Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 24
FÓLK|
KITTY ANDERSON, FORMAÐUR INTERSEX ÍSLANDS Hinsegin fólk er fjölbreyttur
hópur og að ráðstefnunni standa einstaklingar með víðtæka þekkingu á þeim málefnum
sem fjallað verður um.
hvernig og hvort við komumst
inn í hús þar sem við viljum vera
eða sækja viðburði. Þeir sem
þurfa ekkert að spá í aðgengi í
daglega lífinu vita jafnvel ekki af
þessum forréttindum sínum en
fyrir marga fatlaða einstaklinga
geta aðgengismálin haft mjög
mikil áhrif á daglegt líf. Forrétt-
indi geta líka verið samfélagsleg,
fjárhagsstaða foreldra getur til
dæmis sagt til um það erlendis
hvaða tækifæri bjóðast í lífinu.
Hjá þeim einstaklingum sem ekki
falla inn í ríkjandi viðmið um
kynhneigð, kynvitund, kyngervi
og jafnvel kyneinkenni getur það
haft mikil áhrif á þeirra daglega
líf. Þess vegna á það vel við á
þessari ráðstefnu að velta for-
réttindum fyrir sér.“
TRANS OG KYNSEGIN
Meðal þeirra jaðarhópa sem
verða kynntir á ráðstefnunni
má nefna asexual fólk, sem er
fólk sem laðast ekki kynferðis-
lega að öðrum en undir þeirri
regnhlíf er fólk með alls konar
ólíka reynslu og einnig verður
komið inn á reynslu þeirra sem
eru tvíkynhneigðir eða bi-sex-
ual, poly-amorous eða fjölásta
og pankynhneigðir og heillast
af einstaklingum, óháð kyni
eða kyngervi. „Sumir halda því
fram að tvíkynhneigð sé ekki til
og tvíkynhneigðir, poly og pan
geta mætt fordómum bæði hjá
gagnkynhneigðum og samkyn-
hneigðum vegna kynhneigðar
sinnar,“ segir Kitty. „Sumir sam-
kynhneigðir halda því fram að
tvíkynhneigðum sé eitthvað
minna treystandi en öðrum
vegna þess hæfileika að geta
laðast að báðum kynjum. Sem
er að mínu mati fjarstæða því
það segir ekkert um trygglyndi
einstaklings að hverjum hann
laðast kynferðislega, hvort sem
það er sama kyn eða bæði.
Manneskja sem er trygg er það
óháð kynhneigð.“
Þá verður fluttur fyrirlest-
urinn Trans og kynsegin 101.
„Transfólk hefur verið meira í
umræðunni undanfarin ár en
þar hefur áherslan verið mest
á lítinn hluta þess hóps, það er
að segja þá einstaklinga sem
upplifa kynvitund sína á skjön
við það kyn sem þeim var út-
hlutað sem barni,“segir Kitty.
„Það hefur ekki farið jafn mikið
fyrir fólki sem upplifir kyn-
vitund sína ólíkt því, kannski
sem einhvers konar sambland
af karl og kven og jafnvel fyrir
utan karl og kven. Sumir innan
þessa hóps hafa tekið upp að
kalla sig kynsegin.“
ALLIR VELKOMNIR
Dagskráin stendur frá 11-18
og það verður hádegishlé þar
sem verður hægt að kaupa sér
súpu og brauð á 1.290 krónur.
„Í hádeginu verðum við með
bókakynningu. Það er til dæmis
verið að vinna að hinsegin
handbók um þessar mundir og
höfundar hennar ætla að koma
og kynna hana. Það verður
kynning á starfsemi Kynís sem
er kynfræðifélag Íslands og
á ráðstefnu norrænna kyn-
fræðinga sem verður haldin í
október. Og svo verður kynn-
ing á Freak out sem verður
öðruvísi hinsegin ball á vegum
BDSM Ísland. Það verður mikil
dagskrá og engin grið gefin,
ekki einu sinni í hádeginu.“ Allir
fyrirlesararnir eru búsettir hér
á Íslandi og ráðstefnan því að
mestu leyti á íslensku. Síðasti
hlutinn verður þó fluttur á
ensku þar sem einn af fyrir-
lesurunum er enskumælandi.
„Fyrirlesturinn heitir „Why
can’t I wear Blackface?“ og þar
verður komið inn á hugtakið
„cultural appropriation“ sem
hefur verið þýtt á íslensku sem
„menningarnám“ og merkir
þegar við tökum eitthvað að
láni úr menningu annarra og
hugsum ekki út í eða yfirfærum
hvaða gildi það hefur í þeirri
menningu.“
Kitty segir að ráðstefnan
sé ekki ætluð neinum stökum
hópi í samfélaginu. „Þessi ráð-
stefna er algerlega fyrir alla.
Auðvit að eru sumir í hinsegin
samfélaginu sem eru betur að
sér um eitt en annað en ég held
að allir innan og utan hinsegin
samfélagsins geti lært mikið af
þessum fyrirlestrum.“ Vonast
er til þess að hægt verði að
taka ráðstefnuna upp svo þeir
sem ekki komast á mánudaginn
geti kynnt sér það sem þar fer
fram.
