Fréttablaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 64
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
Í mínum huga er hann ekki einu sinni mennskur,“ sagði
alvörugefinn ungur maður í
heimabæ tannlæknisins sem
skaut frægt og tignarlegt ljón.
Þetta er kennslubókardæmi um
sálfræðileg varnarviðbrögð við
eigin villimennsku. Flestir telja
sig vera gott fólk. Fáir myndu
lýsa sér sem blóðþyrstum, hefni-
gjörnum, ófyrirgefandi ófreskj-
um. Hvernig leysum við úr
þeirri mótsögn að við myndum
stundum vilja horfa á aðra þjást
og drepast vegna misgjörða
sinna? Jú, við segjum að við-
komandi maður sé ekki maður.
Þar með er hann orðinn eins og
illgresi sem á enga samúð skilið.
NOKKRAR staðreyndir. Ljón
eru ekki flokkuð sem dýr í
útrýmingarhættu, stofninn er
sagður „viðkvæmur“. Það er
löglegt að veiða ljón í Simbabve.
Það er löglegt að veiða ljón með
boga. Það er löglegt að ginna
ljón af verndarsvæði með bráð.
Það er löglegt að veiða fullvaxta
karldýr, þar sem dráp þeirra
hefur minnstu áhrifin á stærð
stofnsins.
MENN geta haft skoðun á því
að sumt af þessu sé ógeðslegt og
að lítill bragur sé á þessu áhuga-
máli. En það sem virðist hafa
verið ólöglegt við drápið var að
það fór fram á svæði án ljóna-
kvóta. Sem vissulega er veiði-
þjófnaður, rétt eins og það að að
dorga í Elliðaám án leyfis eða
skjóta rjúpu utan veiðitímabils.
En passleg refsing fyrir slík
brot er ekki ævilöng og óaftur-
kræf brottvikning úr samfélagi
mannanna.
„VIÐRINI!“ „Tannlækna-
drusla!“ „Það ætti að henda
manninum fyrir ljón.“ Svo lætur
fólk út úr sér á samfélagsmiðl-
unum í skjóli fjöldans. Götu-
dómstóllinn vill réttlæti og það
strax. En það er ekki þannig
sem við, mannkynið, gerum
hluti. Við setjum lög um það sem
við viljum banna. Ef þau lög
eru brotin er fólk kallað fyrir
dómstóla þar sem það fær að
verja sig. Við ráðumst ekki eins
og villt hjörð á þá sem skjóta
sig í fótinn. Það er nú það sem
aðgreinir okkur – frá dýrunum.
Víst manneskja
BAKÞANKAR
Pawels
Bartoszek
3
1
-0
7
-2
0
1
5
2
0
:4
9
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
9
E
-D
8
8
C
1
5
9
E
-D
7
5
0
1
5
9
E
-D
6
1
4
1
5
9
E
-D
4
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K