Fréttablaðið - 01.08.2015, Side 6
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
FERÐAÞJÓNUSTA „Ég verð nú bara
að vera alveg hreinskilinn og
spyrja – eru svona hátíðir fyrir
alla eða fyrir suma?“ segir Berg-
ur Benjamínsson, varaformaður
Sjálfsbjargar, um þá salernisað-
stöðu sem hreyfihömluðum er
oftar en ekki boðið upp á á bæjar-
átíðum á Íslandi.
Bergur segir allt of algengt
að ekki sé hugsað út í að fatlaðir
hátíðargestir þurfi líka að fara á
salernið. „Menn einhvern veginn
búast ekki við að fatlað fólk sé að
sækja slíkar hátíðir,“ segir Bergur.
Í hans huga ætti að vera ein-
falt mál að leysa vandann. „Ef þú
þarft að bóka Stuðmenn þarft þú
líka að bóka stóran kamar. Þetta
á bara að vera á listanum yfir það
sem þarf að gera,“ segir Bergur.
Fötluðum líði
oftar en ekki
eins og þeir séu
skildir út undan
þegar engin sal-
ernisaðstaða sé
til staðar fyrir
þá. „Það er þessi
tilfinning sem
enginn vill upp-
lifa – að vera óvelkominn sem
maður upplifir því miður – þegar
maður lendir í einhverju svona.
Það er rosalega leiðinlegt, það
verður bara að segjast alveg eins
og er,“ segir Bergur. Ellen Cal-
mon, formaður Öryrkjabandalags
Íslands, segir að málið snúist um
mannréttindi.
„Þetta er spurning um að allir
séu við sama borð settir,“ segir
hún. Ellen segir allt of algengt að
fatlaðir þurfi að fara inn á nær-
liggjandi veitingastaði og biðja um
leyfi til að fara á salernið.
„Þetta er partur af því að fatl-
að fólk sæki sína þjónustu á
sama stað og allir aðrir. Ef það
eru almenningssalerni eiga það
að vera salerni fyrir alla, ekki
suma,“ segir Ellen.
Ellen bendir á að hreyfihaml-
aðir geti ekki notað hvaða salerni
sem er. Þeir þurfi að hafa nægt
gólfrými fyrir hjólastól, arm-
stuðning og lítinn hæðarmun frá
gólfi.
Öryrkjabandalag Íslands hefur
sent bréf á öll sveitarfélög lands-
ins þar sem brýnt er fyrir skipu-
leggjendum hátíða að tekið sé tillit
til þarfa fatlaðs fólks þegar fær-
anlegum salernum sé komið fyrir.
„Sú hefur því miður ekki alltaf
verið raunin,“ segir í bréfinu.
Engin svör hafa enn borist við
bréfinu að sögn Ellenar en Dagur
B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, hafi tekið jákvætt
í beiðni hennar og sagt að málið
yrði tekið til skoðunar.
ingvar@frettabladid.is
Fatlaðir komist líka
á klósett á hátíðum
Allt of algengt er að engin salerni séu fyrir hreyfihamlaða á bæjarhátíðum að
sögn formanns Öryrkjabandalagsins. Hún segir málið snúast um mannréttindi.
Varaformaður Sjálfsbjargar segir vont að líða eins og hann sé óvelkominn.
KAMAR FYRIR HREYFIHAMLAÐA Ellen bendir á að kamrar fyrir hreyfihamlaða þurfi að
vera rúmgóðir, með armstuðning og lítinn hæðarmun frá gólfi. FRÉTTABLAÐIÐ/AMDRI MARÍNÓ
ELLEN CALMON
Ef þú
þarft að bóka
Stuðmenn
þarft þú líka
að bóka
stóran kamar.
Bergur Benjamíns-
son, varaformaður Sjálfsbjargar
Stjórn Vina Vatnajökuls
auglýsir eftir umsóknum
um styrki.
Vinir Vatnajökuls eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs.
Samtökin styrkja rannsóknir, kynninga- og fræðslustarf sem stuðlar
að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Umsóknarfrestur stendur frá 1. ágúst til 30. september 2015.
Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu samtakanna www.vinirvatnajökuls.is.
ÖRYGGISMÁL „Rannsóknin er á lokastigi,“
segir Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri
flugslysasviðs Rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa, um gang mála vegna skoðunar á
flugslysinu við Akureyri fyrir tæpum tveim-
ur árum.
Flugstjóri og sjúkraflutningamaður fórust
er sjúkraflugvél Mýflugs brotlenti á akst-
ursbraut Bílaklúbbs Akureyrar í Hlíðarfjalli
mánudaginn 5. ágúst 2013. Annar flugmaður
sem var í vélinni komst lífs af.
Þorkell segir styttast í að drög að loka-
skýrslu verði send til aðila málsins til
umsagnar. Einnig eigi málið eftir að fá
umfjöllun hjá Rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa.
„Að því loknu er skýrslan gefin út opinber-
lega. Og ég býst við að það verði núna á næstu
mánuðum. Það snýst um hversu hraða meðhöndl-
un málið fær á þessum lokaferli,“ segir Þorkell.
Aðspurður segir Þorkell ekkert sérstakt
hafa gert rannsókn þessa slyss flókna. „Það
er bara nóg að gera hjá okkur og þetta hefur
tekið sinn tíma. Hefur haft sinn eðlilega
gang.“ - gar
Styttist í lokaskýrslu flugslysasviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa um brotlendinguna í Hlíðarfjalli:
Drög að lokaskýrslu bráðlega til umsagnar
TF-MYX Óhug sló á áhorfendur á aksturskeppni í Hlíð-
arfjalli þegar lágflug yfir brautina endaði með skelfingu.
