynjar Þór Hlöðversson 7, Sindri
Björnsson 5 (61., Daði Bergsson 4), Hilmar Árni
Halldórsson 4 -, Fannar Þór Arnarsson 5 (61., Atli
Arnarson 4), Elvar Páll Sigurðsson 6 (76., Ólafur
Hrannar Kristjánsson -), Danny Schreurs 3.
ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 7 - Jonathan Patrick
Barden 6, Hafsteinn Briem 6, Avni Pepa 7, Jón
Ingason 7 - Mees Junior Siers 7, Mario Brlecic
6, Jose Enrique 9 (72., Ian David Jeffs -) - Víðir
Þorvarðarson 6 (85., Gunnar Þorsteinsson -), Aron
Bjarnason 4 (59., Stefán Ragnar Guðlaugsson 6),
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 6.
Skot (á mark): 13-6 (8-3) Horn: 14-2
Varin skot: Eyjólfur 1 - Abel 7
0-2
Leiknisvöllur
Áhorf: 650
Erlendur
Eiríksson (6)
Mörkin: 1-0 Arnar Már Guðjónsson (4.), 1-1 Atli
Viðar Björnsson (24.), 1-2 Emil Pálsson (49.), 1-3
Atli Viðar Björnsson (53.), 2-3 Garðar Gunnlaugs-
son (81.).
ÍA (4-4-2): Árni Snær Ólafsson 5 - Þórður Þor-
steinn Þórðarson 4, Ármann Smári Björnsson
5, Arnór Snær Guðmundsson 5, Darren Lough
5 - Ingimar Elí Hlynsson 4 (58. Ólafur Valur
Valdimarsson 5), Arnar Már Guðjónsson 6, Albert
Hafsteinsson 4 (86. Marko Andelkovic -), Ásgeir
Marteinsson 5 (64. Jón Vilhelm Ákason 6) - Eggert
Kári Karlsson 4, Garðar Gunnlaugsson 7.
FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 5 - Jonathan
Hendrickx 7, Pétur Viðarsson 6, Kassim Doumbia
5, Böðvar Böðvarsson 8 (71. Sam Tillen -) - Emil
Pálsson 7, Davíð Þór Viðarsson 7, Atli Guðnason
7 - Jérémy Serwy 8, Þórarinn Ingi Valdimarsson
7, *Atli Viðar Björnsson 8 (77. Kristján Flóki
Finnbogason -).
Skot (á mark): 13-14 (7-7) Horn: 2-12
Varin skot: Árni 3 - Róbert 4
Akranesvöllur
Áhorf: ?
Garðar Örn
Hinriksson (7)
Ísland á sundkortið í Kazan
Árangur íslenska sundfólksins á HM í sundi hefur mikið vakið mikla athygli en Ísland átti þrjá sundmenn í
úrslitasundi á mótinu og fj óra meðal tíu efstu í sínum greinum auk þess sem ellefu Íslandsmet féllu á HM.
2-3
2. sæti Örn Arnarson 100 metra baksund 2001
3. sæti Örn Arnarson 200 metra baksund 2001
6. sæti Hrafnhildur Lúthersdóttir 100 metra bringusund 2015
7. sæti Hrafnhildur Lúthersdóttir 50 metra bringusund 2015
8. sæti Eygló Ósk Gústafsdóttir 200 metra baksund 2015
8. sæti Eðvarð Þór Eðvarðsson 200 metra baksund 1986
9. sæti Hrafnhildur Lúthersdóttir 200 metra bringusund 2015
10. sæti Eðvarð Þór Eðvarðsson 100 metra baksund 1986
13. sæti Anton Sveinn McKee 200 metra bringusund 2015
13. sæti Hrafnhildur Lúthersdóttir 50 metra bringusund 2013
13. sæti Jakob Jóhann Sveinsson 200 metra bringusund 2001
BESTI ÁRANGUR ÍSLANDS
Á HM Í 50 METRA LAUG
1
0
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
2
-1
4
7
8
1
5
B
2
-1
3
3
C
1
5
B
2
-1
2
0
0
1
5
B
2
-1
0
C
4
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K