Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 26
FÓLK|HELGIN Jóhannes Óskar Sigurbjörns-son, bóndi á Þorgríms-stöðum á Vatnsnesi, hefur um nokkurt skeið fengist við að hreinsa og vinna höfuðkúpur og bein hinna ýmsu dýra og skapa úr þeim listmuni undir merkinu Natural Bones Design. Síðast- liðið vor datt honum í hug að fá til liðs við sig hóp listamanna og fékk hver um sig í hendur hauskúpu af hrút og var uppá- lagt að nota hana sem efnivið í listaverk. Útkoman er afar fjöl- breytt en afraksturinn er sýndur í Anarkiu, ásamt hreinum haus- kúpum frá Jóhannesi Óskari. Jóhannes Óskar hafði gert talsvert af vegglistaverkum úr hauskúpunum en langaði að prófa að gera úr þeim fleiri muni. „Ég var með hausinn fullan af hugmyndum en komst bara ekki yfir að framkvæma þær allar. Þá datt mér í hug að fá fleiri til liðs við mig. Útkoman kom mér skemmtilega á óvart og þarna eru jafnt skúlptúrar sem nytja- og listmunir. Sjálfur var Jóhannes Óskar spenntur fyrir því að koma ljósi inn í kúpurnar og fékk eigend- ur fyrirtækisins Ljósberans Skermagerðar til að aðstoða sig við að búa til óvenjulegan lampa „Ég laumaði honum með á sýninguna undir dulnefninu Kropor Mazz, en þau hjá Ljós- beranum voru sjálf með upp- lýsta, útskorna kúpu.“ En hvernig voru þátt- takendurnir valdir? „Ég lagði upp með að vera bæði með þekkta og lítt þekkta lista- menn. Þetta er ýmist fólk sem ég hafði samband við eða frétti af verkefninu og kom að máli við mig. Á opnuninni kom svo upp hugmynd um að gera þetta enn viðameira og er aldrei að vita nema af því verði,“ segir Jóhannes Óskar. Sýningin hefur að hans sögn fengið góðar viðtökur og mætti fjöldi fólks á opnunina. „Mér er sagt að það hafi verið mjög vel mætt miðað við árstíma og gam- an að þetta skuli vekja athygli.“ Jóhannes Óskar hefur lengi haft brennandi áhuga á listum; jafnt tónlist, myndlist og nytjalist. „Ég bý yfir mikl- um sköpunarkrafti og finnst gaman að vinna með efnivið sem aðrir myndu flokka sem rusl.“ Jóhannes Óskar nálgast beinin aðallega í sláturhúsinu á Hvammstanga og þarf að vinna þau umtalsvert svo þau sómi sér vel á vegg eða sem annars konar heimilisprýði. „Það þarf að sjóða hausana og þrífa hornin vel til að fjarlægja alla fitu. Svo þarf að saga hornin til og koma þeim aftur á hausana.“ Jóhannes Óskar er hvergi nærri hættur og hefur verið að prófa sig áfram með refa-, fugla- og hvalabein svo dæmi séu nefnd. Aðspurður segir hann útlend- inga sérstaklega áhugasama um kúpurnar og hefur fengið tals- vert af pöntunum að utan. „Ætli okkur Íslendingum þyki þetta ekki meira hversdagslegt.“ Sýningin í Anarkiu stendur til 16. ágúst en þar er opið alla daga nema mánudaga frá 15- 18. Áhugasömum er jafnframt bent á Facebook-síðuna Natural Bones Design. ■ vera@365.is HAUSINN FULLUR AF HUGMYNDUM BEINALIST Höfuðverk er yfirskrift sýningar sem var opnuð í Anarkiu Listasal í Hamraborg um síðustu helgi. Þar gefur að líta verk eftir tólf ólíka listamenn sem öll eru unnin úr hauskúpum hrúta. Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson stendur á bak við sýninguna. VETRARNÓTT Eftir Elínu Ósk Björnsdóttur.JOKER Eftir Kropor Mazz / Davíð Bjarnason. DREAMKEEPER Eftir Guðmann Þór Bjargmundsson. SAUÐUR Eftir Aðalheiði Davíðsdóttur. „BÚINN ER NÚ AÐ STRÍÍÐA” Eftir Aðalstein Eyþórsson. JÓHANNES ÓSKAR 40.000 fréttaþyrstir notendur Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 9 F -1 D A C 1 5 9 F -1 C 7 0 1 5 9 F -1 B 3 4 1 5 9 F -1 9 F 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 0 6 4 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.