Fréttablaðið - 01.08.2015, Side 64

Fréttablaðið - 01.08.2015, Side 64
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 53,7% 19,6% FB L M BL Í mínum huga er hann ekki einu sinni mennskur,“ sagði alvörugefinn ungur maður í heimabæ tannlæknisins sem skaut frægt og tignarlegt ljón. Þetta er kennslubókardæmi um sálfræðileg varnarviðbrögð við eigin villimennsku. Flestir telja sig vera gott fólk. Fáir myndu lýsa sér sem blóðþyrstum, hefni- gjörnum, ófyrirgefandi ófreskj- um. Hvernig leysum við úr þeirri mótsögn að við myndum stundum vilja horfa á aðra þjást og drepast vegna misgjörða sinna? Jú, við segjum að við- komandi maður sé ekki maður. Þar með er hann orðinn eins og illgresi sem á enga samúð skilið. NOKKRAR staðreyndir. Ljón eru ekki flokkuð sem dýr í útrýmingarhættu, stofninn er sagður „viðkvæmur“. Það er löglegt að veiða ljón í Simbabve. Það er löglegt að veiða ljón með boga. Það er löglegt að ginna ljón af verndarsvæði með bráð. Það er löglegt að veiða fullvaxta karldýr, þar sem dráp þeirra hefur minnstu áhrifin á stærð stofnsins. MENN geta haft skoðun á því að sumt af þessu sé ógeðslegt og að lítill bragur sé á þessu áhuga- máli. En það sem virðist hafa verið ólöglegt við drápið var að það fór fram á svæði án ljóna- kvóta. Sem vissulega er veiði- þjófnaður, rétt eins og það að að dorga í Elliðaám án leyfis eða skjóta rjúpu utan veiðitímabils. En passleg refsing fyrir slík brot er ekki ævilöng og óaftur- kræf brottvikning úr samfélagi mannanna. „VIÐRINI!“ „Tannlækna- drusla!“ „Það ætti að henda manninum fyrir ljón.“ Svo lætur fólk út úr sér á samfélagsmiðl- unum í skjóli fjöldans. Götu- dómstóllinn vill réttlæti og það strax. En það er ekki þannig sem við, mannkynið, gerum hluti. Við setjum lög um það sem við viljum banna. Ef þau lög eru brotin er fólk kallað fyrir dómstóla þar sem það fær að verja sig. Við ráðumst ekki eins og villt hjörð á þá sem skjóta sig í fótinn. Það er nú það sem aðgreinir okkur – frá dýrunum. Víst manneskja BAKÞANKAR Pawels Bartoszek 3 1 -0 7 -2 0 1 5 2 0 :4 9 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 9 E -D 8 8 C 1 5 9 E -D 7 5 0 1 5 9 E -D 6 1 4 1 5 9 E -D 4 D 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.