Fréttablaðið - 01.08.2015, Side 4
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
Þetta eru
sjálfsögð
mannréttindi
að þú sért ekki
þvingaður til
að vera í
hjónaband
sem þú vilt ekki vera í.
Helga Vala Helgadóttir lögmaður
NÁTTÚRA Umhverfis- og skipulags-
svið Reykjavíkurborgar ætlar að
grípa til aðgerða vegna útbreiðslu
trölla-, húna- og bjarnarklóa í
Reykjavík.
Þetta eru plöntur af ættkvíslinni
heracleum, en fundist hafa þrjár
tegundir sem ganga undir ýmsum
nöfnum. Þær eru varasamar því
þær innihalda efnasambönd sem
geta valdið alvarlegum bruna á
húð. Í sumar hefur verið unnið að
því að kortleggja útbreiðslu platn-
anna en að því loknu verður unnin
aðgerðaráætlun og útbúið fræðslu-
efni um hvernig best sé að bregð-
ast við vandanum. - ngy
Borgin kortleggur plöntur:
Bregðast við vara-
sömum plöntum
HERACLEUM Plönturnar eru varasamar
en sjást víða Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN „Ég las nýlega þrjá-
tíu ára gömul ummæli sem voru
höfð eftir mér. Ummælin féllu á
þeim tíma sem við Donald vorum
að skilja. Þessi saga er ekki á
rökum reist,“ sagði Ivana Trump
í yfirlýsingu í gær.
Undanfarna daga hefur verið
fjallað um gömul ummæli henn-
ar þar sem hún sakaði forseta-
frambjóðandann Donald Trump,
fyrrverandi eiginmann sinn, um
nauðgun. Hún dregur nú ummæl-
in til baka. „Ég hef mikið dálæti
á Donald og óska honum alls hins
besta í kosningabaráttu sinni. Ég
held að hann yrði ótrúlega góður
forseti Bandaríkjanna.“ - þea
Ivana um sinn fyrrverandi:
Dregur orð um
Trump til baka
26.07.2015 ➜ 01.08.2015
hafa látist í ár við það að
reyna að komast í gegnum
Ermarsundsgöngin.
9 FLÓTTAMENN
1,49
manna nota Facebook,
samkvæmt tölum frá Mark
Zuckerberg.
unglinga sem eiga foreldra
af erlendum uppruna hafa
reykt tóbak um ævina á
móti fjórtán prósentum
íslenskra unglinga.
33%
sem komnir eru yfir sjötugt,
starfa í Reykjavík.
5-10 bifreiðar hafa verið innkall-
aðar það sem af er ári. Í fyrra
voru þær samtals 6.394.
16.099
fóru fyrir héraðsdóm árið
2014 en 5.122 árið 2011.
2.597
NÝ
SAKAM
ÁL
MILLJARÐAR
DAGFORELDRAR,
DÓMSMÁL Dæmi eru um að
íslenskir dómstólar vísi skilnaðar-
málum frá dómi ef ekki næst í
annan makann á grundvelli þess
að eignaskiptasamningar liggi
ekki fyrir þótt
ljóst sé að bú séu
eignalaus. Þetta
segir Helga Vala
Helgadóttir lög-
m að u r. Hú n
segist vita til
tveggja nýlegra
s l í k a m á l a .
Annað þeirra
hafi farið fyrir
Hæstarétt sem staðfest hafi að
vísa málinu frá dómi á grundvelli
þess að eignaskiptasamningur hafi
ekki legið fyrir.
„Þess er krafist þegar gengið er
frá skilnaði að búið sé að ganga frá
eignaskiptum eða farið hafi fram
beiðni um opinber skipti,“ segir
Helga Vala.
„Þegar þú ferð fram á opinber
skipti þarft þú að sýna fram á að
það séu einhverjar eignir í búinu
til að skipta og leggja fram trygg-
ingu upp á 250 þúsund krónur.
Þetta er auðvitað frekar galið
þegar engar sameiginlegar eignir
eru í búinu eins og oft er,“ segir
Helga Vala.
Þegar bent hafi verið á fyrir
dómi að ekki sé hægt að fara fram
á opinber skipti í eignalausu búi
hafi viðkvæði dómstóla verið að
eigi að síður þurfi að óska eftir
opinberum skiptum fyrir hér-
aðsdómi. Dómstóllinn eigi svo að
hafna opinberum skiptum þar sem
bú sé eignalaust.
„Þetta eru sjálfsögð mannrétt-
indi að þú sért ekki þvingaður
til að vera í hjónabandi sem þú
vilt ekki vera í. Manneskja getur
þvælt þessu árum saman í gegn-
um kerfið með miklum tilkostnaði
einstaklings með því að bregðast
ekki við beiðni um skilnað,“ segir
Helga Vala.
