Fréttablaðið - 01.08.2015, Page 44

Fréttablaðið - 01.08.2015, Page 44
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 24 TEIKNAR ÞÚ FLOTTAR MYNDIR? Sendu okkur myndina þína í pósti til Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is Útileikuril i Einn er eitraða flaskan og allir hinir leikmennirnir eiga að halda í fötin á viðkomandi. Eitraða flaskan segir svo til dæmis eitur í kerti, eitur í steini eða eitur í hverju sem er. En þegar flaskan segir eitur í flösku á hún að snúa sér hratt við og reyna að ná öllum hinum. Sá sem hún nær fyrst er eitraða flaskan næst. Eitur í fl ösku Hvað er skemmtilegast við bækur? Það er mjög skemmtilegt að lesa þær og kynnast þannig heimi persóna sem eru ólíkar manni sjálfum. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Risa- eðlur í Reykjavík. Hún er um fjóra krakka sem finna risaeðluegg og úr þeim koma risaeðlur. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Mig minnir að bækurnar um Múmínálfana hafi verið fyrstar í uppáhaldi hjá mér. Hvers lags bækur þykir þér skemmtilegastar? Ævintýrasögur. Í hvaða skóla ert þú? Vesturbæjarskóla og Grunn- skóla Önundarfjarðar á Flateyri. Ferðu oft á bókasafnið? Frekar oft. Hver eru þín helstu áhugamál? Handbolti, lestur og tónlist. Ég spila á þverflautu í Skólahljómsveit Vestur bæjar og Miðbæjar. Lóla Sigurðardóttir 11 ára Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða, búa til úr þeim skutlur og skutla þeim í net sem eru í öllum söfnum Borgarbóka- safns. Vikulega er einn þátttakenda útnefndur Lestrarhestur vikunnar og sá eða sú hlýtur bók að launum frá Forlaginu. Lestrarhestur vikunnar VINNINGSHAFINN Lóla fer frekar oft á bókasafnið og hér hefur hún gert góða ferð. Á FLAKKI Védís og Víkingur fóru til margra borga í Japan og segja að það hafi verið skemmtilegt að heimsækja þær allar. Af hverju fóruð þið til Japans? „Af því að pabbi átti afmæli.“ Hvað fannst ykkur skemmti- legast að skoða þar? „Við fórum til nokkurra borga og allar voru skemmtilegar. Í Tókýó eru mörg rosalega stór hús og turn sem heitir Tokyo Tower. Þar er hægt að horfa niður á borgina í gegnum gler í gólf- inu. Það er mjög skrítið. Svo fórum við líka á vísindasafn þar sem eru vélmenni sem dansa. Í Kýótó skoðuðum við Gullna hofið, sáum geishur og gáfum öpum að borða. Í Nara sáum við risastóra búddastyttu inni í stóru hofi. Þar er líka gat á staur sem sagt er að sé jafn stórt og nefið á Búdda. Ef maður skríður þar í gegn öðlast maður eilífa heppni og bless- un Búdda. Við gerðum það og erum miklu heppnari eftir að við komumst út!“ Lentuð þið í einhverju ævintýri sem þið viljið segja frá? „Já, ferðalagið var eiginlega allt eitt stórt ævintýri. Svo var eitt sem var meira óþægilegt en ævin- týralegt þegar við lentum í jarð- skjálfta í Tókýó. Við vorum á hótelherbergi hátt uppi á hótel- inu, á 25. hæð. Húsið hristist mikið og lengi og svo heyrðum við braka í húsinu lengi eftir að jarðskjálftinn var búinn.“ Hvernig matur er í Japan? „Þar er borðaður alls konar matur, til dæmis sushi, misu-súpa og núðlur. Japanskur ís sem er eins og sorbet er samt alveg rosalega vondur, hann er með skrítnu sykurbragði og algjört ógeð. Eftir tvær vikur flytja þau systkinin ásamt Maríu og Vífli, foreldrum sínum, til Brighton í Bretlandi. Af hverju ætlið þið að flytja þangað? „Af því að mamma er að fara í doktorsnám þar. Og við ætlum líka að fara í skóla þar til að læra ensku alveg og líka frönsku.“ Eitthvað að lokum? „Sayonara (sem þýðir bless á japönsku).“ Lentu í jarðskjálft a í ævintýraferð í Japan Systkinin Víkingur og Védís eru átta og sex ára. Þau fl ytja til Englands eft ir tvær vikur en þeim fi nnst gaman að kanna heiminn og fóru til Japans í sumar. MEÐ GEISHUM Krakkarnir hittu geishur í Japan, gáfu öpum að borða og fengu blessun Búdda. Bragi Halldórsson 159 gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn, „við verðum of sein.“ Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús? 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 F -0 9 E C 1 5 9 F -0 8 B 0 1 5 9 F -0 7 7 4 1 5 9 F -0 6 3 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.