Fréttablaðið - 05.11.2015, Qupperneq 32
Fólk| tíska
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
spáir þú mikið í tísku? Já, ég er alltaf að
spá. Það er svo fallegt að maður geti sett
út einhvers konar yfirlýsingu með því
sem maður klæðist. T.d. kannski að það
að vera í blautum fötum geti sagt svona:
Hei, Útlendingastofnun, ekki láta alla
flóttamennina drukkna, hleypið þeim inn
í landið.
Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl? Casino-
mafíósi frá 1960 sem er að leika vonda
kallinn í myndinni the 5th Element.
Hvernig klæðir þú þig hversdags? Eins og
Neo í Matrix.
Hvernig klæðir þú þig spari? Eins og ég sé
að fara á skemmtiferðaskip.
Hvar kaupir þú fötin þín? Í Ástund og á
Ítalíu.
eyðir þú miklu í föt? Það fer eftir því hvort
ég á peninga, maður þénar ekkert svo
mikla peninga á að semja ljóð.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Jane Eyre-
kjóllinn sem mamma var að sauma á mig.
Uppáhaldshönnuður? Alexander
McQueen.
bestu kaupin? Vinnumannavestið sem ég
keypti í smíðabúð í Lúxemborg, það er
með svona 50 mismunandi vösum út um
allt.
Verstu kaupin? 90’s cowboy-jakkinn sem
ég keypti á flóamarkaði, hann er með
svona hvítum feldflyksum út um allt, ég
lít út eins og sjúskuð kanína.
Hverju verður bætt við fataskápinn næst?
Hinn hæfileikaríki fatahönnuður Tanja
Huld Levý er að hanna fyrir mig hvítan
geishu-drekabúning fyrir plötu sem ég
tók upp í sumar með upptökusnillingn-
um Kára Einarssyni. Ætli það verði ekki
næsta flíkin.
Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að
tísku og útliti? Ég á það til að fá æði fyrir
einni flík í langan tíma, og er þá bara í
henni, alltaf, sef í henni líka.
notar þú fylgihluti? Já, mér finnst gaman
að vera með regnhlífar.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ætli það sé
ekki Margrét Iversen, Tilda Swinton og
spæjarinn Columbo.
Hvað er fram undan hjá þér? Ég er nýkom-
in frá Feneyjum þar sem ég var að sýna
myndlist á tvíæringnum með Sigurði Atla
Sigurðssyni. Núna er ég að fara að koma
fram á Airwaves í Hörpunni í kvöld,
5. nóvember, kl. 23.10, það veit enginn
hérna á Íslandi hvað ég geri, sem gerir
allt þetta svo spennandi, ég sagðist spila
tilraunakennda ljóðatónlist, en í raun þá
veit ég ekkert hvað ég á að kalla þetta,
fólk veit ekkert við hverju það á að búast.
Gunnar Gunnsteinsson tónskáld ætlar
hugsanlega að baða út höndunum þarna
með mér, þetta kemur allt í ljós. Svo er
ég á leið aftur til Lúxemborgar að syngja
í leikriti þar sem tískufrömuðurinn Virg-
inia Ferreira hannaði á mig kjól. Eftir það
fer ég til Danmerkur að spila á tilrauna-
kenndri sci-fi tónlistarhátíð. Kannski gef
ég út svona eins og eina plötu í millitíð-
inni, í leyni, og gref hana í jörð á hundrað
mismunandi stöðum í Reykjavík, svo
getur fólk pantað fjársjóðskort í pósti til
að nálgast hana.
eins og
CasinomaFíósi
spUrt&sVarað Ásta Fanney Sigurðardóttir kemur fram á
Airwaves í Hörpu í kvöld þar sem hún spilar tilraunakennda ljóða-
tónlist. Hún líkir stíl sínum við mafíósa frá sjöunda áratugnum.
skÁld Fanney Ásta kemur fram á Airwaves í Hörpu í kvöld. Mynd/SteFÁn
kostir tískUnnar
„Ég er alltaf að spá. Það er svo fallegt að
maður geti sett út einhvers konar yfir-
lýsingu með því sem maður klæðist. T.d.
kannski að vera í blautum fötum geti sagt
svona: Hei, Útlendingastofnun, ekki láta
alla flóttamennina drukkna …“
- nagladekk frá 9.490kr -
WWW.TRI.IS
Schwalbe
0
6
-1
1
-2
0
1
5
0
9
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
D
6
-5
F
0
C
1
6
D
6
-5
D
D
0
1
6
D
6
-5
C
9
4
1
6
D
6
-5
B
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
4
1
1
2
0
1
5
C
M
Y
K