Fréttablaðið - 01.08.2015, Qupperneq 52
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 32
LEIÐ EINS OG POPP-
STJÖRNU Í FYRSTA SINN
Páll Óskar Hjálmtýsson
tónlistarmaður
Ég mun aldrei gleyma Uxa ’95. Þar
söng ég „Ástin dugir“ með Unun,
stökk beint af sviðinu
upp í einkaflugvél,
flaug rakleitt frá
Kirkjubæjarklaustri
til Akureyrar, lenti
næstum því á
þakinu á Sjallanum,
hoppaði upp á svið
þar sem Milljónamær-
ingarnir biðu eftir mér
og þar var talið strax í
„Negro José“ fyrir troð-
fullu húsi. Þetta var í fyrsta,
en alls ekki síðasta,
skiptið sem mér leið
eins og alvöru popp-
stjörnu.
FENGU RAFSTUÐ Í
KROPPINN
Björgvin Halldórsson
tónlistarmaður
Einu sinni sem oftar spilaði Brimkló á
Þjóðhátíð og þá var gamla sviðið notað
og það sneri öfugt við hvernig það snýr
núna. Það gerði vitlaust veður … rok
og rigningu þannig að varla var stætt á
sviðinu með vindinn og regnið í fangið.
Við vorum að rembast við að klára
ballið þegar var liðið á nóttina en þá
var veðrið orðið það vont og vatns-
elgurinn svo mikill að græjurnar fóru
að leiða út. Við vorum að fá rafstuð í
kroppinn í gegnum hljóðfærin. Þetta
ágerðist þannig að við þurftum að
hætta og láta Gísla Svein taka við með
diskótekið sitt Áslák, en hann ferðaðist
með okkur á ferðum okkar um landið.
Allt fór að leiða út hjá honum svo
að hann brást þannig við að hann
setti upp gúmmíhanska til að setja
vínylinn undir nálina. Hann hélt út,
blessaður, og kláraði dansleikinn með
stæl blautur upp fyrir haus. Það eru
margar sögurnar en þessari skaut upp í
hugann … Annars bara hress með belti
og axlabönd.
FANN FYRIR GLEÐI-
TÁRUM Á HVARMI
Hreimur Örn Heimisson
tónlistarmaður
Það var árið 2001, júlímánuður
genginn í garð og ég var nýbúinn að
setja þjóðhátíðarlagið Lífið er yndis-
legt í spilun. Menn voru eitthvað ekki
alveg á því að þetta lag væri málið,
enda var nánast ekkert minnst á
Eyjar í textanum. Þjóðhátíðarnefnd
þess tíma var alls ekki sátt við að ég
hefði bara „hent“ laginu í spilun en
ákvað að láta slag standa fyrst ég var
búinn að fara á fjölmiðlana og kynna
lagið sem þjóðhátíðarlag. Komandi
verslunarmannahelgi var því
ótrúlegur léttir fyrir okkur strákana
í Landi og sonum, við mættum til
Eyja og þar var sungið í hverju horni,
þessi lagbútur úr viðlaginu. Hámark-
inu var þó náð í flugeldasýningunni
á laugardagskvöldinu, en brekkan
byrjaði allt í einu að kyrja lagið,
þúsundir manna í miðri sýningu
undir sprengingunum. Ég fann fyrir
gleðitárum á hvarmi og mig grunaði
þarna að ég hefði búið til eitthvað
sem myndi lifa um ókomin ár …
BETRI EFTIR ÞVÍ SEM
HÚN ELDIST
Katrín Jakobsdóttir
stjórnmálakona
„Mér finnst verslunarmannahelgin
hafa orðið betri eftir því sem ég
eldist. Þær bestu eru þegar ég eyði
þeim í Bjarnarfirði í Strandasýslu, þar
hef ég stundum verið um verslunar-
mannahelgi og það er alltaf algjör
sveitasæla,“ segir Katrín.
„Ég er ekki mikil útihátíðarmann-
eskja, en að komast út úr bænum,
labba út og tína krydd og vera í
sambandi við landið eru mínar bestu
minningar um verslunarmannahelgi.
„Í fyrri tíð þegar ég var enn
hress og skemmtileg,“ segir Katrín
skellihlæjandi og heldur áfram, „var
yfirleitt skemmtilegast að vera í mið-
borg Reykjavíkur þegar ég var enn á
þeim skemmtanalífsárum áður en ég
gerðist miðaldra.“
FÓRU Á KÁNTRÝBALL
Jóhanna María Sigmundsdóttir
alþingiskona
Jóhanna María segir sína eftirminnileg-
ustu minningu frá verslunarmannahelgi
vera frá því hún var 16 ára gömul.