FINNLAND Jussi Niinistö, varnar-
málaráðherra Finnlands, segir
að Finnland verði að endurmeta
varnar málastefnu sína vegna
aukinna umsvifa Rússlandshers í
Eystrasalti. Bæði flotar Rússlands
og NATO hafa aukið umferð sína
um svæðið.
Hann veltir því upp að friðhelgi
Álandseyja þurfi hugsanlega að
endurskoða vegna þessa.
Álandseyjar eru herlaust land og
ríkir alþjóðlegt samkomulag um
hlutleysi eyjanna komi til átaka og
ber ríkjum sem eru aðilar að sam-
komulaginu að virða það. Það hafi
verið stefna Finnlands til þessa en
Niinisto segir að nú þurfi hugsan-
lega að verða breyting á, mögulega
þurfi Finnland að tryggja varnir
Álandseyja í framtíðinni.
Hann vísar til innlimunar Krím-
skaga í Rússland og segir að þrátt
fyrir að alþjóðlegir sáttmálar séu
í gildi séu Rússar þannig úr garði
gerðir að þeir myndu ekki virða
hlutleysi Álandseyja kæmi til
átaka.
Niinisto segir að Svíþjóð og
Finnland muni vinna sameigin-
lega að aðgerðaráætlun um varn-
ir Álandseyja og Eystrasalts. - srs
Varnarmálaráðherra Finnlands segir Rússland ekki virða alþjóðasamninga:
Telur Álandseyjar berskjaldaðar
TVEIR VARNARMÁLARÁÐHERRAR Varnarmálaráðherrar Svíþjóðar og Finnlands,
Peter Hultqvist og Jussi Niinisto, funduðu í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BORGARBYGGÐ Mikil aukning
hefur orðið í aðsókn að sundlaug-
um Borgarbyggðar í sumar.
Í sundlaugina í Borgarnesi hafa
komið 15.900 gestir í júlí sem er
þrjátíu prósenta aukning í saman-
burði við júlí í fyrra.
Aukning í sundlaugina á Klepp-
járnsreykjum er yfir fjörutíu pró-
sent þegar júlímánuður er borinn
saman við júlímánuð í fyrra. 2.400
gestir komu í sundlaugina í júlí.
Gestir í sundlaugina á Varma-
landi voru um 3.000 í júlí. - ngy
Aðsókn að sundlaugum eykst:
Fleiri í sund í
Borgarbyggð
SAMFÉLAG Stjórnir Blaðamanna-
félags Íslands og Félags frétta-
manna lýsa yfir furðu sinni
á málflutningi lögreglustjór-
a ns í Vest-
mannaeyjum og
þeim sjónar-
m ið u m s em
liggja honum
til grundvallar
varðandi frétta-
flutning af kyn-
ferðisbrotamál-
um sem upp
kunna að koma
á Þjóðhátíð.
Í tilkynningunni segir að það
sé skylda fjölmiðla að segja frá
ofbeldisglæpum og það þjóni
ekki hagsmunum neinna nema
ofbeldismannanna að þegja um
þá.
Þá segir að það sé engin betri
aðferð við að fyrirbyggja og lág-
marka ofbeldi heldur en að tala
um það af hreinskilni. - ngy
Gagnrýna orð lögreglustjóra:
Fjalla á um
ofbeldis glæpi
BRETLAND Jeremy Corbyn er í for-
ystu í skoðanakönnunum fyrir for-
mannskjör Verkamannaflokksins
í Bretlandi.
Corbyn, sem áður þótti ólíkleg-
ur til sigurs, tók óvænt forskotið í
mánuðinum með um 40 til 50 pró-
senta fylgi.
Hann þykir vera á vinstri væng
Verkamannaflokksins og hefur
Tony Blair meðal annars varað
við afleiðingum þess að Corbyn
nái kjöri en margir framámenn í
flokknum óttast að Verkamanna-
flokkurinn muni einangrast undir
forystu Corbyns. - srs
Leiðtogakjör í Bretlandi:
Corbyn leiðir
í könnunum
VINSTRI SINNAÐUR Margir óttast
einangrun flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
HJÁLMAR
JÓNSSON
INDLAND Ungur drengur í Bangalore-héraði á Indlandi tekur þátt í
helgiathöfn sem er hluti af Guru Purnima-helgihátíðinni á Indlandi.
Hátíðin er tileinkuð andlegum og akademískum leiðbeinendum og
bæði hindúar og búddistar taka þátt í hátíðarhöldunum. Á þessum
degi biðja lærisveinar til leiðbeinenda sinna eða gúrúa og námsmenn
fagna deginum með því að þakka kennurum sínum fyrir leiðsögnina.
Dagurinn er mikil hátíð í menntakerfinu en margir háskólar á Ind-
landi opna dyr sínar fyrir stúdentum og fyrrverandi nemendum sem
mæta og þakka kennurum sínum eða minnast eldri kennara. - srs
Guru Purnima-hátíðin á Indlandi er tileinkuð kennurum:
Þakka fyrir andlegu leiðsögnina
BIÐUR TIL LEIÐBEINANDA SÍNS Bæði búddistar og hindúar halda Guru Purnima
hátíðlega. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
F
-0
4
F
C
1
5
9
F
-0
3
C
0
1
5
9
F
-0
2
8
4
1
5
9
F
-0
1
4
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K