Hins vegar bendir Helga Vala
á að ekki gangi að afgreiða kröfu
um skilnað nema gengið hafi verið
úr skugga um að reynt hafi verið
að ná í hinn aðilann. „Það þarf að
vera alveg ljóst að það sé reynt að
birta makanum stefnu,“ segir hún.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lög-
maður segir að úrræði í skilnaðar-
málum þar sem ekki næst í annan
makann í íslensku dómskerfinu
virki eins og þau eigi að gera. Sé
rökstutt í stefnu í Lögbirtinga-
blaðinu hvers vegna stefnan sé birt
þar, eigi það að duga til að fá skiln-
að samþykktan fyrir dómi. Í þeim
dómsmálum sem hann hafi rekið
hafi slík birting verið talin nægjan-
leg. „Ef þú sleppir því að rökstyðja
eða gerir það illa geta verið ein-
hverjir vankantar á málatilbúnaðin-
um,“ segir Vilhjálmur. „Ef lögmenn
vinna ekki vinnuna sína og standa
sig ekki sem skyldi geta dómstólar
ekkert að því gert,“ bætir Vilhjálm-
ur við. ingvar@frettabladid.is
Skilnaði hafnað ef ósamið
er um skipti eignalausra búa
Dæmi eru um að dómstólar vísi skilnaðarmálum frá ef ekki næst í annan maka og eignaskiptasamningar liggja
ekki fyrir þótt ljóst sé að bú séu eignalaus. Helga Vala Helgadóttir segir það mannréttindamál að fá að skilja.
VILHJÁLMUR H.
VILHJÁLMSSON
Í DÓMSAL Helga Vala segir að hægt sé að þvæla skilnaðarmálum í gegnum réttarkerfið í mörg ár með því að láta ekki ná í sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Helga Vala hefur rekið nokkur mál fyrir íslenskum dómstólum þar sem ekki
tekst að hafa upp á erlendum maka. Eitt þeirra sneri að íslenskri konu sem
giftist breskum karlmanni árið 1975 en sleit samvistum við hann ári síðar og
flutti þá til Íslands. Konan fór hins vegar ekki formlega fram á skilnað fyrir dóm-
stólum fyrr en árið 2012. Hún hafði þó farið fram á skilnað áratugum áður. Þá
hafði hún hvorki hitt né heyrt frá eiginmanni sínum í 36 ár. Eigi að síður þurfti
að reka málið tvívegis fyrir íslenskum dómstólum þar sem dómari mat það svo
að ekki hefði verið fullreynt að hafa uppi á manninum í fyrra dómsmálinu. „Við
vissum ekki einu sinni hvort maðurinn var lífs eða liðinn,“ segir Helga Vala.
Hafði ekki heyrt frá makanum í 36 ár
REYKJAVÍK Alls fengu 4.088 ein-
staklingar og fjölskyldur fjárhags-
aðstoð á vegum Reykjavíkurborg-
ar í fyrra, samanborið við 4.218
árið þar áður. Það er fækkun um
3,1% milli ára. Þetta kemur fram í
nýbirtri árs skýrslu vel ferðarsviðs
Reykja vík ur borg ar.
Fjár hagsaðstoð er veitt til fram-
færslu ein stak linga og fjöl skyldna.
Þeir eiga rétt á fjár hagsaðstoð sem
eiga lög heim ili í Reykja vík og hafa
tekj ur und ir ákveðnum viðmiðun-
ar mörk um. Aðstoðin er ým ist veitt
sem styrk ur eða lán.
Fjár hagsaðstoð til fram færslu
ein stak lings á ár inu 2014 gat
numið allt að 169.199 kr. á mánuði
og 253.799 kr. á mánuði til hjóna
eða fólks í sam búð. Aðstoðin er
óháð barna fjölda, þar sem reiknað
er með að barna bæt ur, meðlög og
barna líf eyr ir mæti kostnaði vegna
barna. Vaxta bæt ur og húsa leigu-
bæt ur mæta mis mun andi kostnaði
vegna hús næðis.
Fjár hagsaðstoð til fram færslu
var veitt 3.269 ein stak lingum og
fjöl skyldum sam an borið við 3.350
árið 2013 og er það fækk un um
2,4% á milli ára. Synj an ir um-
sókna um fjár hagsaðstoð voru 584
á ár inu. Þar af var 236 ein stak ling-
um synjað með öllu um fjár hags-
stuðning sam an borið við 220 mál
árið 2013 og er það fjölg un um 7%.
Auk fjár hagsaðstoðar til fram-
færslu er heim ilt að veita ein-
stak ling um og fjöl skyld um fjár-
hagsaðstoð vegna sér stakra
aðstæðna, náms eða óvæntra
áfalla sam kvæmt regl um um fjár-
hagsaðstoð. - fbj
Þeim sem fá fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg fækkar um 3,1% milli ára:
Alls 4.088 fengu fjárhagsaðstoð
REYKJAVÍK Fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklings á árinu gat numið allt að
169 þúsund krónum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
E
-F
1
3
C
1
5
9
E
-F
0
0
0
1
5
9
E
-E
E
C
4
1
5
9
E
-E
D
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K