Fréttablaðið - 01.08.2015, Síða 62
1. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 42
365.is Sími 1817
SUNNUDAG KL. 13:45
SAMFÉLAGSSKJÖLDURINN 2015 – SUNNUDAG KL. 13:45
Það verður ekkert gefið eftir á Wembley á sunnudaginn
þegar núverandi meistarar úrvalsdeildarinnar hjá Chelsea
mæta núverandi FA-bikarhöfum Arsenal í baráttunni um
Samfélagsskjöldinn.
Fylgstu með á sunnudaginn á Stöð 2 Sport.
CHELSEA–ARSENAL
Steinunn
Jónsdóttir
Söngkona
MAKI: Magnús
Jónsson
DAGUR: 27. mars Magnús Jónsson
maki
Hún er aldrei fúl í meira en
korter og hún kemur manni
alltaf í gott skap. Hún er ótrú-
lega sterk manneskja og með
sterk an persónuleika. Falleg að
innan sem utan.
Salka Sól Eyfeld
vinkona
Hún er hörkudugleg, alltaf
með margt á könn unni og
gerir allt vel sem hún tekur sér fyrir
hend ur. Hún er ótrúlega hugmyndarík
og frjó. Mikil hugsjónamanneskja með
gagnrýna hugsun.
Jón Stefánsson
faðir
Steinunn er jákvæð manneskja
með einlægan húmor. Hún
er algjörlega fordómalaus og hana
dreymir stöðugt um að geta bætt
heiminn. Textarnir hennar endur-
spegla þetta vel.
1989
BARN: 1
Steinunn Jónsdóttir
er söngkona í
hljómsveit inni
AmabAdamA.
Salka Sól
Eyfeld og
Magnús Jónsson eru með henni í
sveitinni og munu þau koma fram
fimm sinnum um verslunar-
mannahelgina. Þau komu fram á
Innipúkanum í gær en spila svo í
Vestmanna eyjum og Húsdýragarð-
inum í dag og fara svo til
Akureyrar á morgun. Steinunn
á barn með Magnúsi sem er
betur þekktur sem Gnúsi
Yones.
Mennta- og menningarmálaráð Kól-
umbíu sendi á dögunum Útflutn-
ingsskrifstofu íslenskrar tónlistar
eða Útón bréf þar sem ráðið óskar
eftir ráðleggingum frá Útón. „Þetta
var svolítið skondið því þetta er
ákveðin viðurkenning á því sem
við erum að gera. Þeir vilja að við
komum og veitum ráðgjöf og miðl-
um reynslu okkar í uppbyggingu
á tónlistarskrifstofu. Það er pínu
fyndið því okkar skrifstofa er pínu-
lítil miðað við til dæmis norrænu
tónlistarskrifstofurnar. Við höfum
einhvern veginn meiri sýnileika á
netinu og fólk er að taka vel eftir því
sem við erum að gera,“ segir Sig-
tryggur Baldursson, framkvæmda-
stjóri Útón.
Í bréfinu segir að mennta- og
menningarmálaráð Kólumbíu hafi
fylgst grannt með gangi mála í
íslenskum tónlistarútflutningi og
telja þeir Útón vera eina öflug-
ustu tónlistarútflutningsskrifstofu
í Evrópu. Ráðið vill fá ráðlegg-
ingar og að Útón miðli þekkingu
sinni og reynslu í útflutningi tón-
listar. „Þetta er að verða rosa-
lega mikilvæg grein á Íslandi. Við
erum að berjast fyrir því að fá í
gang rannsóknarmiðstöð skapandi
greina, sem er í raun til í Háskóla
Íslands, en viljum fá mið-
stöðina virkjaða með eins
og einum starfsmanni svo
við getum séð hvað grein-
in er að velta,“ útskýr-
ir Sigtryggur. „Það er
1,6 milljarða króna
velta af Airwaves-
hátíðinni, sem
er ein tónlist-
arhátíð sem
fer fram á
einni viku.
Við erum að
tala um að velta
af tónleikum íslenskra tónlistar-
manna erlendis sé einhvers staðar á
bilinu fimm til tíu milljarðar, þann-
ig að þetta er að sjálfsögðu mikil-
væg grein,“ bætir Sigtryggur við.
Ráðið vill að Sigtryggur ausi af
sínum visku- og reynslubrunni og
hefur boðið honum á ráð-
stefnu í Kólumbíu sem
fram fer í október.
„Mig hefur alltaf
langað til þess að
fara til Suður-
Ameríku og ég
ætla að þiggja
boðið ef þetta
passar inn í
skipulagið
hjá okkur.
Ég er að fara
í samnor-
ræna viðskipta-
ferð til New York
til að skoða mögu-
legt samstarf í
byrjun október og
svo er CMJ showcase fyrir íslenska
tónlistarmenn einnig í New York í
sama mánuði en vonandi smellur
þetta og ég kemst út.“
Hópur af fólki í tónlist og við-
skiptum í Síle er einnig að reyna að
búa til sams konar skrifstofu þar
í landi. „Það voru aðilar í Síle sem
sendu okkur bréf á svipuðum tíma
og von um ráðleggingar og aðstoð
á sama sviði. Það er auðvitað smá
montprik að vera beðinn um svona
og að það sé frekar haft samband
við okkur en ekki þessar stærri
skrifstofur á Norðurlöndunum,“
segir Sigtryggur.
gunnarleo@frettabladid.is
Suður-Ameríka vill
aðstoð í útfl utningi
Mennta- og menningarmálaráð Kólumbíu sendi Útón bréf og óskar þar eft ir
ráðleggingum í uppbyggingu á tónlistarskrifstofu og útfl utningi á tónlist.
STEFNIR
SUÐUR
Sigtryggur
Baldursson
framkvæmda-
stjóri Útón
segir bréfið vera
mikla viður-
kenningu fyrir
störf Útón.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEIMSFRÆG HLjómsveitin Of Monsters and Men er dæmi um hljómsveiti sem
hefur heldur betur slegið í gegn á erlendri grundu. MYND/MEREDITH TRUAX
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
JÓNSI Í
SIGURRÓS
Við erum að tala um
að velta af tónleikum
íslenskra tónlistarmanna
erlendis sé einhvers
staðar á bilinu fimm til
tíu milljarðar.
NÆRMYND
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
E
-E
C
4
C
1
5
9
E
-E
B
1
0
1
5
9
E
-E
9
D
4
1
5
9
E
-E
8
9
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K