Dagskrá „Nú skal hinsegja“
má sjá í heild sinni á sam-
nefndri Facebook-síðu. Frítt er
inn á viðburðinn en tekið verð-
ur við frjálsum framlögum.
■ brynhildur@365.is
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Iðkendum CrossFit á Íslandi hefur fjölgað hratt á undanförnum árum en um 4.000 manns stunda þessa skemmtilegu íþrótt um allt land. CrossFit
gengur út á fjölbreytta alhliða þjálfun þar sem notast
er við þekktar íþróttagreinar eins og fimleika, kraft-
lyftingar, ólympískar lyftingar auk þekktra þolæfinga á
borð við hlaup, róður og hjólreiðar.
Meðal þeirra sem hafa stundað íþróttina, þjálfað
hana og rekið CrossFit-stöðvar undanfarin ár eru þau
Hrönn Svansdóttir og Evert Víglundsson. „Í CrossFit
blöndum við þessum greinum og æfingum saman og
búum til stöðugt breytilegt mynstur virkra náttúru-
legra hreyfinga sem við framkvæmum af krafti. Fjöl-
breytni í vali æfinga, hvernig þær eru settar saman
og lengd þeirra skiptir einnig miklu máli. Fólk á öllum
aldri stundar CrossFit og stór skýring vinsælda
greinarinnar snýr einmitt að þessum fjölbreytileika í
æfingum,“ segir Hrönn.
Það eru þó ekki bara fjölbreyttar og krefjandi
æfingar sem gera CrossFit skemmtilegt að sögn
Everts. „Stór hluti ánægjunnar snýr að félagsskapnum
og þeim frábæra anda sem myndast innan stöðvanna.
Sterk vinabönd myndast hjá iðkendum sem virkar
hvetjandi bæði á æfingum og í lífinu sjálfu. Regluleg
hreyfing í skemmtilegum félagsskap verður að lífsstíl
og eykur þannig lífsgæði allra sem taka þátt.“
Það er ekki nauðsynlegt að hafa grunn úr öðrum
íþróttum til að stunda CrossFit. „Þú þarft ekki að
kunna eða geta neitt til að byrja og allir eru jafnir í
hópnum. Þeir sem eru lengra komnir
eru hvatning fyrir byrjendur og
þannig vinnur hver og einn að pers-
ónulegri bætingu sem um leið bætir
hópinn og umhverfið sem við lifum
og hrærumst í. Sett er upp markmiða-
sett prógramm þar sem þjálfarinn
leiðbeinir og hvetur og þannig ná allir
árangri hraðar. Allir geta verið með því
hægt er að laga prógrammið að getu-
stigi hvers og eins iðkanda.“
Nýlega náði hópur Íslendingar frábærum árangri á
Evrópu- og Afríkuleikunum en þar unnu nokkrir sér
inn þátttökurétt á Heimsleikunum og flestir vita um
árangur Íslendinganna þar. „Eitthvað af árangrinum
getum við þakkað góðum genum sem hafa þróast
með náttúruvali í gegnum tíðina í þessu harðbýla
landi. Aðalatriðið er þó hvað við Ís-
lendingar erum duglegt fólk því
það er jú öll vinnan sem fer í
að æfa sig fyrir svona keppni
sem gerir það að verkum að við
stöndum uppi sem sigurveg-
arar. Það eru allir tilbúnir að
standa á efsta palli og taka
við verðlaunum en sá sem er
tilbúinn að leggja á sig alla
erfiðisvinnuna í undirbúningi
fyrir keppni vinnur á end-
anum.“ ■ starri@365.is
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP
CROSSFIT Þeim fjölgar ört hér á landi sem stunda CrossFit. Íþróttin er afar
fjölbreytt og skemmtileg og hentar fólki á ólíkum aldri.
EINTÓM GLEÐI „Stór hluti ánægjunnar snýr að félagsskapnum
og þeim frábæra anda sem myndast innan stöðvanna,“ segja þau
Hrönn Svansdóttir og Evert Víglundsson. MYND/GVA
Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið,
Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup
Svefnvandi, kvíði, depurð
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Börkur af plöntunni
MAGNOLIA
OFFICINALIS, sem vex
í fjallahéruðum Kína,
hefur verið notaður við
svefnvandamálum, kvíða
og þunglyndi í yfir 2000
ár í Asíu.
Heilbrigður svefn
“Hjálpar þér að losna
úr vítahringnum og ná
stjórn á svefninum”
Dr. Michael Breus
www.thesleepdoctor.com
• Heilbrigður svefn
• Upphaf svefns
• Samfelldur svefn
• Þunglyndi og kvíði
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
F
-2
2
9
C
1
5
9
F
-2
1
6
0
1
5
9
F
-2
0
2
4
1
5
9
F
-1
E
E
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K