Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 22
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Katrín Tanja byrjaði í fim-leikum sex ára og æfði stíft í tíu ár. Svo dalaði áhuginn á fimleikum og hún prófaði frjálsar íþróttir. Hún fann ekki ástríðuna sem hún leitaði að þar og var því enn leitandi þegar hún byrjaði að æfa crossfit fyrir tæpum fjórum árum. Og hefur svo sannar- lega fundið ástríðuna. „Mig vantaði eitthvað krefjandi til að keppa í og stefna hátt. Ég fylgdist svo með Annie Mist sum- arið 2011 þegar hún vann keppn- ina og ég fann að þetta var eitthvað sem ég vildi gera,“ segir Katrín glöð í bragði en hún hefur verið á kafi í íþróttum svo lengi sem hún man eftir sér. „Ég er með svo mikið keppnisskap og hef alltaf verið þannig. Allt sem ég gerði þegar ég var barn var keppni. Ég fór í kapp- hlaup við bróður minn að næsta ljósastaur og bjó til þrautabrautir á skólalóðum með vinunum. Ef eng- inn gat keppt við mig var ég með skeiðklukku og tók tímann á mér. Fór í keppni við sjálfa mig. Reyndi til dæmis að standa í handstöðu eins lengi og ég gat. Ég er samt ekki skapstór, ég er með ágætis jafnaðargeð. En ég er þrjósk – sem fer vel með keppnisskapinu.“ Verður að vera 100% Katrín gerir miklar kröfur til sín og getur því orðið tapsár í keppn- um. „En ef ég geri mitt besta og allt gengur eins vel og hægt er verð ég ekki ósátt. En það er auðvitað hund- leiðinlegt að vinna ekki. En maður lærir af því – bæði af því að tapa og vinna.“ Síðasta árið hefur crossfit átt hug Katrínar allan. Hún er mikill námsmaður og nýtur þess að vera í skóla. Hún hefur alltaf verið í námi meðfram æfingum, í Versló og seinna í háskóla að læra verk- fræði og lögfræði. „Ég var að koma seint heim á hverju kvöldi, læra fram á nótt og vakna svo snemma til að fara á æfingu. Mér fannst ég ekki vera 100 prósent á báðum stöð- um þannig að ég ákvað í janúar að setja skólann í pásu. Þegar maður dreifir orkunni á svona marga staði þá nær maður aldrei framúrskar- andi árangri. Ég ákvað að gefa mig alla í crossfittið. Það þýðir að allt þetta ár hef ég eingöngu æft, borð- að og sofið en náð að hvíla vel á milli æfinga. Þá fær maður meira út úr æfingunum.“ Æfir frá níu til fimm Katrín Tanja er enn stödd úti í Bandaríkjunum þar sem hún mun næstu dagana njóta þess að vera í fríi með fjölskyldunni eftir mikla törn. Síðasta árið hefur hún verið með annan fótinn úti í Boston þar sem þjálfari hennar býr. „Þá mætir maður í crossfit-stöðina klukkan níu og fer heim um fimm. Þetta er vinnudagurinn minn. Þjálfarinn minn fylgist með öllum æfingum mínum og í lok dags förum við yfir allar æfingarnar og andlegu hlið- ina. Það hefur hjálpað mér mikið, að vera með rétta hugarfarið. Þjálf- arinn minn er frábær, ég er eins og elsta dóttirin í fjölskyldunni hans og bý hjá honum þegar ég er úti.“ Leiklistin heillar Katrín ætlaði að fara aftur í skóla í haust og klára verkfræðina en eftir sigurinn í keppninni finnst henni líklegt að hún muni bíða aðeins með námið. „Það eru svo mörg tækifæri sem koma með sigrinum. Þetta er stór stökkpallur fyrir mig og ég ætla að reyna að nýta það. Strax eftir sigurinn var hringt í mig frá höf- uðstöðvum Reebook. Þau voru að láta mig vita að ég mætti eiga von á miklum ferðalögum, viðtölum, aug- lýsingatökum og vildu fá stunda- skrána mína. Svo er ég strax komin með umboðsmann og fjármálaráð- gjafa. Tækifærin eru á hverju strái og ég vil nýta þau vel á meðan þau bjóðast. Í framtíðinni get ég vel hugsað mér að verða leikkona, já, eða íþróttafréttamaður. Mér líður vel fyrir framan myndavélarnar,“ segir Katrín hlæjandi. Hún viður- kennir að síðustu dagar hafi verið örlítið yfirþyrmandi. Að hún hafi aldrei verið jafn mikið í símanum. Hún hafi varla við að svara SMS- skilaboðum og að það sé langt í að hún komist í gegnum skilaboðin á Facebook. „En þjálfarinn minn leggur mikið upp úr því að ég reyni að njóta. Svo er ég að æfa mig að láta umboðsmann sjá um þetta. Það er vissulega erfið tilhugsun að láta allt mitt í hendurnar á ein- hverjum með einni undirskrift. En ég er heppin og hef þekkt mann- inn sem sér um mína hluti lengi. Ég er í raun ótrúlega heppin með allt fólkið í kringum mig. Þetta fólk gerði heimsmeistaratitilinn mögu- legan. Það eina sem ég þurfti að gera var að gera eins og þau sögðu mér.