Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 18
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
Framhald á næstu síðu
Búa sig andlega undir helgina
Mánudagarnir hættulegastir
Bergur Stefánsson
yfirlæknir bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa
Mikill erill strax eftir helgi
Hrönn Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans
Bergur fer með læknis-fræðilega forsjá yfir sjúkraflutningum á
landinu og yfir slökkviliðinu á
höfuðborgarsvæðinu, þyrlunni
og Neyðarlínunni. Hann starfar
einnig sem læknir í þyrlunni
og á bráðamóttökunni í Foss-
vogi. Það má segja að hann sé
sérfræðingur í að vera fyrstur
til bjargar.
„Verslunarmannahelgin er
löng helgi og það er tilhneiging
til slæmra slysa. Sérstaklega á
mánudögum þegar það er gott
veður og fólk er að flýta sér
heim. Svo fylgir þessari helgi
ansi mikil drykkja og dóp. Fólk
er oft að koma sér í vanda
vegna þess.“
Bergur segir að talsverð auka-
mönnun sé yfir þessa helgi. Til
dæmis í Vestmannaeyjum og
á sjúkrabílnum á Suðurlandi.
„Menn eru meðvitaðir um að
það megi búast við áföllum
þessa helgi og maður býr sig
andlega undir það. En maður
vonar það besta.“
Síðustu ár hefur dánartalan
lækkað í kringum þessa miklu
ferðahelgi. Bergur þakkar
það betra vegakerfi og þar af
leiðandi færri stórum umferðar-
slysum. Hann segir þó margt
koma upp sem tengist neyslu
og kynferðisofbeldi. „Það virðist
vera ótrúlega algengt að fólk á
fullorðinsaldri sé á kafi í neyslu.
Það fólk og fólkið í kringum það
er mun líklegra til að lenda í
vandræðum. Svo hafa kynferðis-
ofbeldismálin loðað við þessar
útihátíðir, það eru skelfileg mál.
Það er fólk sem er hættulegt
þessa helgi– í umferðinni og
gagnvart öðru fólki.“
Jóhann segir helgina vel geta
tekið á og þá sé mikilvægt að fá
stuðning frá félögum. „Skaðinn
er yfirleitt skeður þegar við
komum á vettvang. Við komum
til að hjálpa og reynum að gera
sem best úr þeim aðstæðum
sem við lendum í.“
Hrönn segir starfsfólk bráðadeildarinnar vera viðbúið stærri slysum
um verslunarmannahelgina og
að smá spenna liggi í loftinu.
Annars sé sumarið almennt
annasamt.
„Þetta var mjög erfið helgi
áður fyrr en undanfarin ár
hefur verið minna um stór
umferðarslys. Það er þó alltaf
mikið að gera á bráðamót-
tökunni. Við fáum fleiri inn
eftir líkamsárásir, sem oft eru
tengdar neyslu, og þær eru
oft mjög grófar. En almennt
er mjög mikið að gera um
helgar yfir sumartímann. Það
er vegna aukins ferðamanna-
straums og svo eru mörg
svokölluð frístundaslys hjá
sumarfrísfólkinu, trampólín-
óhöpp og snúnir ökklar
eftir göngur. Þess vegna er oft
mikið að gera fyrstu dagana
eftir verslunarmannahelgina.
Fólk kemur og lætur kíkja
á sig þegar það er komið í
bæinn.“
Hrönn starfar mikið á
neyðarmóttökunni sem er
starfrækt allan sólarhringinn
á bráðadeildinni. Þangað leita
fórnarlömb kynferðisofbeldis.
„Því miður eru nauðganir
eitthvað sem hefur alltaf fylgt
verslunarmannahelginni og
útihátíðum. Það koma ekki
endilega margir um sjálfa
helgina, heldur í vikunni á
eftir. Ég vil þó ítreka að best
er að koma sem fyrst upp á
sönnunarbyrði og skoðun.“
Hrönn viðurkennir að það
geti tekið á að taka á móti
fólki í alls kyns ástandi og að
vera undir miklu álagi á bráða-
deildinni. „En við erum gott
teymi sem vinnum hér saman
og styðjum hvert annað. Það
verður flottur hópur hér á
vaktinni um helgina.“
Það er fólk sem
er hættulegt þessa
helgi – í umferðinni
og gagnvart öðru
fólki.
Því miður eru
nauðganir eitthvað
sem hefur alltaf fylgt
verslunarmannahelg-
inni og útihátíðum.
Það koma ekki
endilega margir um
sjálfa helgina, heldur
í vikunni á eftir.
Sigrarnir standa upp úr
Jóhann Eyfeld Ferdinandsson
sigmaður hjá Landhelgisgæslunni
Jóhann starfar við að síga niður úr þyrlu til að bjarga fólki sem er í
hættu eða slasað úti á sjó
og landi. Oft eru sigmenn
fyrstu björgunarmenn á
staðinn ásamt lækni.
„Það getur ýmislegt
gengið á yfir verslunar-
mannahelgi og er helgin
2013 mér minnistæðust.
Það var fyrsta verslunar-
mannahelgin mín í þyrlunni
og það varð bæði stórt
bílslys og flugslysið á Akur-
eyri.“
Jóhann segir lítinn mun á
milli ára nema að umferðin
hafi aukist talsvert á land-
inu. „Það getur hjálpað til
við að hægja á umferðinni
og gera hana þannig örugg-
ari. Þá eru lengri bílaraðir
og færri sem eru að taka
fram úr eða keyra hratt.“
Hann segir annasamar
helgar geta tekið á andlegu
hliðina. „Og þá er gott
að eiga góða eiginkonu
og góða félaga um borð
í þyrlunni. Þá ræðum við
saman ef eitthvað er að hrjá
mann. Það sem stendur upp
úr er þegar maður nær að
koma einhverjum á spítala
í tæka tíð og heyra síðan
fréttir að viðkomandi hafi
gengið þaðan út.“
Jóhann er á vaktinni um
helgina en segir að undir-
búningur fyrir þessa helgi
sé ekkert öðruvísi en fyrir
aðrar vaktir. „Fyrir hverja
vakt hugsa ég í hverju ég
lendi þetta skiptið. Maður
veit ekkert hvað gerist eða
hvenær maður kemur aftur
heim. Við erum bara alltaf í
startholunum.“
Fyrir hverja
vakt hugsa ég í
hverju ég lendi
þetta skiptið. Maður
veit ekkert hvað
gerist eða hvenær
maður kemur aftur
heim. Við erum
bara alltaf í start-
holunum.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Ólöf
Skaftadóttir
olof@365.is
Fólkið sem stendur vaktina um verslunarmannahelgina biðlar til allra að fara sér hægt. Skugga-
hliðar þessarar mestu ferðahelgi ársins séu óhófleg neysla áfengis og vímuefna og slys og
ofbeldis verknaðir fylgi óhjákvæmilega. Þau eru sammála um að átakanlegast sé að horfa upp á
slys á ungu fólki eða börnum, en að á ýmsu geti gengið þessa mestu ferðahelgi ársins.
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
E
-E
7
5
C
1
5
9
E
-E
6
2
0
1
5
9
E
-E
4
E
4
1
5
9
E
-E
3
A
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K