„Ég og fóstursystir mín, sem var 18
ára, vildum lyfta okkur upp um versl-
unarmannahelgi. Þar sem ég á sniðugan
pabba ákvað hann að við myndum
skreppa á ball í Bjarkarlundi, það gerði
hann jú á sínum yngri árum,“ segir
Jóhanna María.
„Farið var í fjós í fyrra laginu og við
lögðum svo af stað í ball dressi, við syst-
urnar og pabbi.
Þegar komið var í Bjarkarlund
komumst við að því að allt unga fólkið í
sveitinni væri á unglingalandsmóti eða
á stærri skemmtunum annars staðar
þessa helgina svo við lækkuðum
meðalaldurinn töluvert þetta kvöld.“
Þær systur létu það þó ekki
á sig fá og gerðu það besta úr
aðstæðum. „Fyrir dansi spilaði
kántríhljómsveit og við gerðum
það besta úr ballinu og dönsuðum
fram á nótt, eða þar til tímabært
var að halda heim til að komast í
morgunmjaltir. Þrátt fyrir að
þetta hafi verið aðeins
öðruvísi kvöld en
við bjuggumst við
þá gleymum við
aldrei kántríball-
inu í Bjarkar-
lundi.“
TÓK BLANDARANN
MEÐ UPP Á FJALL
Sólveig Eiríksdóttir
hráfæðiskokkur
„Ein af mínum allra bestu verslunar-
mannahelgum var fyrir fimm árum.
Þá ákváðum ég og maðurinn minn að
fara með börnunum og vinahjónum
yfir Sprengisand og enda uppi í Kverk-
fjöllum, segir Sólveig sem gjarnan er
kölluð Solla.
Veðrið lék við þau og fáir á ferð og
náttúran skartaði sínu fegursta.
„Ég var á einhverju sérstöku fæði
þannig að ég tók blandarann minn
með, sem var tvö hestöfl. Uppi í
Kverkfjöllum settu þeir upp fyrir mig
vararafstöðina og slökktu á rafmagn-
inu meðan ég var að gera morgun-
þeytingana,“ segir Solla og skellihlær.
„Ég sá Herðubreið í fyrsta skipti.
Eitt af uppáhaldsmálverkunum
mínum er eftir Stefán frá Möðrudal
og hann var svo hrifinn af Herðubreið
og í fyrsta skipti upplifði ég að verða
ástfangin af fjalli. Kvöldsólin var örlítið
byrjuð að koma, hún stendur þarna í
einhverjum appelsínugulum logum.
Þetta var svo fallegt.“
GÓÐAR SÖGUR GERAST
Fréttablaðið tók upp tólið og fékk nokkra þjóðþekkta einstaklinga til þess að
deila góðri sögu af verslunarmannahelgi með lesendum blaðsins. Það eiga sjálf-
sagt fl estir góðar sögur til að segja af þessari mestu ferðahelgi ársins.
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
25-35%
AFSLÁTTUR
STILLANLEG
RÚM
Verðdæmi
C&J stillanlegt heilsurúm með
infinity dýnu 2x80x200 cm.
Fullt verð kr. 558.000
ÚTSÖLUVERÐ KR. 390.600
25%
AFSLÁTTUR
GOLD – HEILSU-
RÚM
GOLD heilsurúm
Með Classic botni 160x200 cm.
ÚTSÖLUVERÐ KR. 114.675
Með Classic botni 180x200 cm.
ÚTSÖLUVERÐ KR. 123.675
Gafl ekki
innifalinn í verði
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
20-50%
AFSLÁTTUR
SÆNGUR-
FATASETT
MARGAR GERÐIR
Fáanlegt
90x200 cm
120x200 cm
140x200 cm
160x200 cm
180x200 cm
Blóðbergskokteill
Klakar
3 cl af sítrónusafa úr brenndum
sítrónum
3 cl af Reyka Vodka
6 cl af blóðbergssírópi
(100 g blóðberg, 1 l vatn, 400 g hunang)
Toppað með peru-cider
Þessi ómótstæðilegi kokteill er svo
skreyttur með nýbrenndri sítrónu og
blóðbergi.
Brakandi ferskur Blóðbergskokteill
➜ Gísli Matthías
Auðunsson mat-
reiðslumaður og
einn af eigendum
veitingastaðarins
Slippsins í Vest-
mannaeyjum.
LÍFIÐ
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
E
-F
1
3
C
1
5
9
E
-F
0
0
0
1
5
9
E
-E
E
C
4
1
5
9
E
-E
D
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K