“ Stundum venjuleg 22 ára stelpa Katrín er með allan sinn fókus á crossfittinu þessa dagana en hún reynir að sinna vinunum og félags- lífinu eins og hún getur. „Auðvit- að þarf maður að fórna ýmsu. Ég missi oft af afmælum og missti til dæmis af öllum útskriftum í vor. Ég hef eiginlega ekki hitt neinn frá því fyrir Evrópuleikana. Þannig að ég hlakka til að koma heim og njóta þess að vera með fólkinu mínu í haust áður en crossfit-tímabilið hefst aftur í janúar. Þá bæti ég upp tímann og fæ að vera venjuleg 22 ára stelpa. Kíki í bæinn og svona,“ segir Katrín Tanja hlæjandi. Engin karlremba í crossfit Umræðan um minni athygli á konur í íþróttum kemur upp reglu- lega á Íslandi. Katrín Tanja kann- ast ekkert við karlrembu í cross- fit-heiminum. „Sérstaklega ekki á Íslandi. Ég fæ jákvæð viðbrögð og ótrúlega jákvæðar athugasemd- ir á samfélagsmiðlunum. Ég finn að það er litið upp til mín og ég geti verið góð fyrirmynd. Ég er þakklát fyrir það. Ég veit að þetta viðgengst og hef séð hjá öðrum neikvæðar athugasemdir um lík- amsvöxt og vöðva. En hér á Íslandi er flott að vera sterkur og í góðu formi. Vöðvarnir eru okkar tól og ég er stolt af vöðvunum mínum. Þeir gera mig að því sem ég er. Svo eru kynin mjög jöfn í crossfit. Það er jafn hátt verðlaunafé, fjallað jafn mikið um karl- og kvenkepp- endur og kynin gera sömu æfing- arnar. Þetta er mikilvægt og ég er stolt af því að vera í íþrótt þar sem kynin eru á sama plani.“ Næsta árið mun Katrín einbeita sér að crossfittinu og þar sem hún er týpan sem tekur hlutina alla leið mun líklega fátt annað kom- ast að. „Það er svo mikilvægt að finna eitthvað sem maður hefur gaman af og njóta þess. Mér finnst frábært að vakna á morgnana með markmið í huga og eitthvað til að stefna að. Vera spennt fyrir að fara á æfingu og vinna að ein- hverju markmiði. Það er ólýsan- leg tilfinning að sjá bætingu hjá sjálfum sér og vita hversu mikil erfiðisvinna er á bak við hana. Það gerir þetta svo magnað.“ Ég er stolt af vöðvunum Katrín Tanja Davíðsdóttir er nýkrýndur heimsmeistari í crossfit. Við tekur annasamur tími, hún mun ferðast víða og verða þekktara nafn. Hún ætlar að nýta tækifærin sem bjóðast og hana dreymir um að verða íþróttafréttamaður eða leikkona. Ég er með svo mikið keppnisskap og hef alltaf verið þannig. Allt sem ég gerði þegar ég var barn var keppni. Ég fór í kapphlaup við bróður minn að næsta ljósastaur og bjó til þrauta- brautir á skólalóðum með vinunum. Í framtíðinni get ég vel hugsað mér að verða leik- kona, já eða íþróttafrétta- maður. Mér líður vel fyrir framan myndavélarnar. Ég fæ jákvæð viðbrögð og ótrúlega jákvæðar athugasemdir á samfélags- miðlunum. Ég finn að það er litið upp til mín og ég geti verið góð fyrirmynd. Ég er þakklát fyrir það. Í KEPPNI Það voru mikil vonbrigði fyrir Katrínu að komast ekki í keppnina fyrir ári. En hún segir að það hafi gefið henni enn meiri kraft til að standa sig vel í keppninni í ár– og sá kraftur færði henni sigur. MEÐ ÞJÁLFURUNUM Til vinstri er aðalþjálfari Katrínar, Ben Bergeron, og hægra megin er hlaupaþjálfari hennar, Chris Hinshaw. DAGINN FYRIR LEIKANA „Við fengum að vita að við áttum að keppa á paddle boarding sem eru eins og lítil brimbretti nema mun valtari. Við fengum að prófa þetta í fyrsta skipti daginn fyrir keppni.“ 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 F -0 E D C 1 5 9 F -0 D A 0 1 5 9 F -0 C 6 4 1 5 9 F -0 B 2 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.