Fréttablaðið - 01.08.2015, Page 26
FÓLK|HELGIN
Jóhannes Óskar Sigurbjörns-son, bóndi á Þorgríms-stöðum á Vatnsnesi, hefur
um nokkurt skeið fengist við að
hreinsa og vinna höfuðkúpur og
bein hinna ýmsu dýra og skapa
úr þeim listmuni undir merkinu
Natural Bones Design. Síðast-
liðið vor datt honum í hug að fá
til liðs við sig hóp listamanna
og fékk hver um sig í hendur
hauskúpu af hrút og var uppá-
lagt að nota hana sem efnivið í
listaverk. Útkoman er afar fjöl-
breytt en afraksturinn er sýndur
í Anarkiu, ásamt hreinum haus-
kúpum frá Jóhannesi Óskari.
Jóhannes Óskar hafði gert
talsvert af vegglistaverkum
úr hauskúpunum en langaði
að prófa að gera úr þeim fleiri
muni. „Ég var með hausinn
fullan af hugmyndum en komst
bara ekki yfir að framkvæma
þær allar. Þá datt mér í hug að
fá fleiri til liðs við mig. Útkoman
kom mér skemmtilega á óvart
og þarna eru jafnt skúlptúrar
sem nytja- og listmunir.
Sjálfur var Jóhannes Óskar
spenntur fyrir því að koma ljósi
inn í kúpurnar og fékk eigend-
ur fyrirtækisins Ljósberans
Skermagerðar til að aðstoða
sig við að búa til óvenjulegan
lampa „Ég laumaði honum með
á sýninguna undir dulnefninu
Kropor Mazz, en þau hjá Ljós-
beranum voru
sjálf með upp-
lýsta, útskorna
kúpu.“
En hvernig
voru þátt-
takendurnir
valdir? „Ég
lagði upp með
að vera bæði
með þekkta og lítt þekkta lista-
menn. Þetta er ýmist fólk sem
ég hafði samband við eða frétti
af verkefninu og kom að máli
við mig. Á opnuninni kom svo
upp hugmynd um að gera þetta
enn viðameira og er aldrei að
vita nema af því verði,“ segir
Jóhannes Óskar.
Sýningin hefur að hans sögn
fengið góðar viðtökur og mætti
fjöldi fólks á opnunina. „Mér er
sagt að það hafi verið mjög vel
mætt miðað við árstíma og gam-
an að þetta skuli vekja athygli.“
Jóhannes Óskar hefur
lengi haft brennandi áhuga á
listum; jafnt tónlist, myndlist
og nytjalist. „Ég bý yfir mikl-
um sköpunarkrafti og finnst
gaman að vinna með efnivið
sem aðrir myndu flokka sem
rusl.“ Jóhannes Óskar nálgast
beinin aðallega í sláturhúsinu á
Hvammstanga og þarf að vinna
þau umtalsvert svo þau sómi
sér vel á vegg eða sem annars
konar heimilisprýði. „Það þarf
að sjóða hausana og þrífa
hornin vel til að fjarlægja alla
fitu. Svo þarf að saga hornin til
og koma þeim aftur á hausana.“
Jóhannes Óskar er hvergi nærri
hættur og hefur verið að prófa
sig áfram með refa-, fugla- og
hvalabein svo dæmi séu nefnd.
Aðspurður segir hann útlend-
inga sérstaklega áhugasama um
kúpurnar og hefur fengið tals-
vert af pöntunum að utan. „Ætli
okkur Íslendingum þyki þetta
ekki meira hversdagslegt.“
Sýningin í Anarkiu stendur
til 16. ágúst en þar er opið alla
daga nema mánudaga frá 15-
18. Áhugasömum er jafnframt
bent á Facebook-síðuna Natural
Bones Design.
■ vera@365.is
HAUSINN FULLUR AF HUGMYNDUM
BEINALIST Höfuðverk er yfirskrift sýningar sem var opnuð í Anarkiu Listasal í Hamraborg um síðustu helgi. Þar gefur að líta verk
eftir tólf ólíka listamenn sem öll eru unnin úr hauskúpum hrúta. Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson stendur á bak við sýninguna.
VETRARNÓTT Eftir Elínu Ósk Björnsdóttur.JOKER Eftir Kropor Mazz / Davíð Bjarnason.
DREAMKEEPER Eftir Guðmann Þór Bjargmundsson.
SAUÐUR Eftir Aðalheiði Davíðsdóttur.
„BÚINN ER NÚ AÐ STRÍÍÐA” Eftir Aðalstein Eyþórsson.
JÓHANNES
ÓSKAR
40.000
fréttaþyrstir
notendur
Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum:
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
F
-1
D
A
C
1
5
9
F
-1
C
7
0
1
5
9
F
-1
B
3
4
1
5
9
F
-1
9
F
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K